Menezes skotinn vegna mistaka 17. ágúst 2005 00:01
Mistök leiddu til þess að breskir lögreglumenn skutu til bana brasilískan mann sem þeir töldu hryðjuverkamann, í Lundúnum fyrir nokkru. Lögreglumennirnir skutu Jean Charles de Menezes átta sinnum á neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum þann tuttugasta og annan júlí síðastliðinn, daginn eftir seinni hrinu árása í borginni. Upphaflega var sagt að Menezes hefði verið klæddur í þykka úlpu, sem þótti dularfullt í sumarhitanum og vakti grunsemdir um að hann hefði falið sprengju innan klæða. Ennfremur var sagt að hann hefði hlaupið undan lögreglumönnum sem reyndu að stöðva hann, stokkið yfir hlið á lestarstöðinni og skotist inn í lest. Nú er komin fram önnur útgáfa atburðarásarinnar, en fréttastöðun ITV komst yfir skýrslu lögreglunnar um atburðina. Hún er byggð á frásögn sjónarvotta og myndum úr eftirlitsmyndavélum. Í skýrslunni segir að Menezes hafi ekki verið í þykkri og dularfullri úlpu, að hann hafi gengið í rólegheitum gegnum lestarstöðina og stoppað til að ná sér þar í dagblað. Hann steig um borð í næstu lest og þar stöðvaði öryggisvörður för hans. Því næst var hann skotinn til bana. Í skýrslunni er sagt að hugsanlega hafi aðgerðin klúðrast þegar einn lögreglumannanna hafi brugðið sér á salernið. Einmitt þá hafi Menezes komið út úr húsinu sem fylgst var með. Þetta þykir áfall fyrir Ian Blair, lögreglustjóra Lundúna, og hefur þegar verið krafist rannsóknar á atburðunum og frásögn lögreglunnar í kjölfarið
Erlent Fréttir Hryðjuverk í London Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira