Birkir Jón stýrir fjárlaganefnd 24. ágúst 2006 06:15 Birkir Jón Jónsson Nýr formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, er nýr formaður fjárlaganefndar Alþingis. Hann tekur við starfinu af Magnúsi Stefánssyni sem varð félagsmálaráðherra í sumar. Framsóknarmenn gengu frá nýrri skipan í nefndir þingsins á þriðjudagskvöld vegna breytinganna sem urðu á þingliði flokksins í júní. Ég hef átt sæti í nefndinni allt þetta kjörtímabil og er því orðinn nokkuð kunnugur störfum hennar, sagði Birkir Jón í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann sagði stefnubreytingu á störfum nefndarinnar ekki liggja fyrir, nefndarmenn eigi eftir að setjast niður og ræða hvernig vinnunni verði háttað í haust. Guðjón Ólafur Jónsson, sem tók sæti Árna Magnússonar á þingi, tekur við formennsku í heilbrigðis- og trygginganefnd af Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra. Guðjón verður einnig varaformaður allsherjarnefndar auk þess að setjast í fjárlaganefnd og sjávarútvegsnefnd. Sæunn Stefánsdóttir tekur sæti í fjórum fastanefndum þingsins, þar á meðal efnhags- og viðskiptanefnd og utanríkismálanefnd. Jón Kristjánsson, fyrrverandi ráðherra, verður varaformaður utanríkismálanefndar en sest einnig í samgöngunefnd auk forsætisnefndar.
Innlent Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Innlent Afsögn enn ódagsett Innlent Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Innlent Fleiri fréttir Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sjá meira