Innlent
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Úrskurður sem fellir úr gildi heimild fyrir búsetuúrræði fyrir hælisleitendur í JL húsinu er enn annar áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Þetta segir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við forstjóra Vinnumálastofnunar, sem segir úrskurðinn hafa komið sér í opna skjöldu. Innlent 23.1.2025 18:10
Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fyrrverandi framkvæmdastjóri Tjarnarbíós er talinn hafa dregið sér að minnsta kosti þrettán milljónir króna, að sögn leikhússtjóra. Málið sé lamandi högg fyrir starfsfólk og listamenn. Framkvæmdastjórinn verður kærður til lögreglu á morgun. Innlent 23.1.2025 16:57
Fleiri skora á Guðrúnu Stjórn Sjálfstæðisfélags Reykjanesbæjar hefur skorað á Guðrúnu Hafsteinsdóttir, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, til þess að bjóða sig fram til formanns á næsta landsfundi flokksins. Innlent 23.1.2025 16:48
Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Fjögurra manna starfshópur hefur verið skipaður til að vinna úr þeim hagræðingartillögum sem borist hafa nýrri ríkisstjórn í Samráðsgátt stjórnvalda. Úrvinnslan er enn ekki hafin en verður snörp, að sögn eins meðlimsins. Innlent 23.1.2025 16:47
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kynferðislega áreitni gagnvart barni í sturtuklefa sundlaugar í Reykjavík. Innlent 23.1.2025 16:18
Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið Einar Þorsteinsson borgarstjóri er mótfallinn því að miklum fjölda hælisleitenda verði komið fyrir í JL húsinu. Í Samtalinu með Heimi Má sem sýnt verður í opinni dagskrá á Stöð 2 að loknum fréttum og Íslandi í dag segir hann ekki æskilegt að mikill fjöldi hælisleitenda sé hafður á einum stað. Innlent 23.1.2025 16:17
Frestur til að skila inn tillögum rennur út í dag Frestur til að leggja til hagræðingartillögur í samráðsgátt stjórnvalda rennur út á miðnætti. Hátt á fjórða þúsund tillaga hafa þegar borist. Innlent 23.1.2025 16:15
Fíkniefni í bala og milljónir í skúffu Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna gruns um stórfellt fíkniefnalagabrot. Lögregla hafði fylgst með öðrum þeirra um nokkurt skeið áður en hún fann tæp sjö kíló af amfetamíni og tæpt kíló af kókaíni í íbúð sem mennirnir höfðu til umráða. Innlent 23.1.2025 15:51
Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir kæru foreldrahóps leikskólabarna vera aðför að kennurum barna þeirra en fréttastofa greindi frá því í hádegisfréttum að foreldrahópurinn hefði stefnt Kennarasambandi Íslands því hann teldi hinar ótímabundnu verkfallsaðgerðir í leikskólum vera ólöglegar. Innlent 23.1.2025 14:56
Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Flugvél á leið frá Dubai til Bandaríkjanna lenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis, vegna veikinda farþega um borð. Innlent 23.1.2025 14:44
Dæmdur fyrir höfuðhögg sem leiddi til dauða Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða litáísks karlmanns í skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í hitteðfyrra. Hann fær tveggja ára fangelsisdóm sem er skilorðsbundinn til þriggja ára. Innlent 23.1.2025 14:38
Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Landlæknisembættið ítrekar í tilkynningu að ráðleggingar embættisins um mataræði taka mið af þörfum heilbrigðra einstaklinga og fela ekki í sér boð eða bönn. Meginstef ráðlegginga þeirra sé að fólk borði fjölbreytta fæðu og sé jafnframt meðvitað um mögulega skaðsemi þess að borða óhóflega mikið af rauðu kjöti, gjörunnum matvælum og vörum sem innihalda mikið af mettaðri fitu og/eða viðbættum sykri. Innlent 23.1.2025 14:13
Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Sjálfstæðisfélögin í Austur-Skaftafellssýslu hafa skorað á Guðrúnu Hafsteinsdóttur, oddvita Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins, á landsfundi flokksins sem haldinn verður 28. febrúar til 2. mars næstkomandi. Innlent 23.1.2025 14:09
Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Foreldrar leikskólabarna í Reykjavík hafa gagnrýnt þenslu leikskólakerfisins á sama tíma og ekki tekst að manna í allar stöður og skipulögð fáliðun fer fram víða. Reykjavíkurborg fór þá leið á yfirstandandi skólaári að taka inn öll börn sem fengu boð í leikskóla síðastliðið vor óháð mönnun. Í þessu nýja kerfi er gert ráð fyrir því að ef það er mönnunarvandi sé farið í fáliðun. Innlent 23.1.2025 14:01
Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt Leikhússtjóri Tjarnarbíós segir Sindra Þór Sigríðarson fyrrverandi framkvæmdastjóra leikhússins grunaðan um fjárdrátt yfir þriggja ára tímabil. Til stendur að kæra málið. Innlent 23.1.2025 13:57
„Lausa skrúfan“ seld á Akureyri „Lausa skrúfan“ er yfirskrift á átaki hjá Grófinni geðrækt á Akureyri, sem hefst í næsta mánuði í þeim tilgangi að tryggja enn frekar starfsemi Grófarinnar, sem er eina opna geðræktin á Norðurlandi. Innlent 23.1.2025 13:45
Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur tilkynnt að hún gefi ekki kost á sér í embætti formanns Sjálfstæðisflokks á komandi landsfundi. Hún sækist ekki heldur eftir varaformannssætinu áfram. Innlent 23.1.2025 12:23
Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða Hópur foreldrar leikskólabarna hefur stefnt Kennarasambandi Íslands vegna verkfallsaðgerða kennara. Foreldrarnir telja aðgerðirnar ólöglegar. Innlent 23.1.2025 12:12
„Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Óvissa ríkir um hvað verður um sérstakt búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í JL-húsinu eftir að úrskurðarnefnd felldi úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa um breytingar á deiliskipulagi. Miklir hagsmunir eru í húfi að sögn forstjóra Vinnumálastofnunar en sextíu konur dvelja þegar í húsinu. Formaður velferðarráðs Reykjavíkur gerir ráð fyrir að málið muni nú fara annan hring í kerfinu. Innlent 23.1.2025 12:09
Sindri grunaður um fjárdrátt Framkvæmdastjóri Tjarnarbíós er grunaður um fjárdrátt í starfi samkvæmt heimildum fréttastofu. Málið er litið alvarlegum augum og til skoðunar hvort það verði kært til lögreglu. Innlent 23.1.2025 11:58
Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Í hádegisfréttum fjöllum við um ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að fella úr gildi leyfi til starfsemi í JL húsinu sem átti að hýsa hælisleitendur. Innlent 23.1.2025 11:46
Ærandi þögn og klukkan tifar Þögnin er ærandi þegar fimm vikur eru í landsfund Sjálfstæðisflokksins. Enginn líklegur hefur opinberlega boðið fram krafta sína til formanns þó eitt formannsefni vinni hörðum höndum að framboði. Innlent 23.1.2025 11:35
Halla vill leiða VR áfram Halla Gunnarsdóttir, sem tók við formennsku í VR eftir að Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn á þing, mun sækjast eftir áframhaldandi setu á formannsstól. Formannskjör fer fram í mars. Innlent 23.1.2025 11:26
Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Uppbygging forgangsakreinar fyrir strætisvagna á Kringlumýrarbraut er í undirbúningi á um fimm hundruð metra kafla á milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar. Umferð fjölskyldubílsins þarf ekki að víkja fyrir akreininni heldur verður miðeyja minnkuð. Innlent 23.1.2025 11:20
Leyfið heyrir sögunni til Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur um breytingar á skilmálum deiliskipulags Lýsisreits sem heimilaði breytingar á JL-húsinu sem hefði gert mögulegt að hýsa á fjórða hundrað hælisleitenda í húsinu. Innlent 23.1.2025 09:36
Sakleysi dætranna hafi gufað upp Mæður á Akureyri sem kærðu mann fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára dætrum þeirra segjast hafa misst alla trú á kerfinu eftir að málinu var vísað frá af tveimur saksóknaraembættum. Framburðir stúlknanna í málinu voru ekki metnir nægilega samhljóma. Um svipað leyti og hin meintu brot áttu sér stað var maðurinn gripinn með barnaníðsefni í fórum sínum. Innlent 23.1.2025 09:01
Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar „Líklega hefur enginn fyrr ávarpað Trump opinberlega af slíkri ást sem Mariann biskup,“ segja séra Bjarni Karlsson og séra Jóna Hrönn Bolladóttir í aðsendri grein á Vísi í morgun. Innlent 23.1.2025 08:36
Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Hálfíslenskur læknir sem sérhæfir sig meðal annars í lífsstílslækningum segir samfélagsmiðla sífellt valda fólki meiri streitu. Erfitt sé að forðast alla streitu en hann nefnir nokkur ráð hvernig megi takmarka hana. Innlent 23.1.2025 00:04
Á bak við hvert vandamál er barn sem líður illa Klínískur atferlisfræðingur segist finna fyrir talsverðum breytingum innan skólasamfélagsins. Hann segir kennara og nemendur finna fyrir óöryggi vegna þessara breytinga. Innlent 22.1.2025 22:58
Segir Grænlendinga yndislega, harðduglega og útsjónarsama Eldur Ólafsson, sem stýrir gullleit á Grænlandi, segir fyrirtækið vilja fá Grænlendinga í sem flest störf. Þeir séu harðduglegir og útsjónarsamir, með gott hjarta og yndislegt sé að starfa með þeim. Innlent 22.1.2025 22:45
Stærsta kristal-amfetamínmál sögunnar: Sagði bílinn fluttan inn vegna kvikmyndaverkefnis Innlent