Músiktilraunir í nánd 6. febrúar 2007 08:15 tónlist Músíktilraunir renna upp í mars og er það í 25. skipti sem þær eru haldnar. Myndin var tekin í fyrra.
Nú er farið að kynda undir Músík-tilraunirnar sem verða þetta árið haldnar í Loftkastalanum og lokaúrslitin í Verinu á Seljavegi vestast í vesturbænum gamla í Reykjavík. Grasrótin lengi lifir því nú er að renna upp 25. hátíð bílskúrsbandanna en Músiktilraunir hafa staðið í 26 ár og hafa þar margir fengið sitt brautargengi: fjöldamargar hljómsveitir og tónlistarmenn hafa þar fengið tækifæri til virkrar þátttöku á vettvangi tónlistar. Músíktilraunir verða haldnar í Loftkastalanum vikuna 19.-23. mars en úrslitakvöldið verður haldið í Verinu laugardaginn 31. mars og er þar brugðist við vandræðum liðinni ára þegar margir hafa þurft frá að hverfa því jafnan er fullt á lokakvöldið. Í dag verður opnuð ljósmyndasýning í Ráðhúsi Reykjavíkur við Vonarstræti með ljósmyndum af Músíktilraunum 2006. Til sýnis verða myndir af öllum hljómsveitunum sem tóku þátt í fyrra. Alls er þetta því 51 mynd sem ljósmyndarinn Billi (Brynjar Gunnarsson) tók á undankvöldum Músíktilrauna 2006. Sýningin mun standa til og með sunnudagsins 18. febrúar. Við opnun ljósmyndasýningarinnar verður kynnt samstarf Músiktilrauna og Hins hússins við Icelandair en fyrirtækið veitti í fyrra fyrstu verðlaun í keppninni: skemmti- og kynningarferð til Manchester. Auk Icelandair, Tónabæjar og Hins hússins kemur FÍH, Félag íslenskra hljómlistarmanna, að hátíðinni og allar hljóðfæraverslanir í höfuðborginni sem leggja sitt á vogarskálarnar. Verður brátt opnað fyrir skráningu í Músíktilraunirnar 2007 fyrir hljómsveitir og listamenn af öllu landinu. Eins og jafnan verður útvarpað beint frá hátíðahöldunum á Rás 2 og stefnt er að samningum um beina útsendingu í sjónvarpi á lokakvöldinu.
Mest lesið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira