Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur boðist til að reyna að semja um lausn tveggja ísraelskra hermanna sem skæruliðar Hizbollah rændu í júlí. Mannránin urðu kveikjan að átökum Ísraela og Hizbollah-liða í Líbanon. Stjórnvöld í Ísrael og Líbanon hafa þekkst boð Annans. Hann mun síðan skipa sérlegan fulltrúa sem mun ræða við deilendur á laun.
Býðst til að semja um lausn hermanna
