Blómaborgin er alltaf í tísku 30. maí 2005 00:01
Íslendingum mun finnast San Francisco, nýjasti áfangastaður Icelandair, vera þægileg borg, að minnsta kosti á bandarískan mælikvarða. Í borginni sjálfri búa ekki nema um 750 þúsund manns og því virðist allt næstum vera í göngufæri. Þegar blaðamaður fór þangað fyrir fimmtán árum var gengið á milli hverfa eins og ekkert væri. Nú er mælt með sporvögnunum sem ganga upp og niður allar helstu hæðirnar. Það getur nefnilega reynt á lungu og kálfa að ætla sér að ganga um þessa hæðóttu borg. Hvort sem ferðast er með börn eða ekki er margt að sjá og gera í borginni og næsta nágrenni. Það sem þykir alveg ómissandi er skoðunarferð að Golden Gate-brúnni, einni frægustu brú í heimi, að rölta um Fisherman's Wharf, bryggjuhverfi San Francisco-búa, og gæða sér á nýveiddum krabba. Þar er einnig sædýrasafn sem gaman er að skoða. Frá nokkrum bryggjum eru reglulegar siglingar um flóann, og þaðan er einnig siglt út að hinu fræga eylandsfangelsi Alcatraz. Fyrir þá sem hafa áhuga á menningu og eru á ferðinni snemma árs er hægt að skella sér á sýningu hjá San Francisco-ballettinum, sem er undir stjórn Helga Tómassonar. Sýningar standa frá janúar til maíbyrjunar ár hvert. Söfn eru mörg í borginni, og hægt að byrja á flugvellinum þar sem ávallt er einhver myndlistarsýning í gangi. Þá er hægt að kíkja í San Francisco Museum of Modern Art eða vísindasafnið Exploratorium, þar sem fiktarar á öllum aldri ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þó að hátt í fjórir áratugir séu liðnir frá hippasumrinu 1967 er ágætislíf í hippahverfinu Haight-Ashbury. Mælt er með að tekinn sé leigubíll þangað til að upplifa annars konar mannlíf en finnst við aðra helstu áfangastaði ferðamanna í borginni. Í verslunum í þessu hverfi má finna allt frá lífrænu fæði í villtustu hárkollur og dragfatnað í öllum stærðum. Efst á Haight-stræti má svo finna almenningsgarð þar sem börnin í hverfinu æfa fótbolta og heimilislausir koma saman til að hvíla sig, spjalla og spila músík. Flestir kjósa samt að versla við Union Square, þar sem helstu verslanirnar eru. Allir finna eitthvað við sitt hæfi einhvers staðar í borginni, ekki síst þegar sólin skín og stutt er í næstu ísbúð. Blaðamaður flaug til San Francisco á vegum Icelandair.
Ferðalög Mest lesið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Oft upplifir fólk leiða og depurð eftir gott sumarfrí Áskorun Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira