Viðskipti erlent

Atvinnuleysi eykst í Bandaríkjunum
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir miður að batamerki í bandarísku efnahagslífi ætli að láta á sér standa. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mælist nú 10,2% en það hefur ekki verið meira í rúman aldarfjórðung.

Fjöldauppsagnir hjá British Airways
Breska flugfélagið British Airways ætlar að segja upp tæplega 4900 starfsmönnum sínum en það samsvarar um 12% starfsmanna fyrirtækisins. Frá þessu er grein í breskum fjölmiðlum í dag og er ástæðan sögð vera slæmur fjárhagur og tap á rekstri fyrirtækisins.

Íslenski hluturinn í Royal Unibrew skapar óvssu
Íslenski eignarhluturinn í Royal Unibrew skapar óvissu hvað varðar fyrirhugaða hlutafjáraukningu í þessum næststærstu bruggverksmiðjum Danmerkur. Hluturinn er nú í höndum Stoða og Straums og er upp á um 20%. Óvissan er um hvar þetta eignarhald endar að lokum.

Fjárfestar tapa milljörðum á þorskeldi í Noregi
Fjárfestar hafa tapað 100 milljónum norskra kr. eða um 2.2 milljörðum kr. á þorskeldisstöðinni Branco í Noregi. Gjaldþrotaskipti á Branco eru til meðferðar hjá þingréttinum í Sunnmöre en stöðin varð gjaldþrota eftir níu ára rekstur.

Danskur fasteignarisi í vanda, FIH meðal lánadrottna
Framtíð Essex Invest, næststærsta fasteignafélags Danmerkur er nú óljós. Stærstu lánadrottnar félagsins eru FIH bankinn og Danske Bank en fjöldi annarra lánastofnana, danskra og erlendra hefur einnig lánað félaginu.

Royal Unibrew hækkar um 11,4% í Kaupmannahöfn
Hlutabréf í Royal Unibrew hafa hækkað um 11,4% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun. Er verðið á hlut komið í 171 danska kr. Lægst fór verðið í ár niður í 40 danskar kr. á hlut í apríl s.l.

Royal Unibrew skilar mjög góðu uppgjöri
Dönsku bruggverksmiðjurnar Royal Unibrew skiluðu mjög góðu uppgjöri á þriðja ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 102 milljónum danskra kr., eða um 2,5 milljörðrum kr. fyrir skatta.

FIH bankinn hefur afskrifað lán fyrir 24 milljarða á árinu
FIH bankinn í Danmörku hefur afskrifað lán upp á 955 milljónir danskra kr. eða rétt tæpa 24 milljarða kr. á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins. Hinsvegar varð hagnaður af rekstri bankans á þriðja ársfjórðungi upp á 191 milljón danskra kr. eða um 4,7 milljarða kr. fyrir skatt.

Englandsbanki heldur stýrivöxtum óbreyttum í 0,5%
Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 0,5% og er þetta áttundi mánuðurinn í röð sem slíkt gerist.

Fyrrum landstjóri Manar yfirheyrður vegna Kaupþings
Donald Gelling, fyrrum landstjóri ( chief minister) á eyjunni Mön verður yfirheyrður af sérstakri rannsóknarnefnd þingsins á Mön sem rannsakar nú hrun Singer & Friedlander banka Kaupþings á eyjunni.

Engin ávöxtun í áratug með S&P 500 vísitölunni
Nú þegar 39 viðskiptadagar eru eftir af árinu í Bandaríkjunum er ekki útlit fyrir að S&P 500 vísitalan skili ávöxtun þennan áratuginn. Vísitalan mælir virði 500 veltumestu fyrirtækja á Bandaríkjamarkaði og þyrfti að hækka um 41% það sem eftir lifir árs til þess að enda á sléttu frá aldamótum.

Indverjar kaupa 200 tonn af gulli frá AGS
Indverski seðlabankinn (RBI) hefur fest kaup á 200 tonnum af gulli frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS). Er þetta fyrsta sala sinnar tegundar af gullbirgðum AGS í níu ár. Alls borga Indverjar 4 milljarða punda eða rúmlega 800 milljarða kr. fyrir gullið.

SuperBest í Danmörku seldi 120.000 flöskur af fölsku víni
Dagvörukeðjan SuperBest hefur síðan 2007 selt um 120.000 flöskur af fölsku rauðvíni. Í ljós hefur komið að hin dýru ítölsku rauðvín Amarone voru blönduð með ódýrum frönskum borðvínum áður en tappað var á flöskurnar á Ítalíu.

Atvinnuleysi á Spáni vex
Nærri hundrað þúsund manns misstu vinnuna á Spáni í október. Atvinnulausir þar eru nú 3,8 milljónir og hefur þeim fjölgað um 990 þúsund undanfarið ár.

Endurskoðandi Madoffs játar sekt
David Friehling, sem um árabil hefur verið endurskoðandi bandaríska fjársvikarans Bernards Madoff, játaði í gær sekt sína fyrir dómara alríkisdómstóls á Manhattan. Dómarinn tók sér þó tíma til að ákveða hvort rétt væri að fallast á játninguna. Saksóknarar í málinu sögðust hafa reiknað með því að hann myndi játa sig sekan. Friehling er sakaður um verðbréfasvik og fleiri brot, sem samtals varða 108 ára fangelsi. Reynist sakborningurinn samvinnuþýður við réttarhöldin má þó búast við að refsingin verði mild. Saksóknararnir telja fullvíst að Friehling hafi vitað af Ponzi-svikamyllu Madoffs, sem talin er sú umfangsmesta í sögunni, enda hafði Friehling grandskoðað bókhaldið.

Buffett fer í stærstu yfirtökuna á ferli sínum
Ofurfjárfestirinn Warren Buffett hefur ákveðið að fara í stærstu yfirtökuna á ferli sínum. Fjárfestingafélag hans. Berkshire Hathaway, hefur ákveðið að kaupa 77% hlut í járnbrautarfélaginu Burlington Northern Santa Fe Corp.

Elvis ekki lengur tekjuhæstur látinna einstaklinga
Elvis Persley er ekki lengur tekjuhæstur látinna einstaklinga í heiminum. Tískukóngurinn Yves Saint Laurent hefur velt honum úr sessi. Raunar er Elvis dottinn niður í fjórða sæti listans en Michael Jackson kemur sterkur inn í þriðja sætið.

Danske Bank hefur afskrifað yfir 500 milljarða á árinu
Danske Bank hefur neyðst til að afskrifa 20,7 milljarða danskra kr., eða ríflega 500 milljarða kr., á fyrstu níu mánuðum ársins. Bankinn skilaði hagnaði á þriðja ársfjórðung en hann fær samt þungt högg við opnun markaðarins í Kaupmannahöfn í morgun og hafa hlutir í honum lækkað um 5%.

Nordea í dómsmáli vegna kaupa í íslensku bönkunum
Norræni stórbankinn Nordea er nú í miklum vandræðum en finnskir fjárfestar hafa ákært bankinn um að hafa tælt sig til að fjárfesta í skuldabréfasjóðnum Mermaid. Tæplega 25 milljarðar kr. eru horfnar og eftir standa 1.400 til 1.500 reiðir Finnar. Nordea fjárfesti í íslensku bönkunum þremur auk þess að fjárfesta í undirmálslánum vestan hafs í gegnum þennan sjóð.

RBS kunngerir 3.700 uppsagnir
Breski bankinn Royal Bank of Scotland mun á næstunni segja upp 3.700 starfsmönnum sínum, sem eru um 14 prósent þeirra tæplega 26.000 sem í heildina starfa hjá bankanum.

Virgin vill kaupa í bresku bönkunum sem eru til sölu
Milljarðamæringurinn sir Richard Branson er klár í að kaupa hluta af bresku stórbönkunum Royal Bank of Scotland, Northern Rock og Lloyds Banking Group.

Mikil veltuauking á Nasdaq OMX Nordic markaðinum
Meðalvirði viðskipta á dag með hlutabréf var 465 milljarðar íslenskra króna, miðað við 391 milljarð síðustu 12 mánuði á Nasdaq OMX Nordic markaðinum í október. Meðalfjöldi viðskipta á dag var 223,478, miðað við 212,927 á síðasta 12 mánaða tímabili.

NunaMinerals finnur meira af gulli á Grænlandi
Námufyrirtækið NunaMinerals hafa fundið gull í tveimur af fimm borholum sínum á tvemur nýju leitarsvæðum á Grænlandi. Gullið hefur fundist á Niagornaasuk- og Qoorormiutsvæðunum á suðurhluta Grænlands.

Danir íhuga að skattleggja lífeyrisgreiðslur við innborgun
Töluverð umræða er nú í Danmörku um að breyta skattlagningu á lífeyrisgreiðslur þannig að þær verði skattaðar við innborgun þeirra í stað núverandi kerfis þar sem greiðslurnar eru skattlagðar við útborgun þeirra eins og raunin er hér á landi.

Kreppan heldur hjónaböndum gangandi vestan hafs
Þegar garðurinn er auður slást hestarnir og kreppur eru sem regla tímar skilnaða. Hinsvegar hefur fjármálakreppan að þessu sinni haft þau áhrif að bandarísk hjónabönd halda lengur en áður. Kannski sökum þess að hjón hafa ekki lengur efni á að skilja.

Gjaldþrot Roskilde Bank kostar hvern Dana 50.000 krónur
Hneykslið í kringum gjaldþrot Roskilde Bank er að breytast í verstu hugsanlegu martröðina fyrir danska ríkissjóðinn og þar með skattgreiðendur landsins. Þegar upp er staðið mun gjaldþrotið kosta hvern Dana 2000 danskar kr. eða um 50.000 kr.

Bankagjaldþrot í Bandaríkjunum orðin 115 talsins í ár
Bankagjaldþrot í Bandaríkjunum eru orðin 115 talsins í ár og um helgina óskaði bandaríski stórbankinn CIT Group eftir greiðslustöðvun. Reiknað er með að fjárhagsvandamál bankans muni kosta bandaríska skattgreiðendur 2,5 milljarða dollara eða um 320 milljarða kr.

Stærstu bankar heims hagnast á klasasprengjum
Stærstu bankar heims hafa hagnast mjög á því að fjármagna framleiðslu klasasprengna. Lán til sprengjuframleiðenda nema hátt í tvö þúsund og fimm hundruð milljörðum króna, enda þótt vaxandi þrýstingur sé á alþjóðavettvangi um að banna þessi vopn.

Tesco vildi Tony sem andlit sitt
Tony Blair átti í viðræðum við verslunarkeðjuna Tesco um að hjálpa þeim að opna kjörbúðir í mið-austur löndum, í staðinn fengi hann um eina milljón punda. Talið er að viðræðurnar á milli fyrrum forsætisráðherrans, sem nú er friðarerindreki á svæðinu, og verslunarkeðjunnar hafi endað eftir að samkomulag náðist ekki.

Keypti Möltufálkann á átta milljarða
Hin gríska Elena Ambrosiadou hefur keypt Möltufálkann, eina flottustu lúxusnekkju veraldar, á um átta milljarða. Elena, sem er vogunarsjóðssstjóri, vinnur sextán tíma á dag, sjö daga vikunnar samkvæmt Sunday Times og hefur því ekki mikinn tíma til að dvelja á snekkjunni.