Handbolti

Aron öflugur þegar Álaborg tryggði sér sæti í undanúrslitum
Aron Pálmarsson og félagar hans í Álaborg eru komnir í undanúrslit dönsku deildarinnar eftir 28-26 sigur á KIF Kolding í kvöld. Þá vann Holstebro heimasigur á Lemvig og tryggði sæti sitt í deildinni.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Stjarnan 25-24| Mariam Eradze hetja Vals
Valur vann eins marks sigur á Stjörnunni 25-24. Mariam Eradze skoraði sigurmarkið þegar örfáar sekúndur voru eftir. Valur er komið með forystuna í einvíginu 2-1.

Gísli Þorgeir öflugur þegar Magdeburg burstaði lærisveina Ólafs
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Magdeburg sem vann stórsigur á lærisveinum Ólafs Stefánssonar í Erlangen. Þá tapaði Íslendingaliðið Gummersbach naumlega gegn Hannover-Burgdorf.

Stoltur af systur sinni og segir hana yfirburða leikmann í deildinni
Orri Freyr Þorkelsson fylgist stoltur með systur sinni blómstra með Haukum í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta. Hann segir hana besta leikmann deildarinnar.

„Ég er mjög mikill aðdáandi Eyjunnar en held að FH sé sterkari“
Logi Geirsson hefur meiri trú á FH en ÍBV í einvígi liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla.

Andri Snær hættur með KA/Þór
Andri Snær Stefánsson er hættur sem þjálfari KA/Þór í handbolta. Undir hans stjórn varð liðið Íslands-, bikar- og deildarmeistari í fyrsta sinn.

Fyrirliðinn framlengir við Fram
Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði Fram, hefur framlengt samning sinn til ársins 2025.

Tryllt tölfræði Elínar Klöru í úrslitakeppninni
Hin átján ára Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið hamförum með Haukum í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna.

Einar um stórstjörnur Eyjaliðsins: Þær skjóta allt of mikið
Deildar- og bikarmeistarar ÍBV munu ekki labba inn í úrslitaeinvígið í Olís deild kvenna í handbolta eins og kannski einhverjir bjuggust við. Haukastelpurnar eru sýnd veiði en ekki gefin og Haukaliðið náði að jafna metin í undanúrslitaeinvígi sínu á móti hinu gríðarlega sterka liði ÍBV.

Biðin langa lengist og formaðurinn þegir þunnu hljóði
Það er 71 dagur síðan HSÍ tilkynnti að Guðmundur Guðmundsson hefði hætt störfum sem þjálfari karlalandsliðsins í handbolta. Enn bólar ekkert á arftaka Guðmundar.

Hvað verður um stjörnurnar á Selfossi ef liðið fellur?
Ekki liggur fyrir hver framtíð leikmannanna sem hafa samið við Selfoss verður ef liðið fellur niður í Grill 66 deildina.

Helltu yfir færeyska landsliðsþjálfarann í beinni í danska sjónvarpinu
Færeyingar verða með á Evrópumótinu í handbolta í byrjun næsta árs en þeir urðu fámennasta þjóðin til að tryggja sér sæti á stórmóti í liðsíþrótt.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan – Valur 24-25 | Valskonur jöfnuðu metin í gríðarlega spennandi leik
Valskonur jöfnuðu metin í einvígi sínu gegn Stjörnunni í undanúrslitum Olís deildar kvenna í handbolta með 25-24 sigri í öðrum leik liðanna í Mýrinni í Garðabænum í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 25-24 | Haukar unnu með minnsta mun í spennutrylli
Haukar unnu eins marks sigur á ÍBV 25-24. Haukar skoruðu síðasta markið í venjulegum leiktíma sem varð til þess að framlengja þurfti leikinn. Heimakonur höfðu betur í framlengingunni og unnu með minnsta mun. Staðan í einvíginu er jöfn 1-1.

„Ég er ótrúlega stolt af mínu liði“
Haukar unnu eins marks sigur gegn ÍBV 25-24 í ótrúlegum leik sem fór í framlengingu. Díana Guðjónsdóttir, þjálfari Hauka, var í skýjunum með ótrúlegan sigur.

Fjölnismenn halda vonum sínum um Olís-deildarsæti á lífi
Fjölnir vann lífsnauðsynlegan eins marks sigur er liðið heimsótti Víking í þriðja leik liðanna í umspili um sæti í Olís-deild karla í handbolta á næsta tímabili, 24-25.

Snorri líklegastur til að taka við landsliðinu en draumastarfið hans gæti verið að losna
Bjarni Fritzson og Logi Geirsson voru gestir Arnars Daða Arnarssonar í síðasta þætti af Handkastinu. Eins og gefur að skilja veltu þeir félagar fyrir sér hver yrði næsti þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta.

Allar breytingatillögur felldar á ársþingi HSÍ
Ársþing Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, fór fram í Laugardalshöll í dag. Allar tillögur til breytinga á Íslandsmótinu í handbolta voru felldar.

Lærisveinar Alfreðs enduðu EHF-bikarinn á sigri
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta unnu góðan eins marks sigur er liðið mætti Spánverjum í lokaleik EHF-bikarsins í handbolta í dag, 32-31.

Færeyjar á EM í fyrsta skipti þrátt fyrir tap
Færeyingar eru búnir að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í handbolta sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

„Sannfærandi sigur eins og þetta átti að vera“
Ísland vann laglegan sjö marka sigur gegn Eistlandi 30-23. Óðinn Þór Ríkharðsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, var ánægður með sigurinn og verkefnið í heild sinni.

Umfjöllun og myndir: Ísland - Eistland 30-23 | Ísland kláraði undankeppnina með stæl
Ísland vann sannfærandi sigur á Eistlandi 30-23. Viktor Gísli Hallgrímsson fór á kostum í markinu í fyrri hálfleik og Ísland var sjö mörkum yfir í hálfleik. Strákarnir okkar héldu sínu striki í seinni hálfleik og unnu öruggan sjö marka sigur.

Sigvaldi Björn um mögulegan landsliðsþjálfara Íslands: „Berge er geggjaður þjálfari“
„Við mættum allir vel tilbúnir til leiks og kláruðum þetta bara. Þetta var leikur sem þurfti að vinnast og við gerðum það,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta, um sigur liðsins á Ísrael. Ísland mætir Eistlandi klukkan 16.00 í Laugardalshöll.

Hefur ekki rætt við þjálfarann sinn um hvort hann taki við íslenska landsliðinu
Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason var nokkuð sáttur með spilamennsku íslenska landsliðsins í handbolta er liðið vann öruggan sigur gegn Ísrael í undankeppni EM síðastliðinn fimmtudag.

„Hér eru bara menn sem dreymir um að spila á Ólympíuleikum“
„Ég var ánægður með frammistöðuna. Þetta var góður fyrri hálfleikur og við tókum frumkvæðið strax í leiknum og hleyptum þeim ekkert inn í leikinn,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta um leik liðsins gegn Ísrael í vikunni eftir æfingu liðsins í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV – Haukar 29-22 | Eyjakonur taka forystuna
ÍBV vann nokkuð öruggan sjö marka sigur er liðið tók á móti Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta í dag, 29-22.

Umfjöllun og viðtöl: Valur – Stjarnan 28-32 | Stjörnukonur stálu heimaleiknum í framlengingu
Valur tók á móti Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistartitilinn í handbolta kvenna. Leikið var á Hlíðarenda og fóru leikar svo að Stjarnan sigraði 28-32 eftir framlengdan leik.

„Þegar vörnin smellur saman hjá okkur verður þetta miklu einfaldara“
„Ég er mjög glöð að hafa náð að klára þetta sérstaklega í framlengingunni. Mér fannst við koma sterkari inn í framlenginguna og ætluðum við að klára þetta. Ég er mjög sátt að vera allavega komin með einn sigur.“ Sagði sátt og glöð Lena Margrét Valdimarsdóttir eftir frábæran sigur Stjörnunnar á Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.

„Er búið hjá okkur núna og við höfum ekkert meira um þetta að segja“
„Við spiluðum þetta vel, það opnaðist vel fyrir mig. Vildu ekkert hleypa Óðni [Þór Ríkharðssyni] inn svo þetta endaði allt á mér,“ sagði landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, léttur um sigur Íslands í Ísrael á dögunum. Hann verður með íslenska liðinu sem mætir Eistlandi í Laugardalshöll á morgun, sunnudag.

Telur kvennaboltann hornreka miðað við karlaboltann: „Við gefum bara skít í þetta“
Undanúrslitin á Íslandsmóti kvenna í handbolta, Olís-deildinni, hefjast í dag. ÍBV og Valur eru líklegustu liðin til að fara alla leið segir Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, ein besta handboltakona Íslands í gegnum tíðina og sérfræðingur Seinni bylgjunnar. Hún segist einnig telja að kvennaboltinn sé vanræktur ef tekið er mið af karlaboltanum.