Viðskipti erlent

Kínverskur risi í klandri
Bandaríkin standa fyrir samstilltu átaki gegn kínverska tæknirisanum Huawei. Kínverjarnir eru sakaðir um njósnir fyrir hið opinbera, brot á viðskiptaþvingunum og hugverkaþjófnað. Þeir neita þó alfarið sök og stjórnvöld í Kína segja málið einfaldlega pólitískt. Það kemur á versta tíma fyrir Huawei sem tekur nú þátt í 5G-bylgjunni.

Andar köldu á milli Apple og Facebook
Það er stirt á milli þeirra Tims Cook og Marks Zuckerberg. Þeir hafa deilt lengi um söfnun persónulegra upplýsinga. Facebook er nú í klandri fyrir að brjóta gegn skilmálum samkomulags við Apple með meintu njósnaappi.

Uber hættir í Barcelona vegna nýrra reglna
Samkvæmt nýju reglunum mega bílstjórar farveitna eins og Uber ekki sækja farþegar fyrr en að minnsta kosti korteri eftir að far er bókað.

Notendum Facebook fjölgar og hagnaður eykst, þvert á væntingar
Hagnaður Facebook jókst meira á síðasta ársfjórðungi 2018 en greiningaraðilar gerðu ráð fyrir og það þrátt fyrir ýmis hneykslismál sem hafa komið niður á ímynd fyrirtækisins.

Facebook gerir út njósnaapp
Facebook hefur frá 2016 greitt fólki frá 13 til 35 ára allt að 20 dali á mánuði fyrir að hala niður appi að nafni Facebook Research.

Setja kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu
Vodafone Group hefur sett kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið höfðaði sakamál á hendur fyrirtækinu fyrir stórfelldan hugverkaþjófnað og brot á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran. Þá hefur BT Group fjarlægt búnað Huawei úr farsímakerfum sínum í Bretlandi.

Apple selur færri iPhone
Tekjur Apple vegna sölu iPhone síma drógust saman um 15 prósent á síðasta en þrátt fyrir að tekjur af símasölu hafi dregist saman jukust tekjur fyrirtækisins af öðrum tækjum og þjónustu um 19 prósent.

Þriðja hverjum starfsmanni sænsku Vinnumálastofnunarinnar sagt upp
Alls fengu um 4.500 manns uppsagnarbréf, en um er að ræða eina mestu hópuppsögn í sögu landsins.

Norwegian aflar sér ríflega 40 milljarða
Forsvarsmenn Norwegian Air Shuttle tilkynntu í gær að til stæði að auka hlutafé flugfélagsins um þrjá milljarða norskra króna, jafnvirði um 42 milljarða íslenskra króna, til þess að skjóta styrkari stoðum undir fjárhag félagsins.

Mektardagar vogunarsjóða eru að baki
Þriðja árið í röð sem fleiri vogunarsjóðum er lokað en er hleypt af stokkunum. Ávöxtun vogunarsjóða hefur farið stiglækkandi. Þóknanir hafa lækkað. Efnaðir sjóðsstjórar stýra í ríkari mæli einungis eigin fjármunum en tilhugsunin um ríkulegar greiðslur heilla henn.

Mæðgin reyndu ítrekað að vara Apple við Facetime-gallanum
Mæðgin frá Arizona-ríki Bandaríkjanna reyndu ítrekað að vara tæknirisann Apple við galla í Facetime-samskiptaforritinu sem gerir fólki kleift að hlusta og jafnvel horfa á fólk þrátt fyrir að viðkomandi hafi ekki svarað samtalsbeiðninni.

Apple lokar forriti þar sem hægt var að hlusta í gegnum síma annarra
Starfsmenn Apple hafa lokað á hópsamtöl FaceTime í Apple símum og tækjum eftir að galli var opinberaður sem gerði fólki kleift að hlusta og jafnvel horfa á fólk, jafnvel þó viðkomandi hafi ekki svarað samtalsbeiðninni.

Björn ráðinn nýr forstjóri Karolinska
Björn Zoëga hefur verið ráðinn nýr forstjóri háskólasjúkrahússins Karolinska í Stokkhólmi.

Bandaríkin gefa út ákæru á hendur fjarskiptafyrirtækinu Huawei
Meng Wanzhou, fjármálastjóri Huawei, neitar ásökununum.

Facebook stefnir að því að tengja saman Instagram, Messenger og Whatsapp
Facebook stefnir að því að tengja saman skilaboðaþjónustuna sem samfélagsmiðillinn býður upp á í gegnum Instagram, Facebook Messenger og Whatsapp.

Google gæti drepið auglýsingavara
Hugbúnaðarfyrirtæki hafa áhyggjur af því að fyrirhugaðar breytingar á Chrome-vafra Google gætu bundið enda á viðbætur sem loka á auglýsingar á vefsíðum.

Umsvifamikill auðjöfur keypti dýrustu fasteign Bandaríkjanna
Kaupandinn, Ken Griffin, er fimmtugur stofnandi vogunarsjóðsins Citadel.

Mike Ashley vill kaupa plötuverslunarkeðjuna HMV
Breski kaupsýslumaðurinn Mike Ashley, eigandi Sports Direct, hefur gert tilboð í bresku hljómplötuverslunarkeðjuna HMV sem fór í gjaldþrot í síðasta mánuði.

Lækkar hagvaxtarspána fyrir 2019
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varaði við því á mánudag að harðnandi viðskiptadeilur á milli ríkja gætu grafið undan hagvexti í heimshagkerfinu.

Hótar að hindra yfirtökuna á Flybe
Stærsti hluthafi Flybe skoðar réttarstöðu sína vegna yfirtöku fjárfesta á breska flugfélaginu. Hann sakar forsvarsmenn Flybe um að bera hagsmuni hluthafa fyrir borð.

Vildu að Búllan yrði borin út vegna brælu
Útibú Hamborgarabúllu Tómasar í Osló lagði leigusala sinn fyrir þarlendum dómstólum á dögunum.

Drónarnir á Gatwick kostuðu EasyJet milljarða
Lággjaldaflugfélagið EasyJet áætlar að drónarnir, sem trufluðu flugumferð um Gatwick-flugvöll í desember, hafi kostað flugfélagið um 15 milljónir punda, rúmlega 2,3 milljarða króna.

Tesla sparkar 3000 starfsmönnum
Rafbílaframleiðandinn Tesla segist þurfa að fækka starfsfólki fyrirtækisins um 7 prósent.

Afkomuviðvörun vegna lægri flugfargjalda
Lággjaldaflugrisinn Ryanair hefur lækkað afkomuspá sína fyrir yfirstandandi rekstrarár vegna lækkunar á flugfargjöldum.

Óttast að hakkarar geti reimað fólk fast í nýjum sjálfreimandi skóm Nike
Öryggis- og tækniblaðamaður tæknivefmiðilsins CNET prófaði á dögunum nýja sjálfreimandi skó skóframleiðandans Nike

Síminn sem næstum allir áttu við upphaf aldarinnar sagður væntanlegur aftur
Orðrómur um endurútgáfu hins fornfræga Motorola Razr hefur nú komist á kreik.

Björgun Wells Fargo eftir reginhneyksli
Illa ígrundað hvatakerfi leiddi til þess að starfsmenn opnuðu milljónir af fölskum reikningum og þeir höfðu hagsmuni viðskiptavina ekki að leiðarljósi þegar selt var úr hilluborði bankans.

Bitcoin notuð í Hvíta-Rússlandi
Viðskiptafólk og spákaupmenn í Hvíta-Rússlandi geta nú keypt hlutabréf, gull og erlendar myntir með bitcoin og öðrum stórum rafmyntum. Fjárfestingarfyrirtækin VP Capital og Larnabel Ventures tilkynntu þetta í gær.

Minnsti hagvöxtur í Þýskalandi í fimm ár
Hagvöxtur í Þýskalandi nam 1,5 prósentum á síðasta ári. Vöxturinn hefur ekki verið minni frá árinu 2013.

Aftur var hægt að næla sér í hræódýra miða á fyrsta farrými vegna mistaka
Í annað sinn á innan við tveimur vikum nældu heppnir viðskiptavinir flugfélagsins Cathay Pacific sér í hræódýra miða á fyrsta farrými vegna mistaka í bókunarkerfi flugfélagsins. Aftur mun flugfélagið ekki fara fram á það að fullt verð verði greitt fyrir miðana.