Viðskipti erlent

Stærsta bankagjaldþrot Bandaríkjanna í ár er framundan
Stærsta bankagjaldþrot í Bandaríkjunum í ár er framundan. Um er að ræða bankann Guaranty Financial Group sem er næststærsta lánastofnunin í Texas.

Heimsmarkaðsverð á áli yfir 1.800 dollara á tonnið
Heimsmarkaðsverð á áli er komið í 1.811 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London. Hefur verðið ekki verið hærra frá því í fyrrahaust. Staðgreiðsluverðið er í 1.798 dollurum.

Bildt: Engin hraðmeðferð fyrir Ísland en styttri leið
Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar tjáði blaðamönnum í Brussel í morgun að Ísland fengi ekki neina hraðmeðferð inn í Evrópusambandið. Hinsvegar væri til styttri leið fyrir landið.

Konur eru nákvæmari við skattskýrslugerð en karlar
Um helmingi fleiri karlar en konur svindla eða gera mistök þegar þeir gefa upp til skatts. Þetta sýnir rannsókn dönsku skattstofunnar.

Darling hótar stjórnendum breskra banka
Alistair Darling segist ekki ætla að sitja undir því ef sögusagnir um að breskir bankar séu að taka of mikla vexti af lánum til lítilla og meðalstórra fyrirtækja reynast réttar.

Séreignasparnaðurinn bjargaði danska ferðaskrifstofugeiranum
Séreignasparnaðurinn sem Danir fengu greiddan út í ár, líkt og Íslendingar, hefur bjargað ferðaskrifstofugeiranum í Danmörku frá hruni. Er nú svo komið að færri komast í sólarlandaferð í sumar en vildu.

Verð á demöntum hefur hrapað milli ára
Verð á demöntum hrapaði um 50% frá október í fyrra og fram til mars í ár en hefur síðan verið að rétta aðeins úr kútnum. Þetta veldur því að stærsta námuvinnsla heims á demöntum, De Beers, á nú í fjárhagslegum vandræðum.

Schwartzenegger þarf að loka 26 milljarða dala fjárlagagati
Löggjafarvaldið í Kaliforníu hefur samþykkt áætlun til að fást við 26 milljarða dala fjárlagahalla og sent Arnold Schwartzenegger ríkisstjóra áætlunina til undirritunar svo hún geti orðið að lögum.

AGS lánar Sri Lanka
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur samþykkt að veita Sri Lanka lán að andvirði 2,6 milljörðum bandaríkjadollara til að styðja við efnahagsáætlanir þeirra. Borgarastyrjöld hefur staðið yfir í 37 ár á Sri Lanka og staða ríkisfjármála er slæm, ef marka má lýsingar AFP fréttastofunnar.

Deilur Lettlands við AGS valda ESB vandræðum
Deilur Lettlands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn geta leitt til þeirrar klemmu fyrir ESB að þurfa að velja á milli hvort sambandið eigi að bjarga þeim nýríkjum í ESB sem vilja ekki skera meira niður hjá sér eða láta ríkin taka afleiðingum þess að gera slíkt ekki.

Glaxo Smith Kline græðir 200 milljarða á svínaflensunni
Lyfjafyrirtæki munu græða milljarða bæði á bóluefna- og lyfjaframleiðslu. Búist er við að lyfjafyrirtækið Glaxo Smith Kline hagnist um sem nemur 200 milljörðum íslenskra króna vegna heimsfaraldurs svínaflensu.

Mesti samdráttur í Bretlandi í hálfa öld
Breska hagkerfið skrapp mun meira saman á öðrum fjórðungi ársins en flestir höfðu gert ráð fyrir, og var samdrátturinn milli ára sá mesti a.m.k. undanfarna hálfa öld.

Töluvert tap hjá Eik Banki
Tap af rekstri Eik banki í Færeyjum nemur rúmlega 69 milljónum danskra kr. eða tæplega 1,7 milljarði kr. eftir skatta á fyrstu sex mánuðum þessa ár. Á sama tímabili í fyrra var tapið rúmar 9 milljónir danskra kr.

Buffett græðir yfir 2 milljarða dollara á Goldman Sachs
Gengishagnaður ofurfjárfestisins Warren Buffett á kaupum á hlutabfréfum í Goldman Sachs s.l. vetur er nú kominn í 2,2 milljarða dollara eða tæplega 280 milljarða kr. Þetta kemur fram á Bloomberg fréttaveitunni.

FME í Noregi hefur áhyggjur af Storebrand
Fjármálaeftirlitið í Noregi hefur áhyggjur af lausafjárstöðu tryggingarrisans Storebrand. Það eru kaupin á sænska líftryggingarfélaginu SSP ásamt fjármálakreppunni sem valda þessum áhyggjum hjá eftirlitinu að því er segir í nýútkominni skýrslu frá því.

Ford keyrir út úr kreppunni
Bílaframleiðandinn Ford skilaði mun betra uppgjöri á öðrum ársfjórðungi en sérfræðingar gerðu ráð fyrir. Nettóhagnaður Ford nam 2,8 milljörðum dollara, að mestu vegna endurskipulagningar á skuldum.

Risauppgjör hjá Credit Suisse, hagnaðist um 2 milljarða á dag
Svissneski bankinn Credit Suisse skilaði risahagnaði á öðrum ársfjórðung ársins eða 192 milljörðum kr. Þetta samsvarar því að bankinn hafi hagnast um rúma 2 milljarða kr. á hverjum degi tímabilsins.

Fitch Ratings gefur FIH toppeinkun á skuldabréfum sínum
Matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hefði gefið FIH bankanum toppeinkunn eða AAA á langtíma skuldabréfaútgáfum bankans. Þar með er FIH bankinn, sem er í eigu íslenska ríkisins, kominn með sömu einkunn og ríkissjóður Danmerkur hvað skuldabréfaútgáfuna varðar.

Íslensku félagi stefnt í málaferlum um veðhlaupabrautir
Kröfuhafar í þrotabú Magna Entertainment Corp. hafa stefnt MID Íslandi sf. og samstarfsmanni þess, kanadíska milljarðamæringnum Frank Stronach.

FIH í hættu á lækkun lánshæfismats síns hjá Moody´s
FIH bankinn í Danmörku, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, er í hættu á að fá lánshæfismat sitt lækkað hjá matsfyrirtækinu Moody´s. Moody´s hefur sagt að það íhugi að lækka lánshæfismat hjá 11 dönskum fjármálafyrirtækjum þar á meðal sjö bönkum.

Hlutabréfamarkaður í London á fljúgandi ferð
FTSE 100 hlutabréfavísitalan í London er nú á fljúgandi ferð, í jákvæðum skilningi. Hefur vísitalan nú hækkað samfleytt undanfarna átta viðskiptadaga, slíkt hefur ekki gerst í heil fimm ár. Vísitalan hefur hækkað um 9% síðan í byrjun síðustu viku.

Botninn dottinn úr spákonugeiranum í New York
Ein af afleiðingum fjármálakreppunnar er að botninn er alveg dottinn úr spákonugeiranum í New York. Þær konur, og menn, sem hafa lífsviðurværi sitt af því að spá fyrir um framtíð viðskiptavina sinna segja að efnahagurinn hafi aldrei verið eins slæmur og þessa dagana.

Yfir 50 breskar krár loka í hverri viku vegna kreppunnar
Fjármálakreppan hefur leikið Breta svo grátt að fleiri og fleiri þeirra velja nú að drekka heima hjá sér fremur en á kránni. Þetta hefur valdið því að rúmlega 50 breskar krár loka nú og hætta rekstri í hverri viku.

Nordea skilaði 616 milljóna evra hagnaði
Skandínavíski bankinn Nordea skilaði 616 milljóna evra hagnaði á fyrri hluta þessa árs. Þetta er ein besta niðurstaða bankans í sögu hans.

Bernanke mætir fyrir þingið í dag
Ben Bernanke seðlabankastjóri Bandaríkjanna mætir aftur fyrir bandaríkjaþing í dag til þess að svara spurningum um þær aðgerðir sem seðlabankinn hefur gripið til og mun fara í, til að takast á við efnahagsástandið í Bandaríkjunum.

Vísbendingar um að það versta sé yfirstaðið í Bandaríkjunum
Ben S. Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að margt bendi til þess að hagkerfi landsins sé að rétta úr kútnum. Þrátt fyrir það telur hann farsælast til lengri tíma litið, að viðhalda öflugri og varfærinni peningastefnu um óákveðinn tíma. Það er Bloomberg fréttaveitan sem greinir frá þessu í dag.

Utanríkisráðherra Litháen fagnar ESB aðildarviðræðum Íslands
Maris Riekstins utanríkisráðherra Litháen fagnar ákvörðun alþingis um aðildarviðræður Íslands við ESB og segir að Litháen sé reiðubúið að miðla Íslandi af reynslu sinni í slíkum viðræðum.

Áltonnið er komið í 1.738 dollara í London
Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að hækka verulega og er nú komið í 1.738 dollara tonnið á markaðinum í London. Í gærmorgun stóð það í rétt tæpum 1.700 dollurum miðað við þriggja mánaða framvirka samninga.

Íhuga lögreglurannsókn á njósnahneyksli í Deutsche Bank
Ríkissaksóknari Þýskalands hefur staðfest að embættið sé að íhuga hvort fram fari lögreglurannsókn á njósnahneyksli sem komið er upp hjá Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands.

Danskar ferðaskrifstofur með buxurnar á hælunum
Mun fleiri Danir vilja ferðast til sólarstranda en pláss er fyrir hjá ferðaskrifstofum landsins. Ferðaskrifstofurnar hafa vanmetið verulega eftirspurnina eftir þessum ferðum í ár og standa því með buxurnar á hælunum að því er segir í frétt í Politiken um málið.