Alfriðun? 27. október 2006 00:00 Bolli Kristinsson birtist síðastliðinn laugardag í opinskáu viðtali sem einn helsti talsmaður niðurrifssjónarmiða. Þar gengur hann svo langt að harma það að Torfan sjálf hafi ekki verið rifin á sínum tíma. Það eru ansi margar rangfærslur sem koma fram í viðtalinu og ég ætla að svara fáeinum atriðum en leyfa öðrum að vera ósvöruðum í bili. Nú er það svo að Laugavegur hefur hvorki fyrr né síðar verið "alfriðaður". Í dag eru tvö hús friðuð samkvæmt húsafriðunarlögum, annað þeirra fyrir stuttu. Fram til 2003 þegar nýtt deiliskipulag tók gildi mátti samkvæmt eldra skipulagi rífa þau hús sem fólki datt hug. Deilan um Torfuna stóð yfir 1972-1979, það líða 24 ár frá því að Torfan er friðuð þar til að nýtt fyrrnefnt deiliskipulag tók gildi. Á þessu tímabili höfðu kaupmenn og lóðaeigendur svo að segja frjálsar hendur með niðurrif. Að láta í veðri vaka að Torfusamtökin hafi fengið í gegn alfriðun Laugavegs í kringum 1979 eða haft eitthvað að gera með athafnaleysi kaupmanna á þessu tímabili er einfaldlega rangt. Ástæðan fyrir því að ekki var byggt mikið að ráði á þessu tímabili voru helst peningalegar og þær að verslunarmenn höfðu nær eingöngu áhuga á uppbyggingu utan miðbæjarins, þar sem sú skoðun var ríkjandi að fjarlægðir skiptu engu máli lengur með tilkomu sjálfrennireiða. Nokkur dæmi eru þó um að hús væru rifin og byggt í staðinn á tilteknu tímabili þ.e. 1979-2003 . Allar þær umsóknir um niðurrif fóru greiðlega í gegn hjá borgaryfirvöldum nema í eitt einasta skipti spruttu upp deilur og þar voru það íbúar við Laugaveg sem mótmæltu, ekki Torfusamtökin. Hugsanlega urðu einhverja tafir vegna þessa en á endanum hafði húsbyggjandinn samt sitt í gegn svo húsið var reist engu að síður. Skömmu eftir að nýtt deiliskipulag var samþykkt fór af stað töluverð umræða um niðurrif við Laugaveg. Ástæðan fyrir þeirri umræðu var ekki að nýja deiliskipulagið hefði falið í sér meira niðurrif en áður var leyft eins og skilja hefði mátt af umræðunni, heldur það að R-listinn hafði unnið að faglegu undirbúningsstarfi í mörg ár þar sem saman fóru verndunarsjónarmið og heimildir til uppbyggingar. Um tíma leit út fyrir að það sama myndi vera uppi á teningnum hér og í flestum öðrum borgum í Evrópu, það að gamli miðbærinn fengi í friði að geyma sögu og húsagerðarlist fortíðarinnar. Svo varð ekki því á miðjum valdatímanum kúventist stefna þeirra og ætla ég að rekja þá sögu í stuttu máli. 1994 er sett á fót Húsverndarnefnd Reykjavíkur sem átti að koma með verndunartillögur í eldri hverfum Reykjavíkur fyrir komandi deiliskipulag. Þessi nefnd skilaði af sér greinargerð þar sem gert var ráð fyrir að meginreglan yrði að hús eldri en frá 1918 fengju að standa áfram með vísan í þjóðminjalög en meginefnið var hins vegar tillögur að verndun ákveðinna húsa byggð eftir 1918. Fyrsta tillaga að nýju deiliskipulagi árið 2002 fór eftir þessu þema í megindráttum en með nokkrum undantekningum. Það gerði samt sem áður ráð fyrir 50.000 fm uppbyggingu við Laugaveg og nota bene, þetta var ekki aukning á uppbyggingarmöguleikum heldur einfaldlega verið að festa í sessi þá möguleika sem alltaf höfðu verið til staðar, en höfðu fram til þessa ekki verið nýttir. Þessar tillögur gerðu nú í fyrsta skipti í sögu Laugavegs ráð fyrir því að ákveðin hús yrðu ekki rifin. Þær gengu þó ekki jafn langt í verndun og upphafsmenn höfðu vonast til en kannski mætti segja að einhver sáttamiðlun hafi verið þar á ferðinni. Þessari tillögu var hafnað. Var það aðallega vegna mótmæla frá engum öðrum en Bolla Kristinssyni og á endanum var það pólitísk ákvörðun að ákveðið var að skipa nýjan starfshóp til að finna tækifæri til enn frekari uppbyggingar á kostnað gömlu byggðarinnar. Bolli var nánast einráður í þessum nýja samráðshópi. Honum tókst þó einungis að auka heildarflatarmál um 5.000 fm en til þess þurfti að fórna 10-15 húsum meira en upphaflega stóð til. Hvorki meira né minna en 75 prósent af húsum eldri 1918 áttu nú að fara. Það má nefna til gamans að meirihluti þessa starfshóps um endurmat á deiliskipulagi Laugavegs, hefur séð að sér og lýst því yfir að gengið hafi verið of langt. Nú síðustu ár hefur áhugi á uppbyggingu við Laugaveg aukist til muna, en enn og aftur eru það hvorki Torfusamtökin né Reykjavíkurborg sem standa í vegi fyrir framkvæmdum. Lóðaeigendur hafa nánast undantekningalaust ekki sætt sig við leyfilegt byggingarmagn samkvæmt deiliskipulagi sem er þó ærið og vilja sífellt hærri byggingar. Slíkt þarf vitaskuld að ganga í gegnum flókið ferli. Hefur þetta eitt og sér valdið töfum. Aftur á móti þar sem byggt er samkvæmt gildandi deiliskipulagi, eins og við Laugaveg 22a, gengur allt greiðlega í gegn. Einum of greiðlega að sumra mati því þar fór síðasti steinbærinn við Laugaveg. Gott dæmi um þróun mála í dag er Laugavegur 33-35. Þar má rífa einar 5 byggingar og byggja 1 stórt hús samkvæmt deiliskipulagi. Eigandi óskaði eftir aukningu á byggingarmagni og var það heimilað. Með það í vasanum seldi hann lóðina og lét sér nægja gróðann sér til handa sem kom til út frá auknu byggingarmagni. En nýr eigandi lét sér ekki heldur nægja leyfilegt byggingarmagn og sótti aftur um aukningu. Þetta er ekki einsdæmi. Svona hefur verið ástatt um margar lóðir við Laugaveg. Þær ganga kaupum og sölum á síhækkandi verði og eigendur vilja sífellt meira byggingarmagn, oft með það eina að markmiði að selja á hærra verði en keypt var á. Þetta er hægt einungis vegna þess að Reykjavíkurborg er hverful þegar kemur að deiliskipulagsbreytingum. Bráðum, ef það hefur ekki þegar gerst, verða lóðirnar einfaldlega of dýrar til að hægt sé að byggja á þeim, þ.e.a.s. lóðaeigendur ná ekki fram nógu mikilli arðsemi til að bygging nái að borga sig og lóðarverðið. En lóðirnar eru samt góður staður til að geyma peninga sína og engin sérstök pressa hvort sem er að byggja á þeim. Ég er sannfærður um að ef upphaflegt deiliskipulag hefði gengið í gegn þar sem fest hefði verið í sessi verndun ákveðinna húsa, hefðu þau gengið kaupum og sölum á raunvirði og væri að öllum líkindum nú í eigu aðila sem sæi sér hag í að gera við húsin á þeirra eigin forsendum. Það er almenningur sem hefur aftur fengið trú á miðborgarskipulagi og er til þess að miðborgin hefur í sér ótal sóknarfæri sem þurfa þó ekki að vera á kostnað eldri byggðarinnar. Þessi verktakadauði sem nú einkennir Laugaveginn hefði aldrei átt sér stað. Bolli Kristinsson á sjálfur persónulega ótrúlega stóran þátt í því að Laugavegurinn hefur ekki fengið frið til að þróast á eigin forsendum, bæði með aðkomu sinni að deiliskipulagsmálum og einnig með því að hann hefur sjálfur staðið í lóðabraski. Nú er mál að hann verði settur af sem aðal ráðgjafi Reykjavíkurborgar í miðbæjarmálum og faglegar forsendur látnar ráða meiru um verndun og uppbyggingu í eldri hverfum Reykjavíkur. Enda furðulegt að láta mann sem trúir því að betra hefði verið að rífa Torfuna ráða ferðinni í málefnum sem varða eina bæjarhlutann sem byggður er að mestu með gömlum húsum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson Skoðun Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun ESB- umræðan á Íslandi er orðin óþolandi léleg Gunnar Einarsson Skoðun Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson Skoðun Rót stjórnlausa bruðlsins hjá ríki og borg Guðröður Atli Jónsson Skoðun Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland Skoðun Er einhver í áskrift að peningunum þínum? Vésteinn Örn Pétursson Skoðun Sérkennilegur samhljómur Ingólfur Sverrisson Skoðun „Óvægið“ að vitna í lög? Helga Jónsdóttir Skoðun Innleiðingarblekkingin Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Meðvirka fjölskyldan Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sérkennilegur samhljómur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Samstarf um grænni framtíð í borginni okkar Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar Skoðun Þyrnirós Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun „Óvægið“ að vitna í lög? Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Tenging almannatrygginga við launavísitölu – ófyrirséðar afleiðingar fyrir börn og jöfnuð Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Hver hefði haldið? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Frádráttarbært dýraníð Jón Kaldal skrifar Skoðun Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun ESB- umræðan á Íslandi er orðin óþolandi léleg Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland skrifar Skoðun Innleiðingarblekkingin Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Lög að leysa leikskólavandann? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Er einhver í áskrift að peningunum þínum? Vésteinn Örn Pétursson skrifar Skoðun Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra fækkar endó-aðgerðum Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Um gæluverkefnin í Reykjavík Sabine Leskopf skrifar Skoðun Gervigreindin er ekki ógnin. Ábyrgðarlaus notkun hennar er Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Meðgönguþoka: hvað er að gerast í heilanum? Þórhildur Halldórsdottir skrifar Skoðun Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Orkuveita Reykjavíkur – gerum betur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun …og ég vil að þjóðin segi sitt álit Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar lögbundin þjónusta bíður en milljarðar fara í „chillout“ Björg Maggý Pétursdóttir skrifar Skoðun Það sem skiptir máli Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Stóra Hringbrautarmálið Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Bætum heimaþjónustu aldraðra Margrét Björk Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað þýða hraðar breytingar í gervigreind fyrir íslenskt viðskiptalíf? Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland Skoðun
Skoðun Tenging almannatrygginga við launavísitölu – ófyrirséðar afleiðingar fyrir börn og jöfnuð Lúðvík Júlíusson skrifar
Skoðun Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar
Skoðun Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland skrifar
Skoðun Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Gervigreindin er ekki ógnin. Ábyrgðarlaus notkun hennar er Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Þegar lögbundin þjónusta bíður en milljarðar fara í „chillout“ Björg Maggý Pétursdóttir skrifar
Skoðun Hvað þýða hraðar breytingar í gervigreind fyrir íslenskt viðskiptalíf? Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland Skoðun