Hvernig verður maður... 1. apríl 2005 00:01
Kvikmyndagerðarfólk starfar við kvikmynda- og auglýsingagerð eins og starfsheitið gefur að nokkru leyti til kynna. INNTÖKUSKILYRÐI Nemandi þarf að lágmarki að hafa lokið 30 einingum í framhaldsskóla en nemendur með stúdentspróf af upplýsinga og tæknibrautum, listnámsbrautum eða með sveinspróf í tæknigreinum, smíði eða hönnun, ganga fyrir. Teknir eru inn 12 nemendur á önn vor og haust, og valið er inn eftir inntökuviðtölum. Ekki er gerð krafa um reynslu í kvikmyndagerð. NÁMIÐ Kvikmyndagerð er kennd við Kvikmyndaskóla Íslands sem er til húsa að Laugavegi 176, þar sem Sjónvarpið hafði starfsemi sína áður. Hluti kennslunnar fer einnig fram hjá sjónvarpsstöðvum og kvikmyndafyrirtækjum sem staðsett eru víðsvegar um borgina. Námið tekur tvo vetur eða 4 annir. Seinni veturinn er að hluta starfsþjálfun hjá framleiðslufyrirtækjum og sjónvarpsstöðvum Námið er framleiðslutengt og meginhluti þess á verklegar æfingar af ýmsu tagi. Nemendur búa til kvikmyndir og sjónvarpsefni og nýta þannig þá fræðilegu þekkingu sem þeir öðlast í fyrirlestrum, til leysa raunveruleg verkefni (sjónvarpsþættir, heimildarmyndir, tónlistarmyndbönd, margmiðlunarverkefni, leiknar sjónvarpsmyndir, stuttmyndir o.s.frv). Í upphafi er lögð áhersla á að nemendur öðlist skilning á myndmáli og framleiðsluferli kvikmynda. Síðar beinist námið að hnitmiðaðri tæknikennslu þar sem nemendur eru undirbúnir fyrir störf í hinum margþætta kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði. HELSTU NÁMSGREINAR: Auglýsingar Efnisfræði Framleiðsla Handritsgerð Heimildamyndir Inngangur að sjónvarpsfræðum Inngangur að kvikmyndafræðum Myndmál og meðferð þess Kvikmyndaverk Nýjasta tækni og vísindi Samningar og kjör Skoðun kvikmynda Sjónvarpsþættir og fréttavinnsla Skipulag og stjórnun. Starfsþjálfun Taktur og tími Tónlistarmyndbönd Tæki og tækni í kvikmyndagerð Útlit myndar FRAMHALDSNÁM: Hægt er að stunda frekara framhaldsnám víða erlendis. Þekktustu skólarnir eru í New York, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.
Atvinna Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira