Viðskipti erlent
227 228 229 230 231 232 233 234 235 … 334 ›
Töluverð lækkun á olíuverðinu í morgun Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði töluvert á mörkuðum í morgun. Þannig lækkaði verð á Brentolíunni um rúm 3% og stendur nú í rúmum 109 dollurum fyrir tunnuna í framvirkum samningum. Verð á bandarísku léttolíunni lækkaði um tæpa 3 dollara og stendur í rúmum 97 dollurum á tunnuna. Viðskipti erlent 23.5.2011 10:50
Lagrade með forystuna í kapphlaupinu um AGS Christine Lagarde fjármálaráðherra Frakklands er með afgerandi forystu þegar kemur að valinu á nýjum forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Viðskipti erlent 23.5.2011 09:14
Gosið veldur verðfalli á hlutum í flugfélögum Gosið í Grímsvötnum hefur valdið því að hlutir í flugfélögum og stórum ferðaskrifstofum hafa fallið á markaðinum í London í morgun. Í frétt um málið í Guardian segir að ástæðan sé einkum sú að menn óttist að gosskýið muni loka loftrými Bretlands og þar með valda miklum truflunum á flugi til og frá landinu. Viðskipti erlent 23.5.2011 08:41
Öskuskýið lengir flugferðir milli Evrópu og Bandaríkjanna Öskuskýið frá Grímsvötnum hefur þegar truflandi áhrif á flug milli norðurhluta Evrópu og Bandaríkjanna. Þannig segir Mikkel Thrane fjölmiðlafulltrúi SAS að farþegar þeirra sem ætla að fljúga frá Kaupmannahöfn til Bandaríkjanna megi gera ráð fyrir að flugið taki klukkutíma lengur en venjulega. Þetta er sökum þess að flugvélar SAS verða að taka á sig krók suður fyrir öskuskýið. Viðskipti erlent 23.5.2011 08:11
Miklar álbirgðir í heiminum en markaðurinn þrengist Í nýlegri greiningu á álmarkaðinum hjá Reuters kemur fram að þótt álbrigðir heimsins hafi aldri verið meiri sé markaðurinn samt að þrengjast, það er framboð heldur ekki í við eftirspurn. Þetta skýrist af m.a. því að lítil áform eru um að opna aftur mörg af þeim álverum sem lokað var í kreppunni. Viðskipti erlent 23.5.2011 07:40
Sá hæfasti stýri AGS Fjármálaráðherrar Ástralíu og Suður-Afríku telja mikilvægt að næsti framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðins verði skipaður út frá hæfniviðmiðum en ekki þjóðerni. Frá því að sjóðurinn var stofnaður eftir síðari heimsstyrjöldina hefur Evrópumaður alltaf gegnt embætti framkvæmdastjóra. Það telja ráðherrarnir afar óeðlilegt og leggja á áherslu á að staða framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé ekki einkamál Evrópu. Viðskipti erlent 22.5.2011 16:31
Grikkir ekki staðið við skuldbindingar Þróunarsjóður Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) hefur fryst frekari fjárframlög til Grikklands þar sem stjórnvöld þar hafa ekki staðið við sín fyrirheit í tengslum við framlögin. Viðskipti erlent 21.5.2011 07:15
Sækja fast að Evrópumaður taki við af Strauss-Kahn Evrópuríkin sækja það mjög fast að Evrópumaður taki við af Dominique Strauss-Kahn sem forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Um það er þó engin sátt í öðrum heimshlutum sem finnst komið að sér. Viðskipti erlent 19.5.2011 19:33
Líkir Goldman Sachs við vampýrukolkrabba Grein í tímaritinu Rolling Stone hefur valdið því að markaðsverðmæti Goldman Sachs, voldugasta fjárfestingarbanka heimsins hefur minnkað um 400 milljarða króna. Viðskipti erlent 19.5.2011 07:58
Kreppa aftur skollin á í Japan Samdráttur varð í landsframleiðslu Japans á fyrsta ársfjórðungi ársins upp á 0,9%. Mælt á milli ára er samdrátturinn 3,7%. Þetta er annar ársfjórðungurinn í röð sem samdráttur er í Japan og landið því opinberlega komið aftur í kreppu. Viðskipti erlent 19.5.2011 07:44
BankNordik kaupir Amagerbanken BankNordik, áður Færeyjabanki hefur keypt hluta af hinum gjaldþrota banka Amagerbanken. Viðskipti erlent 19.5.2011 07:41
Strauss-Kahn hættir sem forstjóri AGS Dominique Strauss-Kahn hefur sagt af sér sem forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér. Viðskipti erlent 19.5.2011 06:42
Geithner vill Strauss-Kahn strax úr embætti Timothy Geithner fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir að Dominique Strauss-Kahn sé í engri stöðu til þess að gegna forstjóraembættinu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og að stjórn sjóðins eigi strax að ráða annan forstjóra tímabundið. Viðskipti erlent 18.5.2011 07:40
Google sækir sér fé Bandaríska netfyrirtækið Google ætlar að sækja sér þrjá milljarða dala, jafnvirði 350 milljarða króna, með skuldabréfaútboði. Þetta er fyrsta skuldabréfaútboð fyrirtækisins. Viðskipti erlent 18.5.2011 07:00
Fylgjast grannt með íslensku efnahagslífi Fjölmiðlar á Norðurlöndum og Bretlandi fylgjast enn grannt með íslensku efnahagslífi. Þannig greindu margir þeirra frá því að matsfyrirtækið Fitch Ratings breytti horfum sínum fyrir lánshæfi Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Viðskipti erlent 17.5.2011 07:39
Eignir bandarísku forsetahjónanna 1,7 milljarðar Samkvæmt fjárhagsyfirliti Barack Obama Bandaríkjaforseta og eiginkonu hans Michelle liggur sparnaður þeirra aðallega í bandarískum ríkisskuldabréfum. Yfirlitið var birt í gærdag og nær yfir síðasta ár. Viðskipti erlent 17.5.2011 07:27
Handtaka Strauss-Kahn gæti valdið Grikkjum vandamálum Handtaka Dominique Strauss-Kahn getur hugsanlega valdið Grikkjum töluverðum vandamálum. Viðskipti erlent 16.5.2011 06:50
Hagnaður Magma var milljarður á fyrsta ársfjórðungi Magma Energy eigandi HS Orku skilaði 9 milljón dollara, eða um eins milljarðs króna, hagnaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta er mun meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 142 þúsund dollurum. Viðskipti erlent 16.5.2011 06:44
Hlutir í gjaldþrota banka hækkuðu um 950% Slagsmál tveggja danskra tískuhúsa um hinn gjaldþrota banka, Bonusbanken, í kauphöllinni í Kaupmannahöfn hafa valdið því að hlutir í félaginu Holdingselskapet af 1958 hafa hækkað um 950% á einni viku. Þrotabúið er nær eina eign félagsins. Viðskipti erlent 13.5.2011 12:43
85% fjárfesta telja grískt þjóðargjaldþrot í vændum Í könnun sem Bloomberg fréttaveitan gerði meðal fjárfesta, miðlara og hagfræðinga kom í ljós að 85% þeirra telja að grískt þjóðargjaldþrot sé í vændum. Grikkland geti einfaldlega ekki staðið við skuldbindingar sínar. Viðskipti erlent 13.5.2011 10:16
Þýska aflvélin keyrir áfram af fullum krafti Landsframleiðsla Þýskalands jókst um 1,5% á fyrsta ársfjórðungi ársins m.v. fjórðunginn á undan. Ef miðað er við sama tímabil í fyrra er vöxturinn tæp 5% þegar tekið hefur verið tillit til verðbólgu. Þýska aflvélin á evrusvæðinu keyrir því áfram af fullum krafti þessa dagana. Viðskipti erlent 13.5.2011 09:23
Facebook í rógsherferð gegn Google Facebook gekk skrefinu of langt í baráttu sinni gegn Google með því að ráða almannatengslastofu til að fara í rógsherferð gegn Google. Þetta kemur fram á vefsíðunni business.dk. Viðskipti erlent 12.5.2011 14:49
Axcel með einn mesta hagnað í sögu Danmerkur Fjárfestingarsjóðurinn Axcel skilaði hagnaði upp á 11,5 milljarða danskra kr. eða yfir 250 milljarða kr. á síðasta ári. Í frétt um málið á börsen.dk segir að um sé að ræða einn mesta hagnað á einu ári í sögu Danmerkur. Viðskipti erlent 12.5.2011 10:29
Saab á leið í svaðið Spyker eigandi sænska bílaframleiðendans Saab hefur tilkynnt að kínverskur stórfjárfestir hafi hætt við að setja nýtt fjármagn inn í Saab. Þar með virðast dagar Saab vera taldir. Viðskipti erlent 12.5.2011 09:34
Norrænt hamborgarastríð í uppsiglingu Það stefnir í norrænt hamborgarastríð eftir að sænska hamborgarkeðjan Max lýsti því yfir að hún ætlaði í harða samkeppni við Burger King og McDonalds í Noregi. Viðskipti erlent 12.5.2011 08:50
Annað verðhrun á olíu - viðskiptin stöðvuð Annað verðhrun varð á heimsmarkaðsverði á olíu á markaðinum í New York í gærkvöldi. Vegna hrunsins voru viðskiptin á hrávörumarkaðinum Nymex stöðvuð í fimm mínútur. Viðskipti erlent 12.5.2011 08:38
Breski seðlabankinn spáir minni hagvexti á árinu Verðbólga í Bretlandi verður líklega yfir markmiðum og hagvöxtur minni en áætlað var næstu tvö árin, samkvæmt ársfjórðungsspá Englandsbanka sem birt var í gær. Breska dagblaðið The Guardian hefur eftir seðlabankastjóranum Mervyn King að horfur til skamms tíma hafi versnað frá því í febrúar. Viðskipti erlent 12.5.2011 07:00
Sjórán kosta skipafélög 1.400 milljarða Sómalskir sjóræningjar kostuðu skipafélög heimsins 12 milljarða dollara eða tæpa 1.400 milljarða kr. á síðasta ári. Þetta segir æðsti yfirmaður alþjóðalögreglunnar Interpol. Viðskipti erlent 11.5.2011 14:20
Somaxon höfðar mál gegn Actavis Bandariska lyfjafyrirtækið Somaxon Pharmaceuticals hefur höfðað dómsmál gegn Actavis vegna meintra brota gegn einkaleyfi. Málið snýst um umsókn Actavis um að framleiða samheitalyfsútgáfu og lyfinu Silenor sem notað er gegn svefnleysi. Viðskipti erlent 11.5.2011 13:16
Forbes segir gullfótinn snúa aftur innan 5 ára Steve Forbes aðalritstjóri Forbes tímaritsins spáir því að Bandaríkjamenn taki upp gullfótinn innan fimm ára, það er bindi aftur gengi dollarans við verð á gulli. Viðskipti erlent 11.5.2011 12:52