Hæfileikaríkur hrokagikkur 31. maí 2007 09:00 Gallagher á sviði einn með gítarinn í mars síðastliðnum. fréttablaðið/gettyimages
Noel Gallagher, aðallagahöfundur bresku sveitarinnar Oasis, varð fertugur síðastliðinn þriðjudag. Fréttablaðið skoðaði litríkan feril kappans. Noel Gallagher fæddist í Manchester á Englandi árið 1967. Hann átti fremur erfiða æsku og var oft laminn af drykkfelldum föður sínum. Þrettán ára byrjaði hann að læra sjálfur á gítar með því að herma eftir gítarfrösum í uppáhaldslögunum sínum. Á atvinnuleysisbótumGallagher fékk starf í byggingafyrirtæki en varð fyrir því óláni að fótbrotna eftir að hafa fengið þungan stálbita ofan á hægri fót sinn. Í framhaldinu fékk hann rólegri vinnu í vöruhúsi og hafði um leið aukinn tíma til að æfa sig á gítarinn og semja lög. Síðari hluta níunda áratugarins var hann meira og minna á atvinnuleysisbótum og eyddi öllum sínum tíma í tónlistina og fikt með fíkniefni. Hlustaði hann á sveitir á borð við Bítlana, sem áttu áttu eftir að hafa mikil áhrif á lagasmíðar hans, T. Rex, The Rolling Stones, Slade, The Kinks, The Smiths og The Stone Roses. Hafnað af Inspiral CarpetsÁrið 1988 sótti Gallagher um sem söngvari hljómsveitarinnar Inspiral Carpets. Honum var hafnað en fékk í staðinn starf sem rótari. Eftir að hafa farið í nokkur tónleikaferðalög með Inspiral Carpets gekk hann til liðs við hljómsveit yngri bróður síns Liam í byrjun tíunda áratugarins. Oasis átti stóran þátt í Brit-bylgjunni sem reið yfir heiminn um miðjan tíunda áratuginn með lögum á borð við Wonderwall og Live Forever. Einnig var sveitinni þakkað að hafa fært gamla og góða rokkið aftur í sviðsljósið. Hrokafullur NoelGallagher hefur oft þótt ansi hrokafullur í viðtölum við fjölmiðla og er jafnan duglegur að hrósa eigin lagasmíðum. Hefur hann látið aðrar hljómsveitir á borð við Blur fá það óþvegið og sagt þær handónýtar. Einnig hefur hann lengi átt í deilum við Robbie Williams, sem honum þykir lítið til koma. Að undanförnu hefur Gallagher verið duglegur við að koma fram einn með kassagítarinn en segist þó ekki hafa áhuga á því að hefja sólóferil. Vill hann frekar einbeita sér að því að spila með „bestu hljómsveit í heimi“, Oasis.
Mest lesið Inga Tinna selur höllina í Borgartúni Lífið Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Lífið Ein heitasta stjarna í heimi Tíska og hönnun Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Lífið Sjóðheit trend sem taka yfir á nýju ári Lífið Kiefer Sutherland handtekinn grunaður um líkamsárás Lífið Rosalia komin með skvísu upp á arminn Lífið „Og leynigesturinn er enginn annar en…“ Lífið Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Tónlist Stjörnulífið: Aníta Briem og Inga Tinna þakklátar ástinni Lífið Fleiri fréttir Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira