Gangan besta heilsubótin 14. febrúar 2005 00:01
Unnur Alfreðsdóttir, iðjuþjálfi hjá Janus endurhæfingu, kveðst aldrei hafa verið í betra formi en þegar hún gekk daglega til vinnu sinnar sem tók hana 50 mínútur hvora leið. Eftir það "flaug" hún upp fjöllin. "Ég bjó í mörg ár í Kópavogi en gekk til Reykjavíkur í vinnu í Háaleitishverfinu og verð að segja að það er einhver sú besta heilsurækt sem ég hef stundað á ævinni," segir Unnur. Hún kveðst um svipað leyti hafa farið að stunda fjallgöngur í fyrsta skipti og nánast ekkert fundið fyrir þeim. Þrekið og þolið hefði komið algerlega af sjálfu sér. Hún hlær þegar hún viðurkennir að hafa verið orðin hálf manískur gönguþjarkur. "Ég fann að það pirraði mig ef ég missti úr dag og hef aldrei orðið svona háð neinni líkamsrækt. Að þiggja far í vinnuna var ekki inni í myndinni og ég gekk nánast í hvaða veðri sem var." Hún kveðst hafa dottið inn í þetta mynstur eiginlega af tilviljun. "Ég átti ekki bíl og var orðin svo leið að bíða eftir strætó að ég byrjaði að labba. Fyrst út á næstu stoppistöð og svo bara alla leið." Unnur kveðst hafa flutt til Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og þá styttust göngurnar. "Ég var ekki nema kortér í vinnuna og til að byrja með reyndi ég að búa mér til lengri leiðir en sprakk á því. Svoleiðis gerviaðferðir eru ekki nógu góður rammi til að styðja við mann," segir hún og er þessu næst beðin að lýsa afrekum sínum í fjallgöngum. "Ég hef farið nokkrum sinnum með hópnum Gönguhrólfum um fjöllin á Mallorka og einnig í ítölsku Alpana. Svo var ég í gönguklúbbi með góðu fólki til margra ára sem fór yfir skörð og inn í firði, bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum. Þetta voru allt yndislegar ferðir." Nú á Unnur orðið bíl og þar með er göngum í vinnuna lokið en í staðinn skutlast hún á bílnum í Sundlaug Kópavogs og stundar þar sína líkamsrækt. "Það hentar mér ágætlega en ég hef aldrei verið í eins góðu formi eins og þegar ég gekk daglega í og úr vinnu," segir hún að lokum.
Heilsa Mest lesið Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið Martin og Anna María selja hönnunaríbúð í Garðabæ Lífið Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Lífið Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Lífið Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tónlist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Lífið Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Bíó og sjónvarp „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Lífið Fleiri fréttir Ráðin nýr verkefnastjóri menningar í Kópavogi Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira