Dagur tónlistarinnar Páll Baldvin Baldvinsson skrifar 9. nóvember 2007 00:01 Hvert getum við farið án söngs og lags? Hvert sem leitað er hljómar tónlist af einhverju tagi. Útvarpsstöðvarnar flestar byggja tilveru sína á tónlist, sjónvarp væri lítið án tónlistar þótt það sé fæst íslensk tónlist, kvikmyndin, leikhúsið og danssalirnir væru snautleg fyrirbæri án tónlistar. Á samkomustöðum af flestu tagi er tónlist hljómandi. Jafnvel úti við má heyra tónlist úr nálægum ökutækjum, söng úr næstu húsum. Þögnin er horfin okkur, ein meginástæða þess að hingað leitar manngrúi úr þéttbýlum nálægum löndum. Tónlistin er einn meginþáttur tilveru okkar, óaðskiljanlegur hluti lífsins. Það var ekki svo: fyrr á tímum var hún fátækleg fylgikona alþýðu, hjástöð andlegra yfirvalda og haldin frilla hjá yfirstéttinni. Nú er hún allra. Nálægð hennar býr samt við ríka fordóma, sumpart félagslega, sumpart af hjátrú. Hin svokallaða sígilda tónlist er enn talin af mörgum vera ókunnugleg. Mikill meirihluti fólks sækir ekki tónleika og þekkir ekki þann mikla og dásamlega kraft sem tónlist býr yfir. Sama fólk getur varla séð kvikmynd án þess að njóta áhrifa tónlistar af í í sígildum stíl og skilur hana þá fyrirvaralaust og nýtur til fulls. Eins er með svokallaða framúrstefnutónlist af ýmsu tagi: sumt af henni er reyndar afturhaldssamt stagl, annað í tón- og hljóðheimum er þess eðlis að vera unnið úr hljóðveröld sem við þekkjum úr daglegu umhverfi en umbreytt í skipan hljóðskáldsins. Þá fyrst verður það okkur torkennilegt, óárennilegt og fjarlægt. Tónlistarlíf er í miklum blóma á Íslandi. Hér hefur myndast á nokkrum áratugum stór stétt vel menntaðs fólks sem leikur á hljóðfæri. Margt af því stundar kennslu með hljóðfæraleik. Stór hópur stjórnenda af ýmsu tagi hefur föst verkefni þótt enn skorti Sinfóníuhljómsveit Íslands metnað til að byggja upp íslenska stjórnendur og sætti sig við að hafa stjórnanda sem lítur á vinnu sína þar sem íhlaupaverk. Aragrúi tónleika af öllu tagi er í boði. Allt að daglega má sækja tónleika af einhverju tagi. Þeir eru taldir í þúsundum, og skipta þar með sér fjöldanum, tónleikar sem sinna hinni menntuðu tónlist og hinir sem sinna tónlist sem stendur nær hefð dægurtónlistar. Tónleikahaldið dreifist um landið en sætir víðast hvar sömu móttökum: Íslendingar fara of lítið á tónleika. Þeir gefa sér ekki tíma til þess, líta ekki á það sem hluta af hversdaglegri önn. Tónlistarskólarnir hafa vaxið og dafnað í skjóli metnaðarfullrar stefnu um rekstur þeirra en á sama tíma er tónlistarmenntun í skólum hornreka. Mikið vantar á að tónlistarmenntun sé djúpsækinn hluti af almennri menntun, eins og reyndar listiðkun yfirleitt. Það er stefnuvilla hjá stjórnvöldum að reka ekki kraftmikið tónlistarstarf í grunnskólum. Það skilar sér; árangur íslenskra manna á erlendum vettvangi, mörkuðum og í tónleikahaldi er til kominn fyrir þvermóðskufullan vilja til að halda tónlistarmenntun til streitu í upphafi. Björk varð til vegna tónlistarmenntunar á unga aldri og rétt eins verður að huga að öllum þeim ungu björkum sem nú vaxa úr grasi. Því á dagur tónlistarinnar erindi til okkar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páll Baldvin Baldvinsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun