Viðskipti

Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg
Stundum er vísað til „aðeins fjórir“ reglu Google, sem er tilvísun í þá niðurstöðu sem Google komst að í rannsókn árið 2016, sem sýna að mjög mörg atvinnuviðtöl skila ekki endilega betri eða annarri niðurstöðu um ráðningu en ella.

Afnám tolla myndi gera út af við íslenskan landbúnað
Hart hefur verið tekist á um afnám matvælatolla síðustu daga. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir það skila sér í minni verðbólgu en framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði segir starfstéttina geta lagst niður verði það gert.

Susan Wojcicki er látin
Hin bandaríska Susan Wojcicki lést í gær, föstudag, 56 ára að aldri eftir tveggja ára baráttu við lungnakrabbamein. Eiginmaður hennar Dennis Troper greinir frá andlátinu á samfélagsmiðlum.

Bjóða upp á langlægsta verðið en samkeppnisaðilar óttast ekkert
Bolt, eitt stærsta deilirafskútufyrirtæki heims, hefur hafið starfsemi á Íslandi. Leiguverðið er mun lægra en það sem þekkist hér á landi, þó það gæti breyst á næstu mánuðum. Samkeppnisaðili óttast ekki innkomu risans á markað.

Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka
Fullyrðingar Donalds Trump um að Bandaríkjaforseti ætti að hafa áhrif á ákvarðanir Seðlabanka Bandaríkjanna hafa vakið áhyggjur af sjálfstæði bankans komist Trump aftur til valda. Trump telur sig hafa meira vit á peningum en stjórnendur bankans.

Upplifunin verði eins og að fara í búð í útlöndum
Prís, ný lágvöruverðsverslun opnar dyr sínar um miðjan ágúst ef áætlanir ganga eftir. Framkvæmdastjórinn segir að upplifun viðskiptavina verði svolítið eins og að fara í búð í útlöndum.

Kominn tími til að Hopp og Zolo fái samkeppni
Eistneska rafhlaupahjólaleigan Bolt hóf starfsemi á Íslandi í gær. Leiguverðið er mun lægra en hefur áður tíðkast á Íslandi og segir rekstrarstjórinn markmið þeirra að vera ávallt með lægsta verðið. Reynt verður að koma í veg fyrir að fólk undir áhrifum áfengis noti hjólin.

Evrópska rafhlaupahjólaleigan Bolt opnar á Íslandi í dag
Stærsta rafhlaupahjólaleiga Evrópu, Bolt, opnar á Íslandi í dag. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að til að byrja með verði 800 hlaupahjól í Reykjavík og að hægt sé að ferðast á þeim allt að 55 kílómetra í senn. Ekkert startgjald er til að leigja Bolt hlaupahjól og kostar mínútan 15 krónur eftir það.

Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti
Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans í Opna háskólanum, segir nýsköpun einn af lykilþáttum sjálfbærni, sem um leið þýðir að fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, geta fyrir víst skapað sér ýmiss ný tækifæri til framtíðar.

Stórt skref stigið í yfirtöku JBT á Marel
Hluthafar bandaríska matvælaframleiðandans John Bean Technologies Corporation (JBT) samþykktu á hluthafafundi í dag heimild til útgáfu nýs hlutafjár í tengslum við valfrjálst tilboð félagsins í allt útistandandi hlutafé í Marel hf.

Klara nýr forstöðumaður hjá RSV
Klara Símonardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar (RSV) en hún hefur starfað í verslunargeiranum í áraraðir ásamt því að hafa bakgrunn úr markaðsrannsóknum.

„Komin í hóp fullorðnu félaganna“
Viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Play á aðalmarkaði í Kauphöll hófust í morgun. Forstjóri félagsins segir skráningu þess á aðalmarkað vera þroskamerki fyrir félagið. Breytingar verða gerðar á leiðakerfi félagsins í haust sem fela meðal annars í sér fækkun ferða til Ameríku.

Play mætt á aðalmarkað Kauphallar
Í dag hefjast viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Play á aðalmarkaði í Kauphöll, Nasdaq Iceland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöll en Fly Play hf. er 25. félagið sem tekið er til viðskipta á mörkuðum Nastaq Nordic í ár að því er segir í tilkynningunni.

Meiri harka í framkvæmdum en áður og fleiri mál fyrir dóm
Reynir Sævarsson, formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga, segir hlutverk eftirlitsaðila við framkvæmdir jafn stórt og þess sem hannar framkvæmdina. Hann segir algengara nú en áður að mál fari fyrir dómstóla þegar eitthvað kemur upp við framkvæmd. Reynir fór yfir málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Stefnir í helmingshækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði
Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði munu hafa hækkað um helming á áratug á næsta ári samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins. Þau segja skattlagninguna verða sífellt meira íþyngjandi fyrir atvinnurekendur.

Allt að 43 prósent lægra matvöruverð án tolla
Afnám tolla á innflutt matvæli myndi lækka verð á matvöru umtalsvert, eða allt að 43 prósent. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs á áhrifum tolla á verð nokkurra vinsælla vörutegunda.

Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán
Bílasala Guðfinns og fata- og skartgripaverslunin Brá sleppa við að þurfa að greiða dagsektir vegna villandi og ófullnægjandi upplýsinga á vefsíðum sínum. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu sem hafði áður úrskurðað um að verslunarnar tvær skyldu greiða dagsektir myndu þær ekki gera úrbætur.

Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu
Maður þarf að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 1.471.500 króna, eftir að hafa leigt út fjórar íbúðir í gegnum Airbnb án tilskilins rekstrarleyfis á árunum 2019-2021. Við ákvörðun sektar var tillit tekið til þess að hann hefði ekki gerst brotlegur gegn reglunum áður, og hefði endurnýjað leyfið eftir ábendingar sýslumanns. Sektin var lækkuð í málsmeðferð ráðuneytisins, en hún var upphaflega 4.960.000 krónur.

Gjaldþrotið nam 780 milljónum króna
Gjaldþrot Gourmet ehf. sem hélt úti veitingastaðnum Sjáland við sjávarsíðuna í Garðabæ nam 780 milljónum króna. Kröfuhafar fengu fæstir nokkuð úr þrotabúinu. Félagið var í eigu Stefáns Magnússonar veitingamanns sem kom að rekstri veitingastaðanna Reykjavík Meat og Mathúss Garðabæjar. Hinu fyrrnefnda hefur verið lokað og hið síðara í eigu annarra aðila.

Stefna að því að opna Starbucks á fyrri hluta næsta árs
Berjaya Food International stefnir að því að opna fyrsta Starbucks-kaffihús Íslands á fyrsta eða öðrum ársfjórðungi næsta árs.

Frá Bjarna Benediktssyni til Bestseller
Nanna Kristín Tryggvadóttir ráðinn framkvæmdastjóri Bestseller á Íslandi sem rekur meðal annars Jack & Jones, Vero Moda, Selected, Vila og Name It.

Play í Kauphöllina
Kauphöllin hefur samþykkt umsókn flugfélagsins Play um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland á fimmtudaginn en þau hafa hingað til verið á First north markaðnum.

Íslensk framleiðsla og traust lausn fyrir byggingarmarkaðinn
Notkun steinullareininga frá Límtré Vírneti ehf. hefur aukist mikið undanfarin ár en þær eru helst notaðar í útveggi, milliveggi og þök. Steinullareiningarnar hafa gegnum árin sannað sig sem frábæran kost þegar kemur að hagkvæmni og góðri endingu hér á landi.

Skemmtistaðurinn 22 opnaður á nýjan leik
Eftir átján ára hlé hefur skemmtistaðurinn 22 verið opnaður á nýjan leik á horni Laugavegs og Klapparstígs. Staðurinn verður samrekinn Kiki queer club, sem er á efri hæð hússins. Margrét Erla skemmtanastjóri segir hinseginsamfélagið hafa vantað rólegan bar, til viðbótar við dansklúbbinn Kiki.

Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun
Nikkei-hlutabréfavísitalan japanska skaust upp um rúm tíu stig í dag, aðeins sólarhring eftir mesta hrun hennar í hátt í fjóra áratugi sem skók vestræna hlutabréfamarkaði. Aðrir asískir markaðir tóku einnig við sér eftir minni lækkun.

Að lifa af hræðilega þynnku í vinnunni
Jæja, það er komið að því: Vinna í dag.

Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli
Google braut margvísleg samkeppnislög sem girða fyrir einokun á markaði og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Þetta er niðurstaða dómara í Washington í máli sem samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum höfðuðu gegn Google.

Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra
Hlutabréfaverð á mörkuðum í Bandaríkjunum féll umtalsvert í dag, í kjölfar mikillar lækkunar í Asíu og Evrópu. Lækkunin í Asíu og Evrópu kom til vegna áhyggna af bandaríska efnahagnum.

Starbucks kemur til Íslands
Berjaya Food International hefur tryggt sér rekstrarrétt til að opna og reka Starbucks-kaffihús á Íslandi. Áður hafði komið fram að tilkynningin væri liður í gjörningalistaverki en það reyndist ekki vera satt.

Starbucks opnar á Íslandi
Kaffihúsakeðjan alþjóðlega Starbucks hyggst opna kaffihús á Íslandi innan tíðar. Malasíska félagið Berjaya Food International hefur tryggt sér rekstrarrétt til þess.