Íslendingar dásama siglingar 10. mars 2005 00:01 "
Siglingar eru einstaklega þægilegur ferðamáti. Þar eru farþegar um borð í lúxusskipi meðan þeir njóta lystisemda þess sem skipið hefur upp á að bjóða í drykkjum, þjónustu, skemmtunum og mat. Í þessum ferðum er farið á bestu staði sem völ er á og ég leiði fólk áfram í hinum ýmsu skoðunaferðum," segir Lilja Hilmarsdóttir, fararstjóri í siglingaferðunum hjá Heimsferðum. Í siglingunni um Miðjarðarhafið er siglt með Costa Magica, nýjasta og glæsilegasta skipi skipafélagsins Costa Cruises. Ferðirnar eru annars vegar 16. til 30. júní og hins vegar 15. til 29 september en siglt er um Ítalíu, Spán, Túnis og Möltu. Í vorferð er dvalið við Garda-vatn í fjórar nætur og boðið verður upp á siglingar um vatnið og kynnisferð til Verona. Einnig er dvalið þrjár nætur í Rapallo, strandbæ við Genúa-flóann. Í haustferð er dvalið fjórar nætur í Rapolla og í lok ferðar er dvalið þrjár næstu í smábæ við Garda-vatn. Siglingin á Dóná er 28. júlí til 11. ágúst en Dóná er næstlengsta fljót Evrópu. Siglt er um söguslóðir Evrópu og farið um Passau, Linz, Vín, Eztergom, Búdapest, Bratislava, Durnstein og Melk. og kynnast farþegar Þýskalandi, Austurríki, Slóvakíu, Ungverjalandi og Slóveníu vel. "Dónársiglingin er ferð sem hefur vissulega komið á óvart og er gríðarlega vinsæl. Þar er siglt til menningarborga í Evrópu, eins og Vín og Búdapest, og stoppað þar í dágóðan tíma. Ferðalangar geta því gefið sér tíma og nýtt tækifærið til að skoða þessar borgir. Siglt er í gegnum dásamleg héruð og þessi sigling er algjör augnakonfekt," segir Lilja sem hefur mikla reynslu af fararstjórn og hefur komið víða við. "Ég er búin að vera fararstjóri í tuttugu ár. Ég var hjá Samvinnuferðum í mörg ár og flutti mig síðan yfir til Heimsferða. Það var fyrst boðið upp á siglingar árið 1999 en Íslendingar hafa verið að taka einstaklega vel í þær ferðir. Fólk dásamar þennan ferðamáta enda er hann gjörsamlega yndislegur. Maður er alveg kyrr og þarf ekki að hugsa um að fara í og úr rútu, taka upp úr töskunum og vera sveittur við að pakka niður í þær aftur. Þetta er algjör afslöppun í vel útbúnum klefum með heimsklassa þjónustu."Siglingarnar hjá Heimsferðum hafa notið mikilla vinsælda meðal Íslendinga en hér sést skipið sigla á Dóná.
Ferðalög Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Smáralind breytist í tímavél um helgina Lífið samstarf Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira