Búið að ná öllum líkum 11. júlí 2005 00:01
Búið er að ná öllum líkum úr neðanjarðarlestunum sem sprengdar voru í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag. Öryggisgæsla hefur enn verið hert í borginni þar sem mennirnir sem frömdu hryðjuverkin í síðustu viku eru enn á lífi og eru taldir undirbúa aðra árás. Breska dagblaðið Times heldur því fram í dag að hryðjuverkamennirnir séu að leggja á ráðin um frekari árásir á Lundúnir. Þar segir að allt tiltækt lið lögreglu og öryggissveita sé nú í viðbúnaðarstöðu auk þess sem hermenn hafi verið kallaðir til aðstoðar. Fjörutíu og níu manns létu lífið í sprengjuárásunum á fimmtudag og meira en sjö hundruð særðust, þar af tugir alvarlega. Talið er að tekist hafi að ná öllum líkum úr neðanjarðarlestunum sem sprengdar voru í árásinni en leitarmenn eru þó enn við störf við lest sem sprengd var á milli King´s Cross stöðvarinnar og Russel Square. Rannsókn á árásunum beinist nú að myndum frá King´s Cross lestarstöðinni þar sem talið er að hryðjuverkamennirnir hafi ráðið ráðum sínum fyrir árásirnar. Lögreglu hefur borist um sautján hundruð vísbendingar frá almenningi en að svo stöddu hefur enginn hryðjuverkamaður verið handtekinn. Lífið í Lundúnum virtist komið í fyrra horf snemma í morgun þegar flestir borgarbúar mættu til vinnu í fyrsta sinn eftir hryðjuverkin. Margir hafa komið við á King´s Cross stöðinni og lagt blóm til minningar um þá sem létust í árásinni í síðustu viku en flestir borgarbúar leggja áherslu á að láta ekki voðaverkin trufla daglegt líf þeirra.
Erlent Fréttir Hryðjuverk í London Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira