Þykir áfall fyrir Tony Blair 14. júlí 2006 07:15 Levy lávarður. Handtaka hans gæti hraðað brotthvarfi Blairs úr stjórnmálum.
Breska lögreglan hefur yfirheyrt 48 manns í tengslum við ásakanir um að Tony Blair forsætisráðherra hafi séð til þess að fjársterkir einstaklingar fengju sæti í lávarðadeild breska þingsins í skiptum fyrir veglegan fjárstuðning við Verkamannaflokkinn. Náinn félagi Blairs og sérlegur sendifulltrúi hans í Mið-Austurlöndum, Levy lávarður, sem hefur séð um fjáröflun fyrir Verkamannaflokkinn, var handtekinn á miðvikudag í tengslum við þetta mál, en honum var síðan sleppt úr haldi gegn tryggingu. Lögreglan segir að Levy hafi verið handtekinn til þess að hún geti komist yfir skjöl, sem nauðsynleg eru fyrir rannsóknina. Ekki er víst að Levy verði ákærður, en handtakan þykir áfall fyrir Blair og gæti hraðað brotthvarfi hans úr stjórnmálum. Ekkert hefur verið gefið upp um það hvort Blair sé sjálfur meðal þeirra, sem lögreglan hefur kallað til yfirheyrslu, en skrifstofa Blairs heldur því fram að lögreglan hafi ekki sóst eftir því að yfirheyra forsætisráðherrann. Lögreglan mun skila frá sér skýrslu til saksóknara síðar á árinu, og þá fyrst verður tekin ákvörðun um hvort málið kemur til kasta dómstóla. Blair hefur viðurkennt að Verkamannaflokkurinn hafi með leynd þegið fé frá mönnum, sem hann síðar tilnefndi til sætis í lávarðadeildinni.
Erlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira