Hvernig verður maður... 11. apríl 2005 00:01
Lyfjatæknar starfa aðallega við afgreiðslu í apótekum eða lyfjaverslunum. Þeir starfa einnig í lyfjabúrum sjúkrahúsa og í lyfjaverksmiðjum. Lyfjatæknar eru lyfjafræðingum til aðstoðar og vinna ýmis verk undir þeirra leiðsögn, svo sem við blöndun lyfja og afgreiðslu lyfja skv. lyfseðli. Starfsheiti lyfjatækna er lögverndað. NÁMIÐ Námið tekur fjögur ár og er um 140 einingar. Náminu má skipta í þrennt; aðfararnám, nám á lyfjatæknibraut og starfsþjálfun í apóteki í tíu mánuði á námstímanum. Að loknu námi og starfsþjálfun útskrifast nemendur og fá sérstaka löggildingu frá heilbrigðisráðherra. Þeir mega þá kalla sig lyfjatækna. HELSTU NÁMSGREINAR Í aðfararnáminu eru kenndar almennar greinar á borð við íslensku, tjáningu, ensku, dönsku, sálarfræði, efnafræði, líffærafræði, lífeðlisfræði og stærðfræði. Aðfararnámið tekur tvö ár. Að aðfararnámi loknu taka sérgreinar við; svo sem afgreiðslutækni, almenn lyfjafræði, hjúkrunarvörur og sjúkragögn, lyfhrifafræði, lyfjahvarfafræði, lyfjagerð og sjúkdómafræði. Sérgreinarar er einungis hægt að læra í lyfjatæknibraut Fjölbrautaskólans við Ármúla. INNTÖKUSKILYRÐI Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi. Þeir sem hafa lokið stúdentsprófi af náttúrufræðibraut geta hafið nám í sérgreinum lyfjatæknibrautar. Mögulegt er að bæta við lyfjatækninámið og ljúka stúdentsprófi á starfsmenntabraut. TIL FRÓÐLEIKS @megin:Lyfjatækniskóli Íslands tók til starfa haustið 1974. Frá árinu 1960 hafði Apótekarafélag Íslands boðið upp á kvöldnámskeið fyrir starfsfólk apótekanna. Konur sem sóttu námskeiðin kölluðust defektrísur. Það var ekki fyrr en með stofnun Lyfjatækniskólans að lyfjatæknir verður starfsheiti. Vorið 1992 var Lyfjatækniskólinn lagður niður en endurreistur í sama mund sem námsbraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Haustið 2004 var síðan tekin í notkun ný námsskrá í lyfjatækni og námið lengdist úr 140 einingum í 162 einingar.
Atvinna Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira