„Normalísering andskotans“ 30. mars 2007 00:01 Ef maður setur upp gleraugun sem skipta hlutum í svart og hvítt, gott og vont, Guð og Andskotann stendur Guð fyrir það sem er gott. Þið vitið, að hjálpa bágstöddum, segja alltaf satt, vera góður við börn og allt það. Andskotinn er vondur. Þeir sem fylgja andskotanum drekka, dópa, hórast, nauðga og myrða. Andskotinn er samviskulaus og þeir sem kunna að setja upp svarthvítu gleraugun hafa flestir vit á því að vera ekkert að abbast uppá hann. Gáfaðir menn eru hinsvegar meira fyrir að ræða hlutina í frumeindir sínar og í kjaftavaðlinum verður stundum til eitthvað sem ég kýs að kalla "normalísering andskotans". Andskotinn verður venjulegri og venjulegri eftir því sem kjaftavaðallinn eykst. Vændi er nú orðið löglegt á íslandi. Ástæðuna segir löggjafinn þá að annars mundi vændi færast í undirheima. Eins og vændi hafi einhverntíman verið uppá yfirborðinu. Eða er það von manna að það færist uppá yfirborðið núna? Já, auðvitað ætti hver maður að geta keypt sér hóru kynnroðalaust og fyrir opnum tjöldum. Að njóta ásta með gleðikonu fyrir framan þá sem horfa vilja eru auðvitað sjálfsögð mannréttindi fullorðins manns. Annað er forræðishyggja. Forræðishyggja í anda þess að banna fullþroska fólki að kaupa sér rauðvín í Bónus. Og að maður þurfi að vera orðinn tvítugur til að kaupa sér áfengi. 18 ára táningur má gifta sig en ekki skála í kampavíni í brúðkaupinu sínu. Hvaða mannréttindi eru það að mega ekki drekka sig ofurölvi í eigin brúðkaupi? Afhverju er líka yfirhöfuð verið að banna eitthvað? Er t.d. rétt að banna mönnum að drepa aðra menn? Eiga menn ekki bara að fá að velja og hafna í þeim efnum? Er ekki sjálfsagt mál að fullorðinn karlmaður geti, eftir erfiðan vinnudag, myrt svona eins og einn leiðindapúka sem verður á vegi hans, ef honum sýnist svo? Er betra að manndráp séu geymd í undirheimum? Þessi endalausu umræðustjórnmál hafa nú sýnt okkur fram á að allt er hægt að kjafta upp þar til það fer að hljóma vel. Staðreyndin er sú að með hinni nýju lagatöku hefur íslenska ríkisstjórnin lagt blessun sína yfir kaupum á fólki. Nú mega allir kaupa sér þræla. Kynlífsþræll er til leigu fyrir ákveðna upphæð í umsaminn tíma. Þetta er löglegt. Þökk sé gáfuðum mönnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðunargreinar. Senda grein Sigurjón Kjartansson Mest lesið Raunveruleg svik við fullveldi þjóðarinnar Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Ég hef borgað í mörg ár, samt skulda ég meira Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Stríðsyfirlýsing SI Andri Reyr Haraldsson Skoðun Kvótahopp og ESB Eggert Sigurbergsson Skoðun Þrettán foreldrar á tíu árum Vigdís Gunnarsdóttir Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson Skoðun Fólk sem treystir ekki þjóð til að hafa vit fyrir sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Og svo eru flokkar sem byggja á reiði Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun ESB og sjávarútvegurinn: Hver á að ráða hafinu við Ísland? Svanur Guðmundsson Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun