Elvis Presley til bjargar barnsföður Diddu 7. febrúar 2007 09:30 Mina Rakastan sinua elvis flytur lög sem Elvis gerði fræg en enginn er betur til þess fallinn að koma góðu til leiðar en einmitt Elvis. MYND/Anton
Ábreiðusveit flytur öll bestu lög Elvis Presley á tónleikum annað kvöld. Tónleikarnir eru haldnir til að safna fé til að leysa barnsföður skáldkonunnar Diddu úr fangelsi. „Barnsfaðir hennar Diddu situr bak við lás og slá úti á Jamaicu. Og við ætlum að safna pening til að leysa hann út,” segir Kormákur Geirharðsson trymbill. Sérstakir Elvis-tónleikar verða haldnir að kvöldi fimmtudags í vertshúsinu Doma við Þingholtsstræti. Ábreiðusveitin Mina Rakastan Sinua Elvis, sem er finnska og þýðir: Ég elska þig Elvis, mun leika hátt í tuttugu lög sem Elvis Presley gerði fræg á sínum tíma. Fyrir fer skáldkonan Didda. Aðrir í Mina Rakastan Sinua eru Kormákur, Riina Finnsdóttir, Ari Eldon og Þór Eldon. „Enginn segir nei við Diddu,” segir Ari en fyrir tveimur árum tók hljómsveitin fyrir Bessy Smith og gert þá disk í leiðinni. „Allt var gert til að afla fjár til ákveðins verkefnis. Þá var Didda að fara út. Hún kemur alltaf með góðar hugmyndir. Elvis er alveg rakinn.” Ari fellst fúslega á að þessi hópur, sem sprettur kannski einkum upp úr pönki, sé óvæntur flytjandi tónlistar sem Elvis söng. En segir að þegar menn spila tónlist sem þeir hafi ekki snert á áður en þekki finnist annar flötur á henni: „Það hefur gengið vel að ná sambandi við þessa tónlist. Þetta er meira en endurflutningur á henni.” Didda er forsöngvari og tekur í sama streng. „Elvis er bestur. Þetta er ekki að ég sé að stæla hann eða herma eftir honum heldur þakka honum innilega fyrir skemmtunina og stuðninginn í gegnum allt.” Didda segir nafn hljómsveitarinnar hljóma nánast sem blótsyrði. „Farðu til andskotans.” En merkingin er hins vegar þveröfug. „Og finnar taka sér helst ekki þessi orð í munn. Verða skrítnir þegar það er gert.” ein auka Tilgangur tónleikanna er að koma pabba sonar Diddu til bjargar. En ekki hennar manni að sögn skáldkonunnar. Það er aðalatriðið og þetta afbragðs aðferð til þess. Didda á ekki hönk upp á bakið á honum eða hann henni þegar svo margir koma að málum. „Ég er búin að vera að vandræðast með þetta. Hvernig í ósköpunum ég get hjálpað honum án þess að vera komin í einhverja sérkennilega stöðu? Nóg er að eiga með honum barn og sjá um uppeldið þó maður sé ekki sykurmamma líka. En þetta snýst um vináttuna og Elvis. Sem var vinur vina sinna. Ágóðinn fer í að aðstoða mann við að borga sekt til að losa hann úr fangelsi í Jamaica. Þar sem hann hefur verið í eitt ár. Og á ekki fyrir sektinni. Ég veit að enginn vildi hafa pabba sinn í fangelsi ef nokkur leið er að hjálpað honum út.”
Mest lesið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Lífið samstarf Fleiri fréttir „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlistarhátíðinni Lóu aflýst Eltir draumana og þarf að færa fórnir Brian Wilson látinn „Ég var ekki að búast við því að gráta svona“ Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sjá meira