Kona á fertugsaldri hefur verið fundin sek um að slá aðra konu ítrekað í höfuðið með dauðum chihuahua-hundi. Konan, Lisa Hopfer, gæti átt yfir höfði sér allt að átján mánaða fangelsisdóm fyrir árásina. Þetta kemur fram á vef bandaríska dagblaðsins St. Lois Today.
Í réttarhöldunum hélt fórnarlamb árásarinnar því fram að Hopfer hefði hringt dyrabjöllu hennar margoft og ruðst inn þegar hurðin var opnuð, vopnuð hundinum. Upphófust þá barsmíðarnar og var hundinum slegið í höfuð konunnar að minnsta kosti þrjátíu sinnum.