Meðlimur ungliðahreyfingarinnar játar á sig tölvuinnbrotin 4. september 2006 12:45 Frá Stokkhólmi MYND/Reuters
Sænski Sósíaldemókrataflokkurinn hefur kært Þjóðarflokkinn þar í landi fyrir umfangsmikla tölvuglæpi, eftir að upp komst að flokksmenn hinna síðarnefndu höfðu ítrekað brotist inn á lokað netsvæði sósíaldemókrata. Ungur meðlimur Þjóðarflokksins hefur viðurkennt sök sína í málinu. Á meðal þeirra upplýsinga sem finna mátti á innra neti sósíaldemókrata var skipulag kosningabaráttu þeirra sem nú stendur sem hæst, en þingkosningar fara fram í Svíþjóð eftir tæpar tvær vikur. Það mun hafa vakið grunsemdir sósíaldemókratanna hversu vel Þjóðarflokkurinn svaraði kosningabaráttu þeirra en það var blaðamaður Dagens Industri sem kom upp um glæpinn. Að sögn ritara Þjóðarflokksins, Johan Jakobsson, liggur ekki fyrir hversu oft var brotist inn á vefsvæði andstæðinganna þeirra en segir að um þó nokkur tilvik sé að ræða, frá því í nóvember í fyrra fram í mars á þessu ári. Tuttugu og fjögurra ára ungliði í sænska Þjóðarflokknum játaði á sig glæpinn í morgun og sögn Jakobsson hefur honum þegar verið vikið úr flokknum. Enginn forsvarsmanna ungliðahreyfingar Þjóðarflokksins vill tjá sig um málið, heldur vísa þeir á forystu flokksins.
Erlent Fréttir Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira