Viðskipti innlent
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 334 ›
Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Forstjóra Dineout er gjörsamlega ofboðið vegna fullyrðinga samkeppnisaðilans Noona ehf. þess efnis að Dinout blóðmjólki veitingastaði með markaðstorgi sínu. Það sé fjarri lagi og þá taki Dinout engin bókunargjöld af veitingastoðum sem noti bókunarviðmót Dinout. Þá sé ekki hægt að bera saman Booking.com og Dineout. Viðskipti innlent 21.5.2024 17:04
Eignast Securitas að fullu Framtakssjóðurinn Edda og Vari eignarhaldsfélag hafa undirritað kaupsamning um kaup Vara á 40 prósenta hlut í Securitas. Eftir að viðskiptin eru frágengin mun Vari eiga Securitas að fullu. Viðskipti innlent 21.5.2024 14:43
Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Menningar-og viðskiptaráðuneytið leggur til að innlendar og erlendar streymisveitur greiði svokallað „menningarframlag“ til íslensks samfélags. Markmiðið er að efla íslenska menningu og íslenska tungu með því að hvetja til fjárfestingar í framleiðslu á innlendu efni. Framlagið á ekki að ná til steymisveitna með litla veltu eða fáa notendur og ekki til Ríkisútvarpsins. Viðskipti innlent 21.5.2024 13:38
Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Bókunarforritið Noona hefur opnað fyrir veitingahúsabókanir. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja markaðstorg, sem innheimti gjald af hverri bókun, freistast til að blóðmjólka veitingahús sem eigi þegar í vök að verjast vegna annarra verðhækkana. Viðskipti innlent 20.5.2024 16:04
Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Eigandi netsölu á áfengi gagnrýnir að forstjóri ÁTVR kenni netsölu um samdrátt í hagnaði verslunarinnar. Löngu tímabært sé að leggja ÁTVR niður, sem hafi einfaldlega lent undir á samkeppnismarkaði. Viðskipti innlent 18.5.2024 21:00
Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja íhuga að láta reyna á niðurstöðu í atkvæðagreiðslu um kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir Félagsdómi. Afar jafnt var á munum í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. SA telja meirihluta hafa samþykkt samninginn en SSF telur að samningurinn hafi verið felldur. Viðskipti innlent 17.5.2024 15:38
Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Blikur eru á lofti í rekstri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Viðskipti innlent 17.5.2024 07:45
Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Kanadíska flugfélagið WestJet fór í dag í sínar fyrstu ferðir milli Calgary í Albertafylki og Keflavíkurflugvallar. Fyrsta fluginu var sérstaklega fagnað í morgun þar sem forstjóri Isavia og framkvæmdastjóri frá WestJet klipptu á borða áður en flogið var frá Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 16.5.2024 15:52
Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Forstjóri Play vill árétta að flugfélagið sé ekki á förum frá Íslandi. Kjarnastarfsemin sé hér á landi og verði það áfram. Í tengslum við stækkunarfasa félagsins séu hins vegar uppi hugmyndir um að tvær til þrjár flugvélar verði staðsettar í öðru landi. Viðskipti innlent 16.5.2024 13:34
Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, hefur verið tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunin 2024 (European Inventor Award) í flokki stærri fyrirtækja. Hann keppir þar á móti teymum frá Svíþjóð annars vegar og Þýskalandi og Ítalíu hins vegar, en tilkynnt verður um vinningshafa á verðlaunahátíð á Möltu 9. júlí. Viðskipti innlent 16.5.2024 08:51
Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Forstjóri Play hefur velt upp möguleikanum á því að koma á fót heimavelli annars staðar en á Íslandi, til dæmis á Spáni. Þannig væri hægt að fljúga frá Spáni til Íslands með spænska áhöfn. Viðskipti innlent 15.5.2024 18:00
Base parking gjaldþrota Bílastæðaþjónustan Base Parking á Keflavíkurflugvelli var úrskurðuð gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Vefsíðu hennar hefur verið lokað, rúmum tveimur vikum eftir að nafni félagsins var breytt í Siglt í strand ehf. Fyrirtækið hefur ítrekað ratað í fréttir vegna óánægju viðskiptavina með þjónustuna. Viðskipti innlent 15.5.2024 14:29
Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Eyjólfur Árni Rafnsson var í dag endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins með 96,45 prósent greiddra atkvæða, í rafrænni kosningu sem fór fram í aðdraganda aðalfundar sem fram fór í dag. Viðskipti innlent 15.5.2024 14:15
Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Í gær varð hópur viðskiptavina Stöðvar 2 og Vodafone fyrir truflunum í myndlyklum, Stöð 2 appinu, vefsjónvarpi og Leigunni. Viðskipti innlent 15.5.2024 10:42
Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Viðræður eru hafnar um mögulegan samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar. Viðskipti innlent 15.5.2024 10:01
Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Dótturfélag Landsnets segist stefna að því að setja fyrsta uppboðsmarkaðinn með skammtímasamninga um raforku í byrjun næsta árs. Þegar hefur verið gengið frá samstarfssamningi við evrópska raforkukauphöll í tengslum við verkefnið. Viðskipti innlent 15.5.2024 09:47
Bein útsending frá Nýsköpunarviku Advania heldur úti hlaðvarpi í beinni útsendingu frá Nýsköpunarvikunni 2024 í Kolaportinu miðvikudaginn 15. maí. Viðskipti innlent 15.5.2024 08:52
Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Rekstur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga gekk vel á síðasta ári. Hagnaður af starfseminni var 204,7 milljónir króna eftir skatta. Viðskipti innlent 14.5.2024 22:36
Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Eigendur og stjórn Íslandshótela hafa tilkynnt að samhliða útboði og skráningu félagsins á markað, verði öllu fastráðnu starfsfólki afhentir hlutir í félaginu að gjöf. Viðskipti innlent 14.5.2024 16:31
Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Magnús Scheving hefur í gegnum fjárfestingarfélagið, LZT Holding ehf., náð samkomulagi við Warner Bros, Discovery, um kaup á öllum eignum LazyTown, eða Latabæ. Undir kaupin falla allir sjónvarpsþættir, vörumerki og hugverkaréttindi LazyTown, um heim allan. Viðskipti innlent 14.5.2024 12:53
Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Guðrún Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Rue de Net og tekur hún við starfinu af Alfred B. Þórðarsyni sem mun taka við nýju hlutverki sem tæknistjóri Rue de Net og leiða nýsköpun og vöruþróun. Viðskipti innlent 14.5.2024 11:40
Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Íslandshótel birtu í dag útboðslýsingu vegna fyrirhugaðrar skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland en almennt útboð á hlutabréfum félagsins hefst klukkan tíu í fyrramálið, þriðjudaginn 14. maí og lýkur á miðvikudaginn, 22. maí, klukkan 16. Viðskipti innlent 13.5.2024 18:18
Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Örvar Bessason er reynslumikill matreiðslumaður til sjós og lands. Hann lærði sjókokkinn fyrir um 30 árum og starfaði sem kokkur á frystitogurum árum saman. Þess á milli vann hann á veitingastöðum í landi. Hans næsta verkefni er að gera Grillhúsið í Borgarnesi að heitasta veitinga- og samverustaðnum í Borgarnesi. Viðskipti innlent 13.5.2024 14:45
Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Stærsta orkufyrirtæki landsins Landsvirkjun tekur nú í fyrsta skipti þátt í söluferli á rafmagni í gegnum nýstofnaða raforkukauphöll. Fyrirtækið segist einnig skoða þátttöku á öðru markaðstorgi með raforku sem verður opnað síðar. Viðskipti innlent 13.5.2024 14:43
Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Harpa Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni og hefur hún þegar hafið störf. Um er að ræða nýja einingu hjá Orkuveitunni sem er hluti af sviði Rannsókna og nýsköpunar. Viðskipti innlent 13.5.2024 14:34
Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Helgi Magnús Hermannsson og Jóhannes Birgir Skúlason hafa fest kaup á Grillhúsinu sem rekur veitingastaði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Þá hefur hópur fjárfesta undir forystu Örvars Bessasonar keypt Grillhúsið í Borgarnesi. Viðskipti innlent 13.5.2024 14:03
Freyr ráðinn til Eflingar Freyr Rögnvaldsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Eflingar stéttarfélags. Hann er stjórnmálafræðingur með mikla reynslu af fjölmiðlun. Viðskipti innlent 13.5.2024 13:56
Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum Íslenski tölvuleikurinn Starborne Frontiers frá Solid Clouds hefur verið tilnefndur til Norrænu tölvuleikjaverðlaunanna sem besti tölvuleikur fyrir snjalltæki á árinu 2024. Viðskipti innlent 13.5.2024 13:22
MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Landsréttur sýknaði Ríkisútvarpið en dæmdi Matvælastofnun til skaðabótaábyrgðar í dag í skaðabótamáli fyrrverandi eigenda Brúneggja. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður sýknað stofnanirnar tvær í málinu. Viðskipti innlent 10.5.2024 15:43
Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Stjórn Regins hefur óskað eftir og fengið heimild fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands til að falla frá valfrjálsu yfirtökutilboði þess í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. Viðskipti innlent 10.5.2024 13:33