Árásargirni í fingralengd 8. mars 2005 00:01
Fingralengd karlmanna getur gefið vísbendingar um hversu árásargjarnir þeir eru ef marka má niðurstöður kanadískra vísindamanna sem starfa við Háskólann í Alberta. Niðurstöðurnar eru eitthvað á þá leið að því styttri sem vísifingurinn er í samanburði við lengd baugfingurs því árásargjarnari er maðurinn. Þetta á þó eingöngu við um líkamlega árásargirni en ekki andlega, að sögn vísindamannanna. Baugfingur og vísifingur kvenna eru yfirleitt álíka langir en baugfingur karlmanna er í flestum tilvikum mun lengri en vísifingur. Fyrri rannsóknir benda einnig til að því lengri sem baugfingurinn er á karlmanninum, og því samhverfari eða symmetrískari sem hönd hans er, því frjórri sé hann. Dr. Peter Hurd, sem stjórnaði rannsókninni, hyggst nú rannsaka hvort karlmenn með kvenlegri fingralengd hafi meiri tilhneigingu til þunglyndis en hinir.
Heilsa Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira