Mamma, ég þarf að gubba! 26. júlí 2004 00:01
Bílveiki getur verið hið versta mál og komið í veg fyrir að fólk njóti annars skemmtilegra ferðalaga. Bílveikin er skilgreind sem ein tegund af ferðaveiki sem fólk getur fundið fyrir þegar það ferðast í bíl, flugvél, skipi, lest eða fer í tívolítæki. Ástæðan fyrir veikinni er sú að heilanum berast misvísandi boð frá hinum ýmsu skynfærum líkamans um stöðu hans og afleiðingin er vanlíðan. Það er sem betur fer af sem áður var að foreldrar taki upp tóbakið sitt um leið og búið er að pakka farangri og börnum í bílinn. og kveiki sér í digrum vindlum og sígarettum. Langþráð sumarfrí fjölskyldunnar gat hæglega snúist upp í andhverfu sína strax í Ártúnsbrekkunni þar sem malarvegurinn tók við og óþéttur bíllinn varð fljótlega fullur af ryki í viðbót við reykinn. Svo botnaði enginn í því að börnin gubbuðu látlaust. En fólk vissi ekki betur. Og bílveiki getur sannarlega gert vart við sig þó enginn sé reykurinn eða rykið og er þekkt í læknisfræðinni. "Bílveiki og sjóveiki eru náskyld fyrirbæri og má reikna með að fólk sem hefur tilhneigingu til að verða sjóveikt verði líka bílveikt," segir Haraldur Dungal heimilislæknir. "Bílveiki lýsir sér með óróa, höfuðverk og ógleði og uppköstum. Venjulega er ástæðan hreyfing bílsins þannig að það má því reikna með að jafnvægisskyn fólks sem verður bílveikt sé viðkvæmt fyrir hreyfingu, svipað og á sjó. Skást er auðvitað að reyna að fyrirbyggja þetta með því að taka sjóveikitöflur og forðast að borða þungan og brasaðan mat fyrir ferðina." Haraldur segir fólk ekki leita mikið til lækna vegna bílveiki. "Fólk leitar meira beint í apótekið og fær þar lyf við óþægindunum." Í flugvél eða skipi er best að vera eins nálægt miðju rýmis og mögulegt er því þar er hreyfingin minnst. Í bíl er best að hafa augun á sjóndeildarhringnum en ekki einblína á hluti sem þeysa fram hjá. Það gæti hjálpað að sitja í framsætinu. Betra er að snúa fram en aftur ef ferðast er í bíl, skipi eða lest. Lestur ber að forðast meðan á ferðinni stendur. Best er að borða lítið í einu og sneiða hjá brösuðum mat fyrir ferð og meðan á henni stendur. Ekki neyta áfengis og/eða annarra lyfja rétt fyrir ferðalagið eða meðan á því stendur. Rannsóknir hafa sýnt að engifer getur dregið úr áhrifum ferðaveiki. Taktu engifertöflur eða tyggðu ferska engiferrót eða engifersælgæti. Piparmynta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki. Annar möguleiki er að taka andhistamínlyf sem mörg fást án lyfseðils. Oft þarf að taka slík lyf um klukkutíma fyrir brottför og geta þau valdið sljóleika. Slík lyf duga vel fyrir styttri ferðir. Lyf gegn ógleði koma einnig til greina, þar á meðal eru skópólamínplástrar. Sum þessara lyfja fást án lyfseðils. Plástrarnir eru settir bak við eyrað og geta dugað í allt að þrjá daga. Helstu aukaverkanir eru sljóleiki og munnþurrkur. Sé ferðaveikin það alvarleg að ofantalin ráð hjálpa ekki, skaltu ræða við heimilislækni þinn um málið. edda@frettabladid.is
Heilsa Mest lesið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Hélt við konu besta vinar síns Lífið Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Fleiri fréttir Hildur í aðalhlutverki á Listahátíð í Reykjavík Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning