

Gunnar Sigurðsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Kviku Securities Ltd. í London (KSL), dótturfélags Kviku banka hf. Stjórn hefur ráðið Richard Beenstock sem nýjan framkvæmdastjóra.
Forsvarsmenn Coca Cola á Íslandi segja sölu á Bonaqua sódavatninu eftir að nafninu var breytt vera á áætlun sem fyrirtækið hafi sett sér í byrjun júlí þegar nafni drykksins var breytt úr Toppur.
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir gamlan vin sinn, Sigmar Guðmundsson þingmann Viðreisnar, valda sér vonbrigðum með málflutningi sínum. Báðir hafa þeir fjallað um Kveiksþátt sem var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gær og varðaði íslensku krónuna.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, segist ósammála Bjarna Benediktssyni, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, um Kveiksþátt sem var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi. Bjarni deildi þeirri skoðun sinni í dag að þátturinn innihéldi áróður og væri „eiginlega hneyksli“, en Sigmar segir hins vegar þáttinn stórfínan og hið raunverulega hneyksli vera gagnrýni Bjarna.
Ferðamálavefurinn Túristi fær innan tíðar nýtt nafn, FF7 - Frásagnir og fréttir alla daga. Áfram verður ferðamál í öndvegi en til stendur að leita fanga víðar með tilliti til áhuga áskrifenda miðilsins.
Sævar Helgi Bragason hefur verið ráðinn sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs og hefur þar störf í ársbyrjun 2024.
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir umfjöllun Kveiks í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi hafa verið samfelldan áróður gegn íslensku krónunni sem hafi verið grunnurinn að miklum hagvexti á Íslandi undanfarinn áratug. Hann segir þáttinn „eiginlega hneyksli“.
Brynjar Elefsen Óskarsson, framkvæmdastjóri B&L segist hafa áhyggjur af stöðu rafbílasölu í landinu og segir óljósar upplýsingar liggja fyrir frá stjórnvöldum um hvaða aðgerðir taki gildi um áramót. Skattspor rafbíla sé að aukast of hratt.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, munu gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem birt var í morgun á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30.
Fjármálaskilyrði á Íslandi hafa versnað samhliða því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum. Aftur á móti er skuldahlutfall bæði heimila og fyrirtækja hóflegt, hvort heldur miðað er við tekjur eða eiginfjárstöðu.
Pylsuvagnar Bæjarins beztu pylsna eru orðnir þrír á Keflavíkurflugvelli eftir opnun nýs staðar í síðustu viku.
Allir starfsmenn Landsbankans, sem starfa í nóvember og desember, fá 200 þúsund krónur greiddar til viðbótar við kjarasamningsbundna desemberuppbót. Sambærileg ákvörðun hefur ekki verið tekin af hinum stóru viðskiptabönkunum tveimur.
Sjötíu og níu starfsmenn Controlant á Íslandi misstu vinnuna í hópuppsögn í nóvember. Um var að ræða einu hópuppsögnina sem tilkynnt var til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði.
Alls bárust Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 73 umsóknir um hlutdeildarlán í október síðastliðinn. Lang flestar þeirra voru vegna kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu eða 58 umsóknir, fjórtán umsóknir voru á vaxtarsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins og ein umsókn á landsbyggð utan vaxtarsvæða.
Fjórum starfsmönnum, KOM, elsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði almannatengsla, hefur verið sagt upp störfum. Eftir uppsagnirnar starfa fjórir hjá fyrirtækinu. Einn þriggja eigenda félagsins stefnir að því kaupa hina tvo út úr félaginu.
Veitingastöðum alþjóðlegu keðjunnar Taco Bell, sem reknir hafa verið samhliða veitingastöðum KFC hér á landi, verður lokað að óbreyttu. Helgi Vilhjálmsson, sem ávallt er kenndur við Góu, segir sérfræðinga KFC á alþjóðavísu hafa bannað rekstur staðanna í sama húsnæði.
Camilla Rut Rúnarsdóttir áhrifavaldur og athafnakona hefur stöðvað framleiðslu á jogginggöllum, sem hún seldi undir vörumerkinu Camy Collections. Mikil óánægja hefur verið meðal viðskiptavina með gæði gallanna.
Uppi varð fótur og fit í verslun Krónunnar í Lindum í Kópavogi síðastliðinn föstudag þegar snyrtivörur frá e.l.f. Cosmetics fóru í sölu í versluninni í fyrsta sinn. Starfsfólk hafði ekki undan við að taka upp úr kössum, svo æstir voru viðskiptavinir í vörurnar.
Almennu hlutafjárútboði Ísfélags hf. lauk klukkan tvö í gær, en alls bárust um 6.500 áskriftir að andvirði um 58 milljarða króna. Það samsvarar tæplega fjórfaldri eftirspurn.
Á þriðja ársfjórðungi 2023 var 61,8 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 60,8 milljörðum króna betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 39,7 milljörðum króna betri en á sama fjórðungi árið 2022
Krambúð hefur verið opnuð í Búðakór, þar sem Nettó var áður til húsa. Jafnframt mun Ísbúð Huppu verða opnuð í rýminu í janúar.
Ístækni ehf hefur gert samkomulag um kaup á tækjum og öðrum framleiðslubúnaði Skagans 3X á Ísafirði. Fyrirtækið mun hefja starfsemi þann 1. desember að Sindragötu 7 á Ísafirði.
Þak, byggingafélag ehf. er gjaldþrota. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um það í síðustu viku, og nú eru þeir sem telja sig eiga eignir, skuldir eða önnur réttindi á hendur búinu hvattir til að lýsa kröfum sínum yfir.
„Það sem að gerðist 1. september var að það var gefin út ný reglugerð af dómsmálaráðuneytinu sem breytir reglunum um það hvernig lánshæfismat er búið til. Og þá er það lagt í hendurnar á fjárhagsupplýsingastofu, sem sagt á okkur, að meta það hvaða vanskilaupplýsingar á að nota. Og kaldur sannleikurinn er sá að ef að fólk hefur lent í því einhvern tímann að borga ekki skuldir sínar til baka, þá er það ólíklegra en aðrir til að borga þær í framtíðinni.“
Guðmundur Örn Jóhannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Torgi og sjónvarpsstjóri ÍNN, hefur ákveðið að kveðja fjölmiðlabransann í bili og snúa sér að útförum. Hann hefur gengið til liðs við Úfararstofu Íslands.
„Meðferð Creditinfo á viðkvæmum persónuupplýsingum um fjárhag einstaklinga gæti farið á svig við lög og starfsleyfi fjárhagsupplýsingafyrirtækisins, að mati Neytendasamtakanna og VR. Hafa samtökin því sent Persónuvernd erindi þess efnis og óskað eftir flýtimeðferð.“
Verulega hægir á hagvexti á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.
Birgitta Björg Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Into the Glacier og hefur hún þegar hafið störf.
Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun.
Stjórn Marel hefur svarað harðri gagnrýni evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital Partners, sem birti í dag opið bréf til stjórnarformannsins. Stjórnin segist hafa ýtrustu hagsmuni allra hluthafa og annarra hagaðila að leiðarljósi.