Hóta Dönum og Ítölum sömu meðferð 7. júlí 2005 00:01 "
Hin Leynilegu samtök heilags stríðs al-Kaida í Evrópu" sem lýst hafi sig ábyrg fyrir hryðjuverkunum í London í gær hafa hótað Dönum og Ítölum sömu örlögum styðji þessar þjóðir áfram við bakið á Bandaríkjamönnum í hernaði þeirra í Írak og Afganistan. Þrátt fyrir að samtökin séu lítið sem ekkert þekkt telja sérfræðingar alls ekki loku fyrir það skotið að þau beri í raun og veru ábyrgð eins og þau hafa lýst yfir. Sömu samtök kváðust einnig ábyrg fyrir sprengjunum í Madríd í maí á síðasta ári þegar 198 manns létu lífið og segja í yfirlýsingu á arabískri heimasíðu að löngum hafi Bretar verið varaðir við slíkum aðgerðum. Samtökin ítreka ennfremur hótanir sínar gagnvart Dönum og Ítölum og segja að þeirra bíði svipaðar aðgerðir dragi þau hermenn sína ekki frá Írak og Afganistan hið fyrsta. Stjórnvöld í báðum löndum hafa tekið heils hugar undir yfirlýsingar annarra þjóðarleiðtoga heimsins og fordæmt hryðjuverkin í London og heitið því að láta ekki undan síga vegna hótana og ofbeldis ofstækismanna.
Erlent Fréttir Hryðjuverk í London Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira