ÍBV tekur á móti Haukum í Eyjum annað kvöldMynd/E.Ól
Á morgun hefst handboltavertíð vetrarins með formlegum hætti þegar kvennalið ÍBV og Hauka leiða saman hesta sína í Vestmannaeyjum í meistarakeppni HSÍ. Á miðvikudaginn er svo komið að körlunum þar sem Fram og Stjarnan eigast við í Framhúsinu. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.