Tíu ára afmæli Furstanna 22. júní 2007 02:00 Þeir syngja með Furstunum í kvöld sem fagna tíu ára starfsafmæli.
Tíu ára starfsafmæli Furstanna verður haldið á Kringlukránni um helgina. Á efnisskrá Furstanna verður swing og latínmúsik, efni sem hún hefur verið að leika undanfarin ár. „Til þess að dreifa þessu örlítið og ná til breiðari hóps höfum við fengið Stefán úr Lúdó og André Bachmann til liðs við okkur,“ segir Geir Ólafsson, söngvari Furstanna. „Breiddin verður í hávegum höfð og við verðum í góðum gír hvað það varðar.“ Furstarnir voru stofnaðir fyrir tilstilli Harðar Magnússonar sem rak Ártún í denn. „Hann vildi endurvekja dansmenninguna og bað mig og Árna Scheving að búa til band. Það átti bara að vera sumarband en okkur þótti svo gaman að fá að spila svona músik og þeir höfðu svo gaman af því að svona ungur drengur, eins og ég var þá, vildi spila svona músik,“ útskýrir Geir. „Svo leiddi bara eitt af öðru og síðan hefur þetta verið upp á við. Áður en við vissum af vorum við búnir að starfa í tíu ár sem er mikið ánægjuefni. Það er gaman að svona hópur, þar sem aldursmunurinn er svo mikill, skuli ná að halda saman og alltaf síhressir og síkátir.“ Afmælistónleikarnir verða bæði föstudags- og laugardagskvöld og hefjast klukkan 23.15.
Mest lesið Getur enn þann dag í dag ekki horft á barnarúm Lífið Getuleysi á stóra sviðinu Gagnrýni Af og frá að Iceguys taki þátt í Söngvakeppninni Lífið Mjög tilfinningaríkt að vera með kraftaverk í höndunum Lífið Júlí og Ágúst keppa í Söngvakeppninni í febrúar Lífið Gervifullnægingar og lélegt kynlíf tilheyri 2024 Lífið Íris Ósk seldi hönnunarhöllina á 230 milljónir Lífið Laufey ástfangin í eitt ár Lífið Opið samband fer úrskeiðis Lífið Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi Lífið Fleiri fréttir Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Nýdönsk á toppnum 2024 Herra Hnetusmjör með stærsta lag ársins Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Sjá meira