Viðbúnaðarstig í London hækkað 10. júlí 2005 00:01
Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram, en fyrrverandi lögreglustjóri Lundúna telur hryðjuverkamennina innlenda. Enn er reynt að bjarga líkum úr lestargöngum við King's Cross, við erfiðar aðstæður. Viðbúnaðarstigið hefur nú verið hækkað upp á hæsta stig í Bretlandi, en það var lækkað skömmu eftir þingkosningarnar í maí. Öryggissérfræðingar BBC segja þetta til marks um að hætta sé talin á frekari árásum. Enn er leitað líka í lestargöngum við King's Cross, þar sem aðstæður eru allar mjög erfiðar. Björgunarmenn hafa átt mjög erfitt með að athafna sig og því er ekki enn vitað hversu mörg lík eru í göngunum. Ekki færri en tuttugu og fimm er enn saknað. Fyrrverandi lögreglustjóri Lundúnaborgar, John Stevens, skrifar grein í dagblað í dag þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að yfirgnæfandi líkur séu á að árásarmennirnir séu breskir, en ekki útlendingar. Allt tal um útlenda árásarmenn sé draumóratal, því mestar líkur séu á því að breskir þegnar, sem hlotið hafi þjálfun í búðum al-Qaeda, hafi verið að verki. Að Stevens sögn er talið að um þrjú þúsund breskir ríkisborgarar hafi sótt slíkar búðir. Hann segir jafnframt að lögreglan hafi komið í veg fyrir átta árásir af sama tagi á undanförnum fimm árum. Þrjár hreyfingar íslamskra öfgamanna hafa gengist við tilræðunum í Lundúnum.
Erlent Fréttir Hryðjuverk í London Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira