

Ósk Tryggvadóttir og Ingólfur Valur Þrastarson eiga von á barni. Þau hófu samband sitt eftir að hafa tekið upp myndbönd fyrir OnlyFans-síður þeirra saman.
Bæjarhátíðin í Túninu heima er nú í fullum gangi en hún fer jafnan fram síðustu helgina í ágúst.
Hrafnhildur Haraldsdóttir var krýnd Miss Universe Iceland 2022. Sýnt var frá keppninni í beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi.
„Þetta getur vissulega verið krefjandi á tímum en ég finn mig mjög vel í þessu hlutverki. Það sem skiptir mig og okkur öllu máli er að setja börnin í fyrsta sætið, passa uppá samskiptin og að öllum líði vel í breyttum aðstæðum,“ segir Camilla Rut í viðtali við Makamál.
Ein ástsælasta leikkona landsins, Edda Björgvinsdóttir, hefur sett íbúð sína á Skólavörðustíg 6a á sölu. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð, 74,5 fermetrar og er ásett verð tæplega 69 milljónir.
Coleen Rooney, athafnakona og eiginkona Wayne Rooney, hefur skrifað undir samning við streymisveituna Disney+ sem nemur mörgum milljónum Bandaríkjadala. Samningurinn tryggir veitunni rétt á sýningu þáttaraðar um Wagatha Christie-dómsmálið svokallaða.
Í nýju myndbandi frá Stöð 2 má sjá fyrsta sýnishornið úr þáttunum Svo lengi sem við lifum. Með aðalhlutverk í þáttunum fer leikkonan Aníta Briem en hún er einnig handritshöfundur þáttanna.
Stjörnuparið Elma Stefanía Ágústsdóttir leikkona og Mikael Torfason rithöfundur hafa sett íbúð sína á sölu.
Stórt skemmtiferðaskip hefur vakið athygli við höfnina hjá Klettagörðum í Reykjavík síðustu daga. Skipið sem um ræðir er skemmtiferðaskipið Norwegian Prima sem mun fá formlega nafngift við Skarfabakka um helgina.
Það var ótrúlega góð stemning í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt þegar Herra Hnetusmjör steig á svið. Rapparinn tók alla sína helstu slagara og áhorfendur dönsuðu með.
Sigmar Vilhjálmsson var gestur Gústa B í þættinum Veislunni á FM957. Hann tók þar meðal annars léttan símahrekk á Aroni Mola leikara.
Tónlistarhátíðin Stíflan verður endurvakin í Árbænum þann 27. ágúst en um er að ræða risa útitónleika í Árbænum á vegum Tónhyls í samstarfi við Fylki og Reykjavíkurborg.
Þau kynnast og verða ástfangin. Allt er eitthvað svo fullkomið. Þau verða par. Hann á tvö börn úr fyrra sambandi og hún á þrjú. Þau elska að vera sem mest saman en svo er það þetta með börnin, fjölskylduna, búsetuna og framtíðina.
Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur er með skrifstofuna sína á hjólum en hún á nettan húsbíl sem hægt er að leggja hvar sem er og hún velur á hverjum degi nýja staðsetningu og nýtt útsýni.
Door Allen kirkjan í Texas sem sögð er hafa sýnt „Hamilton“ söngleikinn í leyfisleysi hefur nú formlega beðist afsökunar á gjörðum sínum og segist muna greiða bætur vegna þessa.
Andrea Röfn Jónasdóttir og eiginmaður hennar Arnór Ingvi Traustason hafa tekið á móti syni sínum sem hefur einnig hlotið nafn. Samkvæmt sameiginlegri Instagram færslu hjónanna heilsast móður og barni vel.
Fjölmennt var í Tónleikaveislu Bylgjunnar á Menningarnótt þrátt fyrir rokið. Áhorfendur voru reglulega hvattir til að dansa til þess að halda á sér hita.
Archetypes, nýtt hlaðvarp hertogaynjunnar Meghan Markle, steypti hlaðvarpinu The Joe Rogan Experience af stóli sem vinsælasta hlaðvarp streymisveitunnar Spotify í Bandaríkjunum. Aðeins tveir dagar eru liðnir síðan fyrsti þáttur Archetypes var gefinn út.
Hljómsveitin Systur kom fram á Tónleikaveislu Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Þau Sigga, Beta, Elín og Eyþór fluttu þar meðal annars lagið Með hækkandi sól sem var framlag Íslands til Eurovision í ár.
Loksins er orðið ljóst hvaða einstaklingar sjá um að halda uppi fjörinu á Idol sviðinu á Stöð 2 í haust. Það eru þau Aron Már Ólafsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sem fara með það stóra hlutverk að vera kynnar í Idol líkt og Simmi og Jói hér forðum.
Þrátt fyrir að eldgosinu í Meradölum sé að öllum líkindum lokið var nóg að gerast í vefmyndavél Vísis í fyrradag. Þar mætti maður í fullum skrúða hlífðarfatnaðar og lék listir sínar fyrir áhorfendur líkt og hann væri staddur í geimnum.
„Það var spennufall í gær, það er sama hversu oft ég geri þetta ég fer alltaf að grenja og það eru alltaf allar tilfinningarnar,“ segir Manuela Ósk Harðardótir framkvæmdastjóri keppninnar Miss Universe Iceland eftir keppnina í gær.
Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon á nú von á sínu níunda og tíunda barni. Nýjasta tilkynningin er hans þriðja barn með fyrirsætunni Brittany Bell en fyrir eiga þau börnin Golden Sagon og Powerful Queen.
Ný kvenna- og fæðingardeild var formlega opnuð á skólalóð ABC barnahjálpar í bænum Rockoko í norðurhluta Úganda fyrr í mánuðinum. Framkvæmdin var fjármögnuð með stuðningi íslenska utanríkisráðuneytisins, nytjamarkaðar ABC og sömuleiðis annarra styrktaraðila.
Sérstök Universal Pictures sýning á kvikmyndinni Beast fór fram í London í gær. Baltasar Kormákur leikstjóri myndarinnar mætti á frumsýninguna ásamt fjölskyldu sinni.
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson gerði sér lítið fyrir og steypti sér fram af Hörpu til þess að skemmta gestum á Menningarnótt. Hann virtist ekkert kippa sér upp við það að vera í 43 metra hæð og söng og spilaði fyrir áhorfendur líkt og ekkert væri eðlilegra.
Í öðrum þættinum af LXS var sýnt frá skíðaferðinni árlegu sem þær vinkonurnar fara alltaf í saman. Að þessu sinni var farið á Sauðárkrók og var búið að plana ferðina alveg frá a-ö.
Hertogaynjan Meghan Markle hefur ákveðið að stíga inn í hlaðvarpsheiminn með þáttunum sínum Archetypes. Fyrsti viðmælandi hennar er tennisstjarnan Serena Williams sem nýlega tilkynnti að hún væri að fara að setjast í helgan stein eftir stórfenglegan feril.
Hrafnhildur Haraldsdóttir, Miss East Reykjavík, var rétt í þessu krýnd Miss Universe Iceland 2022. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.
Hægt er að fylgjast með Miss Universe Iceland keppninni í beinni útsendingu hér og á Stöð 2 Vísi. Í kvöld kemur í ljós hvaða stúlka hlýtur titilinn í ár og mun keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe 2022.