

Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta fagnaði níutíu ára afmæli sínu í gærkvöldi og var fjöldi þjóðþekktra einstaklinga viðstaddur viðburðinn í Gamla bíói.
Ísafjarðarbær og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hafa undirritað samstarfssamning fyrir árin 2025 til 2027 með það að markmiði að hátíðin verði áfram árlegur viðburður í bænum um páskahátíðina.
Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikarinn á lokaathöfn alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Clermont-Ferrand í Frakklandi. Hátíðin var haldin í gærkvöldi. Ingvar hlaut verðlaunin sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni O (Hringur) í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar og framleidd af Heather Millard.
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!
„Ég hef sagt að einu sinni hafi ég upplifað kulda á ævinni – ekkert annað toppar þetta. Maður var tilfinningalaus á höndum og fótum. Allar hugsanir og hreyfingar voru eins og í bíómynd sem var sýnd hægt. Þarna var bara spurning um tíma – hvað ég myndi endast kuldans vegna,“ segir Bergþór Ingibergsson, fyrrum stýrimaður á Barðanum GK, í nýjasta nýjasta Útkallsþætti Óttars Sveinssonar og Heiðars Aðalbjörnssonar.
Hlaðvörp hafa undanfarin misseri komið eins og stormsveipur inn í íslenska dægurmenningu og þjóðmálaumræðu. Hvort sem þau eru um stjórnmál, fótbolta, glæpi eða lífsstíl þá virðist eftirspurnin endalaus og framboðið sömuleiðis. Sumir myndu segja að þetta sé í raun og veru blogg ársins 2025.
Flytjendur fimm laga keppast í kvöld í fyrri undankeppni Söngvakeppninnar á RÚV. Úrslitin fara fram þann 22. febrúar og þá verður framlag Íslands til Eurovision í Sviss í maí valið. Undanúrslitakvöldin verða tvö, í kvöld og næsta laugardag. Aron Can kemur einnig fram í kvöld og flytur tvö lög.
„Ég var bara ungabarn þegar mamma neyddist til að halda mér niðri öskurgrátandi á meðan læknir tók úr mér blóðprufu, svo þú gætir fengið staðfestingu hvort ég væri „þitt blóð“. Með þessum orðum hófst bréf sem Magdalena Katrín Sveinsdóttir tók tíu ár í að skrifa, og birti loks á facebook nú á dögunum. Bréfið var stílað á afskiptalaust foreldri, en hún hefur ekki séð blóðföður sinn í fimmtán ár.
Hæfileikabúntið og Akureyringurinn Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony, segir að fyrirhuguð þriggja mánuð búseta í Los Angeles hafi orðið að súrrealískum tíu árum. Á þessum tíu árum hefur hann landað hlutverkum í hinum ýmsu sjónvarpsþáttum og kvikmyndum en síðast lék hann í verkefnum með stjörnum eins og David Schwimmer og Will Ferrell.
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.
Maríanna Pálsdóttir, eigandi Snyrtistofu Reykjavíkur, og Guðmundur Ingi Hjartarson eru trúlofuð. Guðmundur, eða Dommi, hefur unnið hörðum höndum að uppbyggingu við Laxár á Keldum, er eigandi Netheima og job.is og starfar sem ráðgjafi.
Eitt sögufrægasta þorrablót landsins, sjálft Kommablótið á Neskaupsstað var haldið síðastliðinn laugardag í 59. skiptið. Venju samkvæmt var skemmtanametið slegið og í þetta skiptið var þemað í anda villta vestursins.
Sofia prinsessa af Svíþjóð er búin að eiga. Hún eignaðist dóttur klukkan 13:10 í dag. Þetta er fjórða barn hennar og Karls Filippusar.
Kanye West hefur á síðustu klukkutímum sagst vera nasisti og elska Adolf Hitler. Hann segir gyðingahatur bull sem gyðingar bjuggu til og hann ætli aldrei aftur að biðjast afsökunar á ummælum sínum.
Steinþór Hróar Steinþórsson sjónvarpsmaður betur þekktur sem Steindi jr. er ekki að flytja úr Mosfellsbænum og í Garðabæ líkt og fram kemur í nýjasta tölublaði Mosfellingsins. Þar lítur út fyrir að um viðtal við Steinda sé að ræða þegar raunin er sú að stríðnispúkinn Auðunn Blöndal heldur þar á penna.
Ráðherrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa verið að ráða sér aðstoðarmenn undanfarnar vikur. Í einhverjum tilfellum má segja að ekki sé leitað langt yfir skammt. Sumir aðstoðarmenn tengjast ráðherrum sökum þess að ástarguðinn Amor skaut örvum sínum og hitti beint í mark.
Nýr upplýsingavefur um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu er kominn í loftið. Hann ber heitið utumallt.is og var formlega tekinn í notkun á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) síðastliðinn mánudag.
Vetrarhátíð verður sett í dag í Reykjavík. Á hátíðin að lífga upp á borgarlífið næstu daga. Allir viðburðir tengjast ljósi og myrkri með einum eða öðrum hætti og frítt er á alla viðburði.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks héldu partý í gær til að stilla saman strengi fyrir átök komandi þingvetrar. Það var glatt á hjalla, áfengi á boðstólum og karíókístuð þó sumir þingmenn hefðu ekki látið sjá sig.
Ungt par í Laugardalnum gekk í gegnum martröð allra foreldra í maí 2023, þegar fjögurra ára sonur þeirra lést sviplega eftir skammvinn veikindi. Þau hafa bæði verið samstíga og farið sínar eigin leiðir í sorginni, sem hefur á köflum verið yfirþyrmandi.
Lokaþáttur af Draumahöllinni var sýndur á föstudeginum fyrir viku en þættirnir hafa hlotið mikið lof.
Það var eftirvænting í lofti í Borgarleikhúsinu í síðustu viku þegar Marmarabörn frumsýndu Árið án sumars, lokahnykkinn í hamfaraþríleik. Meðal þeirra sem létu sjá sig voru Unnsteinn Manuel, Berglind Festival og Hallgrímur Helgason.
Það var húsfyllir og eftirvænting í lofti þegar kvikmynd Ásthildar Kjartansdóttur, Fjallið var frumsýnd í Sambíóunum Kringlunni á þriðjudagskvöld. Meðal þeirra sem létu sjá sig var Erpur Eyvindarson rappari sem gjarnan er þekktur sem Blaz Roca.
„Við erum búnir að vera að róa í heilt ár, yfirhöfin sjö, aðallega Atlantshafið samt þar sem við komum við í Grænlandi og í Færeyjum, í leit að tilgangnum, hvað skal gera næst,“ segja Væb-bræður sem frumsýna á Vísi tónlistarmyndband sitt við lagið Róa.
Þórarinn Ævarsson athafnamaður segist hafa snúið blaðinu við eftir að hafa orðið ölvaður af eigin velgengni. Hann starfar nú sem leiðsögumaður í víðum skilningi þess orðs og segist ekki lengur eiga sportbíl heldur gamlan Subaru. Hann segist vilja brjóta á bak aftur tabú um hugvíkkandi efni og telur hugmyndafræði Ikea geta nýst vel í verkið.
Egill Ásbjarnarson, einn eigandi herrafataverslunarinnar Suitup Reykjavik, hefur sett íbúð sína við Öldugötu í Vesturbæ Reykjavíkur á sölu. Ásett verð er 107 milljónir.
Kanye West segist hafa verið ranglega greindur með geðhvörf og sé í raun einhverfur. Hann þakkar eiginkonu sinni fyrir að senda hann í greiningu og segist hættur að taka geðlyf.
Katie Cassidy fyrirsæta og kærasta Liam Payne hefur í fyrsta sinn tjáð sig um andlát hans í Argentínu og síðustu augnablik þeirra saman. Hún segir að hefði hún vitað hvernig var hefði hún aldrei yfirgefið hann í Argentínu.
Athafnakonan Arndís Björg Sigurgeirsdóttir og ljósmyndarinn Bára Kristinsdóttir hafa komið sér einstaklega vel fyrir í einbýlishúsi í Kópavoginum.
Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen hefur eignast sitt þriðja barn og það fyrsta með Jiu-jitsu-þjálfaranum Joaquim Valente.