Vínarvalsar hljóma 28. desember 2006 17:00 Þóra Einarsdóttir söngkona.
Það er komið að árlegum æsingi og eftirvæntingu hjá þeim þúsundum aðdáenda Vínartónlistar sem þyrpast í Háskólabíó á fyrstu viku nýja ársins og heyra Sinfóníuhljómsveit Íslands skella sér í sína árlegu Vínartónleika. Þeir verða þann 3.–6. janúar næstkomandi. Ekki duga færri en fernir tónleikar til að svala löngun Íslendinga í Vínartónlist í þetta sinn og ef litið er til reynslu fyrri ára má reikna með að uppselt verði á alla tónleikana. Efnisskráin er að mestu prýdd þokkafullum perlum Strauss-feðga enda er vandséð hvernig hinir fjörugu Vínartónleikar Sinfóníunnar væru jafn vinsælir ár eftir ár án þátttöku þeirra feðga. Hljómsveitin hélt sína fyrstu Vínartónleika 1972, en frá 1981 hafa þeir verið fastur og ómissandi liður á efnsskrá hljómsveitarinnar. Á þessum tíma hafa tugþúsundir Íslendinga flykkst á Vínartónleika og gert þá að vinsælustu tónleikum Íslandssögunnar. Góðir gestir Sinfóníunnar í ár eru sópransöngkonan Þóra Einarsdóttir og hljómsveitarstjórinn Christopher Warren-Green. Þóru þarf vart að kynna, svo oft hefur hún heillað tónleikagesti jafnt á íslensku sem erlendu tónleikasviði með lýrískum flutningi sínum. Þóra kemur heim til þessa tónleikahalds. Warren-Green hefur um langt skeið verið tónlistarstjóri Kammersveitar Lundúnaborgar. Hann hóf feril sinn sem fiðluleikari og ekki er ólíklegt að hann freistist til þess að handleika hljóðfærið við þetta tækifæri. Tónleikarnir 3., 4. og 5. janúar hefjast kl. 19.30 en tónleikarnir laugardaginn 6. kl. 17. Nokkur sæti eru laus á tónleikana 5. og 6. en fleiri sæti eru enn á boðstólum 3. og 4. Miðasala er í Háskólabíói.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Lífið „Hún er komin til að vera“ Tónlist Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira