Skoðun

Viltu borga 200 þús á mánuði eða 600 þús á mánuði af íbúðinni?
Há vaxtaprósenta gerir ekkert nema flytja peninga úr vösum tekjulágra í vasa þeirra tekjuháu. Hún lækkar hvorki verðbólgu né skapar stöðugleika. Í raun kynda háir stýrivexti frekar undir verðbólgu, eins og nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stieglitz hefur bent á, sérstaklega þar sem húsnæðisverð er inni í vísitölu neysluverðs.

Þegar náttúruvinir hitta frambjóðendur. Hjálpartæki kjósandans
Náttúruperlan Ísland fær ekki mikla athygli í kosningabaráttunni. Stundum finnst manni að allir Íslendingar eigi að lifa sig inn í tilgang lífsins eins og hann er skilgeindur af verðbólgumarkmiðum Seðlabankas.

Svartir föstudagar í boði íslenskra stjórnvalda
Núna eru sumar búðir með útsölu sem kallast: Svartir föstudagar. Þar getur þú sparað pening.

Eitt heimili, ein fjölskylda og ein heilsa
Heilbrigð náttúra er undirstaða afkomu okkar og velsældar líkt og verið hefur alla tíð. Umgengni okkar um náttúru og náttúruleg gæði þarf því ekki bara að vera góð, heldur líka á forsendum náttúrunnar sjálfrar, svo sem frekast er unnt.

BRCA
Jóhanna Lilja Eiríksdóttir formaður Brakkasamtakanna, steig fram nýverið á íbúafundi Flokks fólksins í Vestmannaeyjum. Um leið og Jóhanna hóf mál sitt, varð öllum sem á hlýddu ljóst, að hér þarf að leggja við eyrun.

ESB kærir sig ekkert um Ísland í jólagjöf
Undirritaður ólst upp á Sauðárkróki og metur Sauðkrækinga og Skagfirðinga almennt mikils. Gott fólk og gegnt. Undantekning er þó á flestu, líka því.

Að kjósa með nútíma hugsunarhætti
Kosningarnar sem standa nú yfir má líkja við sætisbeltaljós í miðri ókyrrð. Hvað á að kjósa þegar fjármál landsins, skólamál, geðheilbrigðismál og umhverfismál eru öll í hnút? Flokkarnir lofa öllu fögru en hvað ætla þau að standa við, hvernig getum við vitað betur?

Í upphafi skal endinn skoða..
Byggjum traustan grunn.. Dæmisaga nr 2 úr daglegu lífi.

Stjórnvöld, virðið frumbyggjaréttinn í íslensku samfélagi
Frumbygginn er í okkur öllum. Hann býr í þjóðarsálinni og menningu okkar. Hann erfist á milli kynslóða og opnar dyr til að starfa í gjövulli náttúru landsins. Frumbygginn gerir ekki kröfu til eignaréttar. Handfæraveiðar hafa í gegnum aldirnar verið grunnstoð til afkomu fólksins.

Handleiðsla og vellíðan í starfi
Álag í starfi, streita og kulnun er áhyggjuefni og kostnaðarsamt bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild sinni. Það er alvarlegt þegar fagfólk treystir sér ekki lengur til að starfa við fagið sem það menntaði sig til.

Eldgos og innviðir: Tryggjum öryggi Suðurnesja
Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að tryggja öryggi samfélagsins. Frá því að eldgosin á Reykjanesi hófust hef ég sem orkumálastjóri lagt ríka áherslu á orkuöryggi svæðisins og unnið að fjölda verkefna sem mörg hver hafa nú þegar orðið að veruleika í samvinnu við ráðuneyti, almannavarnir, stofnanir og fyrirtæki.

Er aukin einkavæðing lausnin?
Það ætti að vera augljóst öllum að hægri vængur íslenskra stjórnmála er hlynntur einkavæðingu í velferðarþjónustunni, í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og einnig í samgöngum.

Samfélag á krossgötum
Framan af í kosningabaráttunni snerist umræðan einkum um efnahagsmálin og því ákváðum við hjá ASÍ og BSRB að efna til kosningafundar með forystufólki stjórnmálaflokkanna í vikunni til að ræða áherslur þeirra varðandi húsnæðismál, verð á matvöru, félagslegum innviðum á borð við heilbrigðis- og menntakerfi og jöfnuð.

Hvað er vandamálið?
Þó umræðan síðustu vikur hafi verið mjög áhugaverð þá hefur mér þótt vanta sárlega skýra sýn á þau vandamál sem að okkur stafa.

Au pair fyrirkomulagið – barn síns tíma?
Í mars síðastliðnum tóku gildi ný lög í Noregi sem felldu úr gildi lagaheimild til að veita dvalarleyfi á grundvelli vistráðningarsambands (í daglegu tali nefnt au pair). Afnám heimildarinnar var eitt af markmiðum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Verkamannaflokksins og Miðflokksins frá 2021 um það hvernig unnið skyldi gegn félagslegum undirboðum (e. social dumping) og glæpum á norskum vinnumarkaði.

Fontur – hiti þrjú stig
Í bernsku minni malaði útvarpið stöðugt. Ég man eftir þægilegum röddum á rás tvö. Útvarpsleikfimin skýrmælt. Og svo var stundum stinningskaldi og súld á stöku stað svo sem á Fonti og Dalatanga. Um seinni partinn tók Sigurður G. Tómasson og hans fólk öll völd með Þjóðarsálinni sálugu sem verður að teljast einn albesti útvarpsþáttur sögunnar.

Bankinn gefur, bankinn tekur
Þó Seðlabankavextir séu enn þeir hæstu í Evrópu, utan átakasvæða, fögnuðu lántakar í gær þegar Seðlabankinn lækkaði stýrivexti. Sáu þeir fram á að greiðslubyrði lána sinna myndu lækka.

Hægt og hljótt
Einkavæðing almannarýmisins er í fullum gangi. Hægt og hljótt.

Kennaraverkfall – sparka í dekkin eða setja meira bensín á bílinn?
Alls konar stéttir fara í verkfall með aðferðum sem eiga að vera óþægilegar, t.d. lítill hluti hótelstarfsfólks, sem gerir það að verkum að hótelið lamast.

Gervigóðmennska fyrir almannafé
Margir Íslendingar upplifa vanmátt gagnvart stjórnmálunum. Alveg sama hvað maður kýs þá verður útkoman alltaf miðjumoð sem enginn er ánægður með.

Góður granni, gulli betri!
Landsvirkjun vill vera góður granni. Orkufyrirtæki þjóðarinnar kappkostar að eiga traust og gott samstarf við alla nágranna aflstöðva sinna á ýmsum sviðum og alveg sérstaklega til að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar. Keppikefli okkar er að skapa aukna velsæld í nærsamfélagi virkjana okkar, sem og á Íslandi öllu.

Frelsi er alls konar
Frelsi einstaklinga til skoðana og athafna er ekkert sérlega umdeilt lengur á Íslandi, sem betur fer. En það þarf þó að standa vörð um það sem endranær. Þá setur að manni ugg þegar maður les um stórfelldar takmarkanir á einstaklingsfrelsi í Bandaríkjunum, sérstaklega gagnvart konum, en þangað var jú horft í miklum mæli áður þegar rætt var um einstaklingsfrelsi.

Betra plan í ríkisfjármálum
Sósíalistaflokkurinn leggur höfuðáherslu á að tekjuöflun ríkissjóðs verði gerð réttlátari. Það er forsenda þess að hægt sé að stöðva skuldasöfnun ríkisins sem dregur niður lífskjör almennings bæði til lengri og skemmri tíma.

Íslenskufræðingurinn Sigmundur Davíð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur farið mikinn á samfélagsmiðlinum X undanfarna daga þar sem hann amast við kynhlutlausu máli og vitnar m.a. í grein sína „Pólitísk skemmdarverk á íslenskri tungu,“ sem birtist fyrst í Morgunblaðinu 16. maí síðastliðinn.

Dýrkeyptur aðgangur
Í gær skrifaði ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar grein þar sem hún telur engan vafa liggja á því að fyrirtæki eins og Intuens og Greenfit geti létt á heilbrigðiskerfinu.

Þarf Alþingi að vera í óvissu?
Geta alþingismenn ekki lengur treyst því að breytingar sem þeir gera á frumvörpum hafi lagagildi? Spurt var að þessu á netinu í gær með orðunum „Þessi dómur skapar mikla lagaóvissu fyrir Alþingi þar sem nú er ekki ljóst hversu mikið má breyta lagafrumvörpum í nefndum Alþingis og svo virðist sem það geti orðið héðan í frá matsatriði dómara hverju sinni.“

Stöndum með einyrkjum og sjálfstætt starfandi
Við sem samfélag þurfum að taka höndum saman og verja réttindi og kjör einyrkja og sjálfstætt starfandi. Staða þess hóps getur verið mjög misjöfn en í mjög mörgum tilfellum er gengið á réttindi þeirra.

Ætla Íslendingar að standa vörð um orkuauðlindir sínar?
Einhver myndi segja að sá bóndi er seldi frá sér allar bestu mjólkurkýrnar væri vitlaus maður. Utan ef tilgangurinn væri að pakka saman, hætta rekstri og selja hæstbjóðanda.

Evrópa og sjálfstæði Íslands
Það styttist í kosningar til Alþingis Íslendinga. Fólk er að velta fyrir sér hvort það eigi enn og aftur að taka sénsinn að velja þá sem sitja nú við stjórn, hafa verið í stjórnarandstöðu eða bara að kjósa nýtt fólk til að losa sig við gömlu sviknu loforðin og refsa stjórnmálamönnum.

Heilnæmt samfélag, betri lífskjör og jöfn tækifæri fyrir öll
Alþingiskosningar eru tækifæri okkar allra til að móta samfélag okkar og framtíð. Í kosningum, tökum við þátt í að móta framtíð okkar og þeirra sem á eftir okkur koma. Við getum haft raunveruleg áhrif á hvernig geðheilbrigðismál, efnahagur og önnur mikilvæg málefni eru meðhöndluð til framtíðar.