Yoko Ono vill Amiinu 14. júní 2007 07:30 Yoko Ono er heilluð af tónlist Amiinu. „
Þetta kom okkur mikið á óvart og við erum búnar að hlæja mikið að þessu,“ segir María Huld Markan meðlimur hljómsveitarinnar Amiinu. Yoko Ono valdi um helgina lagið Seoul af nýrri plötu Amiinu, Kurr, sem eitt af átta lögum sem hún myndi hafa með sér á eyðieyju. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Desert Island Music á bresku útvarpsstöðinni BBC 4. Þátturinn fær vikulega til sín frægt fólk sem velur þá tónlist sem það vildi ekki vera án ef svo illa vildi til að það strandaði á eyðieyju. Þetta er rúmlega sextíu ára gamall þáttur sem hefur mjög mikla hlustun. „ Þetta er örugglega góð auglýsing fyrir okkur bara af því hver hún er. Hún er auðvitað hálfgert listaídol.“ Maríu finnst þetta líka sérstaklega skemmtilegt í ljósi þess að lag Amiinu skar sig töluvert frá hinum lögunum sem hún valdi. Hin lögin voru gamlir standardar með Bob Marley, Edith Piaf og fleirum. María býst þó ekki við að þær stöllur í Amiinu myndu taka tónlist Yoko með sér á eyðieyju. „Hún er auðvitað frábær kona en það er kannski ekki beint tónlistin sem heillar.“
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót Menning „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira