23 þúsund borgarar taldir af 24. apríl 2005 00:01
Talið er að fleiri en þrjátíu þúsund manns, þar af 23 þúsund óbreyttir írakskir borgarar, hafi látið lífið í átökum í Írak frá því Bandaríkjamenn og Bretar gerðu innrás í landið fyrir rúmum tveimur árum. Enn hækkar tala fallinna í Írak. Að minnsta kosti sex létust og þrjátíu særðust í tveimur sjálfsmorðsprengingum sem gerðar voru í námunda við lögregluskóla í bænum Tíkrit í morgun. Fyrri sprengjan sprakk þegar árásarmaðurinn ók bifreið að byggingunni. Fjöldi fólks þusti að til að aðstoða særða þegar önnur bifreið kom aðvífandi og önnur sprengja reið af. Á sama tíma gerðu uppreisnarmenn sprengjuárás á bílalest breska hersins í bænum Amrah þar sem írakskur karlmaður, sem ók bifreið í námunda við sprenginguna, særðist auk konu og barns sem voru með honum í bílnum. Hingað til hefur Amrah talist til friðsæls svæðis en þetta var önnur árásin sem þar er gerð á einum sólarhring. Ekkert lát er á ofbeldisverkum uppreisnarmanna í Írak. Í gær létust þrettán Írakar og 39 særðust í árásum sem gerðar voru í og við höfuðborg landsins, Bagdad. Ljóst er að leiðin til lýðræðis í Írak reynist dýrkeypt. Frá því í mars árið 2003 hafa 1733 hermenn bandamanna fallið. Talið er að á milli fimm og sex þúsund írakskir her- og lögreglumenn hafi látist. Fjöldi fallinna írakskra borgara er talinn vera allt að 23 þúsund.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira