
Handbolti

ÍBV sneri leiknum við í síðari hálfleik
ÍBV vann fimm marka sigur á Stjörnunni í Olís-deild kvenna í handbolta, lokatölur 29-24.

„Við erum alla vega með hjartað á réttum stað núna“
Guðjón Guðmundsson tók KA fyrir í nýjasta Eina innslagi sínu í Seinni bylgjunni. Gaupi ræddi þá við Heimi Örn Árnason sem hefur spilað fyrir KA, þjálfað KA sem og stjórnað málunum utan vallar hjá KA í gegnum tíðina.

Aron Kristján um næsta leik við Val: Það er bara úrslitaleikur
Haukarnir náðu að klára KA í kvöld með góðum endaspretti og Aron Kristjánsson þjálfari liðsins var ánægður með viljastyrj sinna manna.

Sebastian: Mín fyrstu viðbrögð eru ekki hæf í sjónvarpi
Sebastian Alexandersson var allt annað en sáttur eftir tap HK á móti Stjörnunni í Olís deild karla í handbolta í kvöld. HK tapaði leiknum á endanum með sex mörkum, 27-21.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - KA 27-24 | Haukar halda forskoti sínu á toppnum
Haukar voru sterkari á lokakaflanum og unnu þriggja marka sigur á KA á Ásvöllum, 27-24, í Olís deild karla í handbolta í kvöld eftir að norðanmenn voru með frumkvæðið fram eftir leik og voru meðal annars 13-11 yfir í hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - HK 27-21 | Tveir sigurleikir í röð hjá Stjörnunni
Stjörnumenn virðast vera að snúa við blaðinu eftir mjög erfiða byrjun á árinu en þeir unnu í kvöld sinn annan sigur í röð í Olís deild karla í handbolta. Stjarnan vann sex marka sigur á HK, 27-21, á heimavelli sínum.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Valur 18-26| Níundi sigur Vals í síðustu tíu leikjum
Valur vann öflugan útisigur á Aftureldingu 18-26.Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Valur sýndi klærnar í seinni hálfleik þar sem Afturelding átti ekki möguleika. Þetta var níundi sigur Vals í síðustu tíu leikjum og Valur með góða möguleika á deildarmeistaratitli.

Þriðji sigurinn í röð hjá Gróttu sem nálgast hratt sæti í úrslitakeppninni
Gróttumenn eru aðeins tveimur stigum frá sæti í úrslitakeppninni eftir öruggan tólf marka sigur á Víkingum, 33-21, á Seltjarnarnesinu í Olís deild karla i handbolta í kvöld.

Upphitun fyrir 20. umferð í Olís: „Það geta fullt að liðum orðið deildarmeistarar“
Baráttan um deildarmeistaratitilinn í Olís deild karla í handbolta og baráttan um heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar verður í fullum gangi í kvöld og á morgun.

Handboltakappar kepptu í nýjustu Heiðursstúkunni
Hvað vita tveir af mestu reynsluboltum Olís-deildar karla í handbolta um deildina sína? Það kom í ljós í nýjasta þætti spurningsleiksins á Vísi.

Kristján Örn framlengir í Frakklandi
Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur framlengt samningi sínum við franska úrvalsdeildarliðið Aix.

Íslendingar mæta Tékkum, Ísraelum og Eistum í undankeppni EM
Eftir að hafa endað í 6. sæti á EM karla í handbolta í janúar er Ísland á leið í nýja undankeppi fyrir EM 2024 í Þýskalandi. Dregið var í riðla fyrir undankeppnina í dag.

Vill viðræður um þjóðarhöll á Selfossi
Ný þjóðarhöll fyrir inniíþróttir gæti risið á Selfossi ef hugmyndir formanns bæjarráðs Árborgar ganga eftir. Hann kallar eftir samtali við ríkisstjórnina í ljósi „vandræðagangs í viðræðum ríkisstjórnarinnar og Reykjavíkurborgar.“

Hægt að styðja strákana okkar á stórmót í fyrsta sinn í þrjú ár
Íslenskir aðdáendur karlalandsliðsins í handbolta fá afar langþráð tækifæri í apríl til að berja strákana okkar augum þegar þeir mæta Austurríki í leik upp á líf og dauða, eða réttara sagt sæti á HM í janúar.

Búið spil hjá besta leikmanni Fram
Framarar munu þurfa að spjara sig án Færeyingsins Vilhelms Poulsen það sem eftir lifir leiktíðar í Olís-deild karla í handbolta.

Sigursteinn Arndal: Það er uppskrift af svona tapi
FH tapaði sannfærandi í kvöld gegn ÍBV í Kaplakrika. Fimm marka tap staðreynd. Lokatölur 29-34.

Umfjöllun og viðtöl: FH 29-34 ÍBV | Eyjamenn sannfærandi í Hafnarfirði
FH fékk ÍBV í heimsókn í kvöld í frestuðum leik úr 16. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Leikurinn var langt frá því að vera spennandi og endaði með öruggum sigri ÍBV 29-34

ÍBV engin fyrirstaða fyrir KA/Þór
Íslandsmeistarar KA/Þór unnu sannfærandi 10 marka sigur á ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta, 34-24.

Elverum og PSG gerðu jafntefli í fyrri viðureign 16-liða úrslita í Meistaradeildinni
Hinn sænski Eric Johansson tryggði Elverum jafntefli gegn PSG í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta, lokatölur 30-30.

Þorgeir Bjarki snýr aftur á Nesið
Handboltamaðurinn Þorgeir Bjarki Davíðsson, leikmaður Vals, mun leika með Gróttu frá og með næstu leiktíð en hann hefur skrifað undir samning til tveggja ára við félagið.

„Ekkert af þessum liðum hefur eitthvað að sækja upp í Olís-deild“
Sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni hafa litla eða enga trú á því að liðið eða liðin sem komast upp í Olís-deild kvenna í handbolta í vor eigi eitthvað erindi í deildina.

Leikmaður Fram fékk far með KA/Þór á Skíðamót Íslands og vann tvenn verðlaun þar
Helgin var afar viðburðarík hjá íþróttakonunni fjölhæfu, Hörpu Maríu Friðgeirsdóttur. Á laugardaginn spilaði hún með Fram gegn Íslandsmeisturum KA/Þórs í Olís-deild kvenna. Eftir leikinn fór hún til Dalvíkur þar sem Skíðamót Íslands fór fram og vann þar tvenn verðlaun.

Ómar Ingi markahæstur í jafntefli | Viktor Gísli lokaði búrinu
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti maður vallarins er Magdeburg og Sporting skildu jöfn í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld, 29-29. Þá átti Viktor Gísli Hallgrímsson frábæran leik í marki GOG er liðið vann tveggja marka sigur gegn Bidasoa Irun.

Bjarki markahæstur í tapi | Lærisveinar Aðalsteins fóru á flug í síðari hálfleik
Íslendingar voru í eldlínunni í tveimur leikjum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta sem fram fóru í dag. Bjarki Már Elísson var markahæsti maður liðsins er Lemgo tapaði gegn Wisla Plock, 31-28, og Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten unnu sex marka sigur gegn Sävehof, 32-26.

Þráinn Orri greiddi háan skatt fyrir tækifærið á EM
Þráinn Orri Jónsson, leikmaður handboltaliðs Hauka, verður frá keppni næstu mánuðina. Hann sleit krossband í hné í leik Íslands og Noregs um 5. sætið á EM í janúar.

Seinni bylgjan: Ásbjörn í miklu basli eftir kinnhestinn
„Þetta var ljótt djók. Þetta er bara leiðinlegt fyrir hann,“ sagði Róbert Gunnarsson um FH-inginn Ásbjörn Friðriksson í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir gríninnslag tengt markametsfíaskóinu í síðustu viku.

Bjarni Ófeigur og félagar komnir yfir í einvíginu
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og liðsfélagar hans í IFK Skövde eru komnir yfir í einvígi sínu gegn Hammarby í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Lokatölur kvöldsins 30-28 Skövde í vil.

Kolding upp úr fallsæti eftir nauman sigur
Markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson og félagar í Kolding unnu nauman eins marks sigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 30-29 gestunum í vil.

Danir drottna yfir handboltaheiminum
Danir eiga besta handboltafólkið og þjálfarana samkvæmt kjöri alþjóða handknattleikssambandsins vegna ársins 2021.

Liðsfélagarnir sjá miklar framfarir hjá yngsta Íslendingnum í bestu deild heims
Andri Már Rúnarsson sló í gegn með Fram í Olís deild karla á síðustu leiktíð. Það vakti mikla athygli þegar hann samdi við þýska úrvalsdeildarliðið Stuttgart þar sem honum var hent beint í djúpu laugina.