Góð fjármálaráð 18. ágúst 2004 00:01
Ég er með húsbréf til 25 ára, búin að greiða 77 af 298 greiðslum. Eftirstöðvar með verðbótum eru 5,7 milljónir, vextir 5,1%. Ég á 2 milljónir í banka, var að spá í hvernig dæmið kæmi út ef ég borgaði lánið niður eða hvort ég ætti að eiga þessa peninga í banka! Kveðja, Rósa. Sæl Rósa. Ég á erfitt með að svara spurningu þinni nákvæmlega en ég get gefið þér vísbendingar. Meginreglan hjá mér er að skipta útgjöldum heimilisins í þrennt: Sparnað, neyslu og skuldir. Næst er að spyrja sig hvað maður vilji gera við hvern útgjaldalið fyrir sig. Ég hef til dæmis bent á að það er hægt að spara þrátt fyrir erfiða skuldastöðu og óháð því hverjar tekjurnar eru. En það er engin ástæða til þess að spara ef maður veit ekki til hvers. Sumir virðast einfaldlega spara til þess eins að spara og deyja svo frá öllu saman. Þetta er frekar galinn sparnaður og mæli ég heldur með að honum sé eytt. Skuldir eru útgjaldaliður sem ég hef litla samúð með og hef því ráðlagt fólki að losa sig við þær sem fyrst. Ég er í rauninni að hvetja þig, Rósa, til þess að halda áfram að spara milljónirnar tvær, en að þú veltir fyrir þér til hvers þú ert að spara þær. Ætlar þú til dæmis að kaupa þér eitthvað, fjárfesta eða nota sparnaðinn sem öryggissjóð? Viljir þú hins vegar lækka greiðslubyrði húsnæðislánsins skaltu nota milljónirnar til þess að greiða lánið niður. Ef þú vilt greiða upp allar skuldir þínar sem fyrst mæli ég með að þú notir veltukerfi Fjármála heimilanna og haldir sparnaðinum. Ég vona að ég hafi getað svarað þér, Rósa, þó að ég hafi ekki sagt þér nákvæmlega hvað best sé að gera. Kær kveðja, Ingólfur Hrafnkel
Fjármál Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira