Menning

Frábært kjöttilboð í Fjarðarkaupum

Kjöttilboð sem bragð er að stendur yfir í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. Afsláttur er allt frá 25 prósent og upp í 40 prósent á alls konar gómsætu kjöti. Til dæmis er hægt að fá fjallalæri sem var á 1.298 krónur kílóið en er nú á 973 krónur kílóið. Síðan er hægt að fá kreólasteik á 978 krónur kílóið en hún var á 1.398 krónur kílóið. Enn fremur er hægt að fá lambagrillsneiðar sem voru á 1.198 krónur kílóið á 839 krónur kílóið. Svo er kryddað lambainnlæri sem var á 1.798 krónur kílóið á 2.598 krónur kílóið á tilboðinu. Einnig er á tilboði FK jurtakryddað lambalæri, grillsvínakótilettur og hvítlaukspylsur með fjörutíu prósent afslætti. Þetta tilboð er hið hefðbundna helgartilboð sem Fjarðarkaup eru iðulega með og gildir út laugardaginn. Fjarðarkaup eru til húsa að Hólshrauni 1b.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×