Viðskipti innlent

„Menn hjálpast að, „play nice““
Niceair fór í sitt fyrsta samstarfsverkefni í gær þegar Airbus-vél félagsins flaug utan til Gautaborgar í Svíþjóð fyrir flugfélagið Play.

PCR-heildsali Landspítalans hagnaðist um tæpa tvo milljarða í fyrra
Heilsölufyrirtækið Lyra hagnaðist um 1.955 milljónir króna fyrir skatt árið 2021 en mikil söluaukning varð hjá fyrirtækinu vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Alls seldi Lyra vörur og þjónustu fyrir 4.250 milljónir króna í fyrra en Landspítalinn var langstærsti viðskiptavinur fyrirtækisins. Kaup spítalans fóru fram án útboðs.

Spá því að verðbólga fari úr 7,6 í 8,4 prósent
Greining Íslandsbanka spáir 8,4% verðbólgu í júnímánuði en tólf mánaða verðbólga mældist 7,6% í maí og hefur ekki mælst svo mikil frá því í mars 2010. Gangi spá bankans eftir væri um að ræða 1,0% hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrri mánuði.

Ferðagleði Íslendinga birtist í metkortaveltu erlendis
Heildarvelta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 21,5 milljörðum króna í apríl og hefur ekki verið hærri frá því að mælingar hófust árið 1997. Jókst veltan um tæpa 12,4 milljarða frá sama tíma árið 2021.

„Þetta er fúlt“
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair segir að það sé óneitanlega fúlt að hafa þurft að fella niður ferðir félagsins til London út mánuðinn. Hann vonast til þess að lausnir sem félagið hefur borið á borð breskra yfirvalda dugi til að leysa málið.

Stækkuðu útboðið vegna eftirspurnar
Rúmlega fimm þúsund áskriftir bárust í almennu hlutafjárútboða Nova Klúbbsins hf., sem lauk á föstudaginn. Andvirði áskriftanna var um tólf milljarða króna og samsvarar það tæplega tvöfaldri eftirspurn, sé miðað við grunnstærð útboðsins.

Aðgerðirnar til þess fallnar að ala á sundrungu í stað samstöðu
Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýkynntar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum helst bitna á grunnþjónustunni við landsmenn á meðan aðrir sleppi algerlega. Ríkisstjórnin sé að grafa undan velferðarþjónustu þar sem almennum borgurum er kastað fyrir bílinn.

Starfsmaður Búllunnar fékk skellinn í kjötmálinu
Starfsmaður Búllunnar sem ákærður var fyrir tollalagabrot með því að veita rangar upplýsingar um innflutt kjöt þarf að greiða um fjörutíu milljónir í sekt vegna málsins. Sektin fellur þó niður haldi viðkomandi skilorð næstu tvö árin, meðal annars vegna þess að starfsmaðurinn var sú eina sem var látin svara til ábyrgðar fyrir málið, án þess þó að hafa haft af því nokkurn ávinning.

Íslenskur vafri sem heldur utan um tölvupóstinn, dagatalið og hlaðvörpin
Íslenska fyrirtækið Vivaldi hefur uppfært netvafrann sinn og bætt við innbyggðu póstforriti, dagatali og lesara fyrir strauma. Hægt er að sameina marga tölvupóstreikninga í vafranum.

Síldarvinnslan kaupir rúmlega þriðjungshlut í norsku laxeldisfyrirtæki
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Síldarvinnslunni hf. hefur sjávarútvegsfyrirtækið gengið frá samkomulagi við Bremesco Holding Limited ásamt hópi hluthafa, sem eiga samanlagt 34,2%, í Arctic Fish Holding AS um kaup á hlutum þeirra í félaginu.

Stjórn Festar segist hafa haft frumkvæði að starfslokum Eggerts
Festi hf. hafði forgöngu að samtali við Eggert Þór Kristófersson, forstjóra Festar, um starfslok hans á fimmtudag í síðustu viku. Félagið segir starfslok hans ekki tengjast Þórði Má Jóhannssyni, fyrrverandi stjórnarformanns félagsins.

Innköllun á núðlum frá Lucky Me!
Í fréttatilkynningu frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kemur fram að Vietnam Market hafi í samráði við stofnunina stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Instant Noodles Pancit Canton Chili frá Lucky Me!

Brynhildur hættir sem upplýsingafulltrúi Rauða krossins
Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, er að hætta eftir fimm ár í starfi sínu. Þar áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum svo ákvörðunin markar endalok áralangs tímabils. Það er ekki ljóst hvert hún fer næst.

Kviku heimilað að kaupa færsluhirðingarsamninga frá Rapyd og Valitor
Samkeppniseftirlitið hefur lokið rannsókn sinni á kaupum Kviku banka á færsluhirðingarsamningum úr fórum sameinaðs félags Rapyd og Valitors. Bankanum er nú formlega heimilað að kaupa samningana en kaupin eru þó háð því að Seðlabankinn heimili Rapyd að kaupa Valitor.

Ekki í fyrsta sinn sem þingmaður stökkvi upp í pontu án þess að kynna sér málið
Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi lífeyrissjóður ákváðu í gær að breyta áunnum lífeyrisréttindum sjóðfélaga þannig að réttindi eldri kynslóða aukast á kostnað hinna yngri. Þingmaður Viðreisnar segir þetta tugmilljarða millifærslu frá réttindum yngra fólks til þess eldra en í sameiginlegri grein Benedikts Jóhannessonar og framkvæmdastjóra sjóðanna tveggja segir að breytingin stuðli að jafnræði milli sjóðfélaga.

Niceair aflýsir öllu Bretlandsflugi í júní
Norðlenska flugfélagið Niceair mun aflýsa fyrirhuguðum ferðum félagsins frá Akureyri til Bretlands í júní.

Fimm milljarða fjárfesting til málmleitar á Grænlandi
Nokkrir stærstu auðlinda- og vogunarsjóðir heims munu taka þátt í fimm milljarða króna fjárfestingu í leyfum AEX Gold á Suður-Grænlandi til að leita að og vinna efnahagslega mikilvæga málma, svo sem kopar, nikkel og aðra svokallaða tæknimálma.

Skáluðu í Kristal eftir að Ölgerðin var hringd inn í Kauphöllina
Forstjóri Ölgerðarinnar segist sannfærður um að allir þeir sjö þúsund nýju hluthafar félagsins muni haga sér eins og erindrekar þess. Hann hringdi félagið inn í Kauphöllina í morgun.

Faraldursveiking gengin til baka og spá frekari hækkun
Íslenska krónan hefur styrkst verulega frá því að hún var hvað veikust undir lok árs 2020 þegar áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru gætti hvað mest. Kostar evran núna það sama og fyrir faraldurinn.

Kauphöllin með starfslok Eggerts til skoðunar
Kauphöllin er með starfslok Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra Festar til skoðunar. Staðhæfingar félagsins um að Eggert hafi sagt starfi sínu lausu virðast ekki halda vatni.

Vinna að því að draga úr kolefnislosun um 43 prósent fyrir 2030
Byggingariðnaðurinn og stjórnvöld taka höndum saman og vinna að því að draga úr kolefnislosun bygginga á Íslandi um 43 prósent fyrir 2030. Samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs, Byggjum grænni framtíð (BGF) greinir frá þessu ásamt fleiri aðgerðum í nýjum vegvísi um vistvæna mannvirkjagerð.

Running Tide semur um uppbyggingu á Akranesi
Bandaríska loftslagsfyrirtækið Running Tide hefur undirritað samning við Breið - þróunarfélag og Brim hf. um leigu húsnæðis á Akranesi undir aðstöðu fyrir rannsóknir og framleiðslu á þörungum til kolefnisbindingar í hafi.

Hættir hjá Strætó og hefur störf hjá Tvist
Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, hefur verið ráðinn sem hugmynda- og textasmiður og ráðgjafi í almannatengslum hjá auglýsingastofunni Tvist.

Opna hótel í sögufrægu húsi á Siglufirði
Keahótel hafa opnað nýtt gistihús á Siglufirði, Salt, sem staðsett er í sögufrægu húsi sem áður hýsti Hótel Hvanneyri og var fyrst starfrækt árið 1934.

Bein útsending: Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030
„Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030: Losun, Markmið og aðgerðir“ er yfirskrift fundar sem Byggjum grænni framtíð, samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs um vistvæna mannvirkjagerð, stendur fyrir og hefst klukkan 14 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan.

Ölgerðin hringd inn í Kauphöllina
Ölgerðin er formlega orðið nýjasta fyrirtækið á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri félagsins, hringdi félagið inn á markað í morgun.

Kvenkyns stjórnendum þyki nauðsynlegt að sanna sig
Hinsegin starfsfólk fær minni stuðning og aðgang að stjórnendum fyrirtækja ásamt því að upplifa oftar erfið samskipti og viðhorf á vinnustað eins og grófan talsmáta eða brandara.

Ráðin framkvæmdastjóri Nathan & Olsen
Þórhildur Rún Guðjónsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra hjá Nathan & Olsen hf.

Akademias kaupir helmingshlut í Hoobla
Fræðslufyrirtækið Akademias hefur keypt helmingshlut í Hoobla sérfræðingaklasanum.

Kaupa ferðaþjónustufyrirtæki í Alaska
Sameiginlegt félag Arctic Adventures hf. og Pt Capital hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé All Alaska Tours og Alaska Private Touring.