
Innlent
Bíll valt á Sæbrautinni
Ökumaður velti bíl sínum á Sæbrautinni til móts við Seðlabankann um klukkan tíu í morgun. Svo virðist sem hann hafi misst stjórn á bifreiðinni í beygju en hún er nokkuð kröpp þar sem nú standa yfir framkvæmdir á svæðinu vegna byggingar tónlistar- og ráðstefnuhúss. Ökumaðurinn slasaðist lítillega í veltunni en bíllinn er mikið skemmdur að sögn lögreglu.
Fleiri fréttir
×