Skallafordómar Dr. Gunni skrifar 22. febrúar 2007 06:00 Söngkonan Britney Spears hefur verið í sviðsljósinu síðustu mánuðina. Hegðun hennar, meðal annars stíft sukk með forhertustu pjásum hins svokallaða skemmtanalífs, hefur bent til þess að ekki sé allt með felldu. Þegar nýjustu fréttirnar flæddu yfir heimsbyggðina má segja að tappann hafi fyrst tekið úr: Britney var búin að snoða sig. Ég saup hveljur eins og móðursjúk kerling og hugsaði: Æ æ, nú er Britney alveg búin að missa það. Stuttu síðar læddist sú hugsun að mér að ég væri haldinn stórfurðulegum skallafordómum sem kæmu úr hörðustu átt. Hvað er þetta eiginlega með hár og hárleysi? Almennt má segja að hár sé fullkomlega tilgangslaust fyrirbæri. Það loðir við skrokkinn og gerir ekkert nema að minna á forfeður okkar í trjánum sem voru of vitlausir til að prjóna peysur. Nú til dags er ekkert gagn að hári. Það skiptir í raun engu hvort það sé þarna eða ekki. Samt hafa myndast flóknar venjur og siðir í kringum það Afhverju er það talið merki um sturlun þegar lokkafagrar konur snoða sig? Er það ekki bara þeirra mál? Er þessi hugsun ekki bara gott dæmi um andlega hlekki kvenna? Á meðan snoðaður kvenmannshaus telst geðveila finnst velflestum gróskumiklir hárbrúskar undir höndum kvenna dæmi um slóðaskap. Órakaðir leggir fara í sama flokk og hamingjan hjálpi mér ef kona sést með loðna efrivör. Nokkuð er á huldu með samfélagslega ásættanlegan hárvöxt á V-svæði kvenna. Þar setja síbreytilegar tískubylgjur strik í reikninginn en eftir því sem ég kemst næst er retro brúskur að koma sterkur inn aftur. Karlkynið fer ekki varhluta af hárfordómunum. Skyndileg snoðun er líka talin merki um geðveiki hjá körlum. Þegar Ingvar E. Sigurðsson var endanlega búinn að missa það í Englum alheimsins snoðaði hann sig og þegar Bob Geldof átti að vera orðinn einna geðveikastur í The Wall var hann látinn raka af sér augabrúnirnar fyrir framan spegil. Það er merki um jafnvel enn meiri sturlun en að snoða sig. Þótt flest bendi til að Britney greyið sé orðin dálítið ringluð á öllu ruglinu leyfi ég mér samt að vona að skallinn sé róttæk femínísk yfirlýsing. Næst sjáum við hana vonandi með kafloðna krika á rauðsokkufundi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið Má endalaust vera níðingur!! Arna Magnea Danks Skoðun „Fór í útkall“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Takk Vigdís! Takk Guðni! Takk Halla! — Takk þjóð! Hjörtur Hjartarson Skoðun Krefjandi tímar í veitingageiranum Einar Bárðarson Skoðun Opið bréf til Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra Kolbrún Georgsdóttir Skoðun Tillaga um hærri vörugjöld á mótorhjól er skref aftur á bak Unnar Már Magnússon Skoðun Um pólitík óttans, öryggisvæðingu fólksflótta og hina ICElensku varðhaldsstöð Sema Erla Serdaroglu Skoðun Silfurfat Samfylkingarinnar Helgi Áss Grétarsson Skoðun Dagur náms- og starfsráðgjafar 2025: Faglegur stuðningur sem skiptir máli – fyrir einstaklinga og samfélagið Jónína Kárdal,Svandís Sturludóttir Skoðun ,,Mig langar svo bara að geta kennt þessum 25 börnum“ Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun
Opið bréf til Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra Kolbrún Georgsdóttir Skoðun
Um pólitík óttans, öryggisvæðingu fólksflótta og hina ICElensku varðhaldsstöð Sema Erla Serdaroglu Skoðun
Dagur náms- og starfsráðgjafar 2025: Faglegur stuðningur sem skiptir máli – fyrir einstaklinga og samfélagið Jónína Kárdal,Svandís Sturludóttir Skoðun
Opið bréf til Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra Kolbrún Georgsdóttir Skoðun
Um pólitík óttans, öryggisvæðingu fólksflótta og hina ICElensku varðhaldsstöð Sema Erla Serdaroglu Skoðun
Dagur náms- og starfsráðgjafar 2025: Faglegur stuðningur sem skiptir máli – fyrir einstaklinga og samfélagið Jónína Kárdal,Svandís Sturludóttir Skoðun