Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veðurstofan hefur gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir á stærstum hluta landsins á miðvikudag. Von er á stormi og stórhríð og hefur veðurfræðingur sagt að gera megi ráð fyrir að meðal annars verði raskanir á flugi. Veður 12.10.2026 13:52
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Skil fóru yfir landið í nótt með hvassviðri og stormi sem fara norður af landinu um hádegisbil. Í dag og á morgun er spáð skúrum en á miðvikudag er von á annari lægð og þá er spáð snjókomu fyrir norðan. Veður 12.10.2026 07:20
Suðaustan stormur og gul viðvörun Búast má við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestanlands með rigningu í kvöld. Gul viðvörun vegna storms tekur gildi klukkan tíu í kvöld á Suðurlandi. Veður 11.10.2026 07:36
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægðin sem olli úrhelli í gær er hvergi á förum og mun áfram stýra veðrinu víða um landið í dag. Þá er víða væta og vestan norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu en búast má við snarpari vindi syðst á landinu og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast undir Mýrdals- og Öræfajökli svo dæmi sé tekið. Veður 4.10.2026 07:15
Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Það er blautur laugardagur í vændum og lægð sendir regnsvæði sitt yfir allt landið, að sögn veðurfræðings. Spáð er suðaustan og sunnan átta til þrettán metrum á sekúndu með rigningu í dag og gert ráð fyrir talsverðri úrkomu á Suður- og Vesturlandi fram undir kvöld. Hiti á bilinu sjö til tólf stig. Veður 3.10.2026 08:30
Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna suðaustan storms á norðaustanverðu landinu í nótt og fram á morgundaginn. Viðvaranir eru þegar í gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu vegna mikillar úrkomu. Veður 30.9.2026 08:48
Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Auknar líkur eru á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur fram að talsverðri til mikilli úrkomu sé spáð, einkum á Suðausturlandi, við jökla á Suðurlandi, á sunnanverðu miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum fram á fimmtudagskvöld. Veður 30.9.2026 07:29
Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Gular veðurviðvaranir taka gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu klukkan tvö í nótt vegna mikillar úrkomu. Viðvaranirnar verða í gildi til klukkan þrjú síðdegis á morgun, miðvikudaginn 30. september. Veður 29.9.2026 17:45
Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Búast má við talsverðri úrkomu á norðvesturhluta landsins, rigningu á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomulítið verður annars staðar á landinu, þó má búast við vætu á köflum suðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu þrjú til ellefu stig, svalast á Vestfjörðum. Veður 27.9.2026 08:03
Enn hætta á skriðum Enn er hætta á skriðum og grjóthruni á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum og nokkuð hefur verið um grjót sem hefur fallið á vegi. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðan á fimmtudag og spáð er áframhaldandi úrkomu fram á mánudag. Veður 26.9.2026 11:48
Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Gera má ráð fyrir talsverðri úrkomu um norðvestanvert landið í dag en slyddu og snjókomu til fjalla. Skýjað verður með köflum sunnan- og austantil og sums staðar væta. Hiti verður á bilinu þrjú til tólf stig, svalast á Vestfjörðum en mildast á landinu austanverðu. Veður 26.9.2026 07:47
Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra vegna storms og mikillar rigningar. Viðvaranirnar verða í gildi í allan dag og fram á kvöld. Veður 25.9.2026 07:31
Rigning og vindur Í dag er vaxandi austanátt, víða 13 til tuttugu metrar á sekúndu með morgninum en átján til 25 metrar á sekúndu sunnanlands fram að hádegi. Rigning um allt land og talsverð eða mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum fram á kvöld. Veður 24.9.2026 06:40
Gular viðvaranir á morgun Í fyrramálið taka gular viðvaranir gildi á Suður- og Austurlandi vegna austan storms og mikillar rigningar. Vindhviður gætu náð 35 metrum á sekúndu. Veður 23.9.2026 06:57
Rigning, rigning, rigning Það gengur í suðvestan tíu til átján metra á sekúndu í dag. Víða skúrir, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands. Dregur úr vindi í kvöld. Veður 22.9.2026 06:54
Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa vegna vinds. Viðvaranirnar fallar úr gildi klukkan níu. Veður 21.9.2026 07:05
Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Gefin hefur verið út gul viðvörun sem tekur gildi klukkan fimm í fyrramálið á suðvestanverðu landinu en fólk er hvatt til að huga að lausamunum utandyra. Veður 20.9.2026 21:01
Hvessir allverulega á morgun Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands vekja athygli á því að snemma á morgun gangi í austan hvassviðri syðst á landinu sem geti verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Veður 20.9.2026 07:30
Bjart framan af en skúrir síðdegis Í dag er spáð norðlægri átt, 3-8 m/s, og rigningu eða súld með köflum, einkum á norðaustanverðu landinu. Bjart með köflum sunnan- og suðvestanlands framan af degi, en skúrir síðdegis. Hiti 7 til 13 stig. Veður 19.9.2026 07:21
Skýjað og dálítil væta víðast hvar Í dag er spáð norðvestan 5-13 metrum á sekúndu, hvassast við suðvestur- og vesturströndina, en hægari breytileg átt austantil. Þá á að vera skýjað með köflum á Suðaustur- og Austurlandi, annars skýjað og dálítil væta. Hiti verður á bilinu sjö til 14 stig, svalast fyrir norðan. Veður 17.9.2026 07:12
Rigning og víða hvasst um nær allt land Í dag er spáð suðaustan 10-18 m/s og rigningu, hvassast suðvestantil. Sums staðar talsverð rigning um tíma, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í sunnan og suðvestan 3-8 metra á sekúndu er líður á daginn og þá á að draga og dregur úr vætu á sunnan- og vestanverðu landinu. Veður 16.9.2026 07:13
Vara við hvössum vindum í nótt Ökumenn eru varaðir við hvössum vindum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi og við Eyjafjöll í nótt. Von er á 35 m/s vindhviðum fram til hádegis á morgun. Veður 15.9.2026 10:23
Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Veðurstofan gerir ráð fyrir að í dag verði yfirleitt fremur hæg breytileg átt á landinu og bjartviðri en dálítil súld á köflum norðaustan- og austanlands fram yfir hádegi. Veður 15.9.2026 06:59
Haustið mætir á miðvikudaginn Landsmenn ættu að nýta daginn í dag og morgundaginn í að spóka sig úti og hoppa á trampólínum áður en haustveðrið mætir í ótímabærri innkomu á miðvikudag. Veðurfræðingur segir von á talsverðri rigningu og hvössum vindum. Veður 14.9.2026 11:01