
Handbolti

Saga Sif kölluð inn í landsliðið vegna meiðsla Hafdísar
Hafdís Renötudóttir, markvörður íslenska landsliðsins í handbolta, verður ekki með í leiknum gegn Svíþjóð á morgun vegna meiðsla. Saga Sif Gísladóttir hefur verið kölluð inn í hópinn.

Arnór Atla mætir gamla félaginu sínu í Íslendingaslag í undanúrslitum HM
Danska félagið Álaborg Håndbold var án íslenska landsliðsmannsins Arons Pálmarssonar í dag en var samt sem áður í litlum vandræðum með að tryggja sér sæti í undanúrslitum á heimsmeistarakeppni félagsliða.

Janus Daði sagður á leið til norska ofurliðsins
Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, gæti verið á förum til væntanlegs ofurliðs Kolstad í Noregi.

Sex íslensk mörk þegar Magdeburg fór áfram í Sádí Arabíu
Íslendingaliðið Magdeburg tryggði sér sæti í undanúrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða í dag með sannfærandi sigri á Asíumeisturum Al Duhail frá Katar.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Selfoss 31-22| Haukar rúlluðu yfir Selfyssinga
Haukar rúlluðu yfir Selfyssinga sem voru afar andlausir og litu út fyrir að hafa takmarkaðan áhuga á að veita Haukum mótspyrnu.Yfirburðir Hauka voru það miklir að það var orðið ljóst í hálfleik hvert stigin tvö færu. Haukar unnu á endanum níu marka sigur 31-22.

Bjarki Már skoraði 16 er fjögur Íslendingalið fóru áfram í þýska bikarnum
Sex leikir fóru fram í þýsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld, en Íslendingar voru í eldlínunni í fjórum þeirra. Öll fjögur Íslendingaliðin unnu nokkuð örugga sigra og eru því komin áfram í 16-liða úrslit.

Kristján Örn og félagar áfram í franska bikarnum
Kristján Örn Kristjánsson skoraði fjögur mörk þegar hann og félagar hans í franska liðinu PAUC Aix unnu tveggja marka sigur, 36-34, gegn Limoges í 16-liða úrslitum franska deildarbikarsins í handbolta í kvöld.

Gamla liðið hans Viggós vill fá hann aftur
Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, gæti verið á leið til síns gamla liðs, Leipzig.

Sautján ára Eyjakona fór með til Svíþjóðar en tveir Íslandsmeistarar urðu eftir heima
Tveir nýliðar fóru með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta til Svíþjóðar í morgun. Ísland mætir heimakonum í Eskilstuna í fyrsta leik sínum í undankeppni EM á fimmtudaginn.

Guðrún Erla talin vera að ganga til liðs við HK
HK gæti borist góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í Olís-deild kvenna í handbolta. Talið er að miðjumaðurinn Guðrún Erla Bjarnadóttir sé að ganga í raðir félagsins.

Leiðin hjá Sagosen liggur líklega heim í nýtt ofurlið
Sander Sagosen, einn besti handboltamaður í heimi, snýr að öllum líkindum aftur heim uppeldisfélagsins Kolstad eftir næsta tímabil.

Fyrsti sigur Stuttgart kom í Íslendingaslag
Stuttgart vann í dag sinn fyrsta sigur á tímabilinu í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta þegar að Rhein-Neckar Löwen kom í heimsókn. Andri Már Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir Stuttgart þegar að liðið vann 35-30.

Erlingur: Urðum að ná jafnvægi í sóknarleikinn
„Það er alltaf skemmtilegt og gott að ná að sigra,“ sagði Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV eftir nauman sigur sinna manna á FH í Olís-deild karla í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - FH 26-25 | Eyjamenn höfðu betur gegn Hafnfirðingum í hörkuleik
ÍBV vann í dag nauman sigur á FH í Olís-deild karla í handbolta. Eyjamenn reyndust sterkari aðilinn á lokakaflanum og lönduðu að lokum eins marks sigri, 26-25.

Íslendingalið Melsungen með nauman sigur
Íslendingaliðið MT Melsungen vann nauman tveggja marka sigur þegar að liðið heimsótti Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Elvar Örn Jónsson var markahæstur Íslendinga með fjögur mörk.

Gummersbach með fullt hús stiga | Elín Jóna fór mikinn
Íslendingarnir í þýsku B-deildinni í handbolta létu heldur betur finna fyrir sér í kvöld. Hákon Daði Styrmisson átti frábæran leik í 32-24 sigri Gummersbach á Grosswallstadt og þá var Anton Rúnarsson öflugur í 31-23 sigri Emsdetten á Ferndord.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Valur-Fram 29-25 | Valur er Íslands- og bikarmeistari
Íslandsmeistarar Vals fullkomnuðu tímabilið sitt með því að verða Coca-Cola bikarmeistarar. Valur vann fjögurra marka sigur á Fram 29-25.

Arnar Birkir skoraði átta í naumum sigri
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði átta mörk fyrir EHV Aue þegar að liðið vann eins marks sigur gegn Ludwigshafen í þýsku B-deildinni í handbolta í dag 30-29.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - KA/Þór 20-26 | KA/Þór er Íslands- og bikarmeistari
KA/Þór eru bikarmeistarar annað árið í röð í Cocacola bikar kvenna er þær sigruðu lið Fram 26-20 í Schenker-höllinni í Hafnafirði. Þær eru nú ríkjandi íslandsmeistarar, deildarmeistarar og bikarmeistarar.

Andri Snær: „Gott sjálfstraust og frábær leikur“
Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs, var eðlilega í skýjunum eftir að liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn í dag með sex marka sigri á Fram, 26-20.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Stjarnan 28-25 | Fram mætir Val í bikarúrslitum
Fram er komið í úrslit í Coca-Cola bikarsins eftir sigur á Stjörnunni í æsispennandi leik á Ásvöllum. Lokatölur 28-25 og það er því Fram sem mætir Val í úrslitaleiknum.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Valur 21-32| Valur í bikarúrslit eftir frábæran seinni hálfleik
Íslandsmeistarar Vals eru komnir í bikarúrslit eftir sigur á Aftureldingu 21-32. Dúndur seinni hálfleikur hjá Val gerði það að verkum að þeir unnu sannfærandi ellefu marka sigur og mæta annað hvort Fram eða Stjörnunni í úrslitum Coca Cola bikarsins.

Teitur hafði betur í Íslendingaslag
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og félagar hans í Skövde heimsóttu Teit Örn Einarsson og félaga í Kristianstad í sænska handboltanum í dag. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik tóku Teitur og félagar forystuna og unnu að lokum góðan tveggja marka sigur, 26-24.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - FH 33-16 | Íslandsmeistararnir of stór biti fyrir Fimleikafélagið
KA/Þór er komið í úrslit í Coca-Cola bikarnum eftir stórsigur á FH en lokatölur leiksins voru 33-16.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 19-22 | Fram í bikarúrslit fimmta árið í röð
Fram er komið í fimmta bikarúrslitaleikinn á jafn mörgum árum eftir sigur á Val, 19-22, á Ásvöllum í kvöld. Í úrslitaleiknum á laugardaginn mætir Fram sigurvegaranum úr seinni undanúrslitaleiknum, milli KA/Þórs og FH.

Þórey Rósa: Fannst vanta blik í augun á þeim
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sjö mörk úr átta skotum þegar Fram tryggði sér sæti í bikarúrslitaleiknum með sigri á Val, 19-22, í kvöld. Hún var að vonum sátt í leikslok.

Ómar Ingi og Gísli Þorgeir enn með fullt hús stiga
Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en þrír af þeim voru Íslendingaslagir. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson hafa unnið alla sex leiki sína í deildinn með Magdeburg eftir þriggja marka sigur gegn MT Melsungen, 27-24.

„Við vorum allar þarna og þetta var hálfkjánalegt á köflum“
Svava Kristín Grétarsdóttir og sérfræðingar hennar í Seinni bylgjunni voru frekar hneykslaðar á sóknarleik HK liðsins í Olís deild kvenna í handbolta.

Andrea setti fimm í öruggum bikarsigri
Andrea Jacobsen, leikmaður Kristianstad og íslenska landsliðsins, skoraði fimm mörk er lið henanr pakkaði Lugi saman í fyrri leik liðanna í sænska bikarnum í handbolta í kvöld, lokatölur 37-23.

Sigvaldi Björn og Haukur skoruðu í naumum sigri Kielce
Sigvaldi Björn Guðjónsson og Haukur Þrastarson léku báðir með Póllandsmeisturum Kielce er liðið lagði HC Motor með einu marki í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta, lokatölur 26-25.