Snjóflóðahætta liðin hjá 13. október 2005 15:20
Íbúar í tveimur íbúðarhúsum af þremur á bæjum í Reynishverfi í Mýrdal, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gærkvöldi, fengu að snúa aftur heim fyrir stundu. Fólkið rýmdi hús sín að tilmælum Almannavarnanefndar Vestur-Skaftafellssýslu og gistu á öðrum bæjum í nótt. Í gærkvöldi féll snjóflóð í grennd við bæinn Garða í Reynishverfi og var þá ákveðið að rýma Garða og tvö hús í viðbót. Þá hefur annað lítið flóð fallið í grennd við bæinn Lækjarbakka en án þess að valda tjóni. Talsvert snjóaði eystra í nótt en það er þurr púðursnjór og hefur ekki safnast í skafla. Bændur fengu að gegna búpeningi sínum á bæjunum í morgun en að loknu ítarlegu mati fékk fólk af tveimur bæjunum að snúa heim fyrir stundu. Íbúar eins þurfa áfram að dvelja annars staðar. Mikill snjór er á svæðinu en veðurspá er hagstæð, eða fram á fimmtudag að spáð er stórhríð sem á svo að breytast í rigningu. Við það geta skapast hættuleg skilyrði. Tvö snjóflóð féllu úr Kirkjubólshlíð í gærkvöldi og lokuðu þjóðveginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Vegna frekari flóðahættu var ekki ráðist í að ryðja veginn í gærkvöldi en vegagerðarmenn opnuðu veginn snemma í morgun.
Fréttir Innlent Veður Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Sjá meira