Innlent
27 28 29 30 31 32 33 34 35 … 334 ›
Skordýr í pastaskrúfum Krónan hefur hafið innköllun og tekið úr sölu pastaskrúfu sem seldar eru undir vörumerkinu First Price eftir að skordýr fannst í innihaldi einnar pakkningar frá framleiðandanum. Ekki kemur fram í tilkynningu hvaða skordýr það var. Innlent 15.10.2024 10:32
„Við erum í ákveðnu óvissutímabili“ Það ríkir óvissuástand um framhald þingstarfa í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í íslenskum stjórnmálum. Þetta sagði Birgir Ármannsson forseti Alþingis að loknum fundi sínum með Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í morgun. Það muni ráðast síðar í dag hvernig þingstörfum verður háttað í vikunni. Þess má vænta að forsætisráðherra muni síðar í dag biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Innlent 15.10.2024 10:17
„Ég er viss um að hann mundi allt sem gerðist þetta kvöld“ „Maður missti svo mikið við þessa atlögu. Ég missti pabba, ég missti frænda minn, ég missti griðastaðinn minn þarna. Í rauninni held ég að það hafi ekki komið mér á óvart þegar hann neitaði sök. Þetta er ekki maður sem hefur gengist við gjörðum sínum,“ segir Ellen Drífa Ragnarsdóttir, dóttir Ragnars Lýðssonar sem ráðinn var bani á bænum Gýgjarhóli árið 2018. Banamaður Ragnars var bróðir hans, Valur Lýðsson. Innlent 15.10.2024 10:06
Rúmar þrjár milljónir króna á hvert gæludýr úkraínskra flóttamanna Ráðstafanir til þess að úkraínskir flóttamenn gætu tekið gæludýr sín með sér til Íslands kostuðu hátt í 59 milljónir króna. Kostnaðurinn á hvert gæludýr nam rúmum þremur milljónum króna en koma þurfti á fót sérstakri einangrunarstöð fyrir dýrin. Innlent 15.10.2024 09:41
Píratar komnir í kosningaham Píratar eru komnir í kosningaham og hafa nokkrir þeirra þegar gefið út að þeir muni sækjast eftir sæti á lista. Þeirra á meðal eru þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson og Gísli Rafn Ólafsson og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir sem nýlega gekk til liðs við flokkinn. Öll hafa þau birt færslur á samfélagsmiðlum þar sem þau kalla eftir stuðningi. Innlent 15.10.2024 09:36
Ekkert bendi til þess að innrauðar sánur séu betri en venjulegar Prófessor emeritus í lífeðlisfræði segir ekkert benda til þess að innrauðar sánur, sem njóta síaukinna vinsælda hér á landi, virki betur en hefðbundin gufuböð eða heitir pottar. Upplýsingaóreiða virðist ríkja hjá mörgum sem bjóða upp á innrauðar sánur. Innlent 15.10.2024 09:06
Birgir mættur á fund forseta Íslands Birgir Ármannsson forseti Alþingis gekk á fund Höllu Tómasdóttur forseta Íslands nú klukkan níu í morgun til að ræða við hana stöðu mála. Í framhaldinu má búast við að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra gangi á fund forseta Íslands og biðjist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Innlent 15.10.2024 09:04
Þórdís gæti boðið sig fram í Kraganum Mögulegt er að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, bjóði sig fram í Suðvesturkjördæmi í kosningum sem fara fram í næsta mánuði. Hún segist íhuga það alvarlega. Innlent 15.10.2024 08:40
Enginn þingfundur í dag og óvissa um framhaldið Þingfundur verður ekki á Alþingi í dag eins og gert hafði verið ráð fyrir og segir Birgir Ármannsson forseti Alþingis að það sé eðlilegt miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur nú ákveðið að biðjast lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis hefði þingfundur átt að fara fram í dag. Innlent 15.10.2024 08:02
Varar við „hægriglundroða” Bjarna og Sigmundar og landsfundi frestað Formaður Samfylkingarinnar varar við mögulegum „hægriglundroða með flokksbrotum Bjarna og Sigmundar og fylgitunglum þeirra,“ að afstöðnum alþingiskosningum sem framundan eru. Þá hefur framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákveðið að fresta landsfundi flokksins sem átti að fara fram um miðjan nóvember. Er það mat framkvæmdastjórnarinnar að það sé best fyrir flokkinn og að öllum kröftum flokksins verði beint í kosningabaráttu. Þess í stað verði stefnt að landsfundi í mars eða apríl. Innlent 15.10.2024 07:31
„Það má berja barn á Íslandi ef það er ekki með íslenska kennitölu“ Lögregla sótti dreng frá Kólumbíu, Oscar Andres Florez Bocanegra, inn á salerni Flensborgar í gær og til stendur að flytja hann og föður hans úr landi í dag. Innlent 15.10.2024 06:31
Brutu leið inn á heimili fyrir sjúkralið að veita aðhlynningu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kölluð til í gærkvöldi og nótt til að aðstoða sjúkralið, annars vegar vegna slyss sem varð inni á heimili og hins vegar til að brjóta leið inn á heimili þannig að sjúkralið gæti veitt aðhlynningu. Innlent 15.10.2024 06:13
Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Í fyrramálið er mikilvægur fundur hjá Ríkissáttasemjara en umfangsmikil verkföll eru á dagskrá í lok mánaðar. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að enn beri mikið í milli en hann vonast til þess að deiluaðilar nái saman svo afstýra megi verkföllum. Innlent 15.10.2024 00:01
Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, hyggst ekki bjóða sig fram í komandi Alþingiskosningum. Hún segist þó ekki vera hætt að vinna með Pírötum. Innlent 14.10.2024 23:08
Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manni sem grunaður var um að ofsækja konu miskabætur vegna húsleitar, handtöku og haldlagningu tækjabúnaðar í fleiri ár. Þær bætur sem hann fékk voru þó umtalsvert lægri en þær sem hann krafðist. Innlent 14.10.2024 22:55
„Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um að binda enda á ríkisstjórnarsamstarfið. Innlent 14.10.2024 22:03
Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist ætla að biðjast lausnar úr embætti, en segir það hafa legið fyrir frá því að hann tilkynnti um að hann óski eftir þingrofi á sunnudag. Honum finnist eðlilegast að mynda starfsstjórn með stuttan forgangslista sem geti komið mikilvægum málum, líkt og fjárlögum, í gegn sem fyrst. Innlent 14.10.2024 21:06
Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Ekki er einhugur um það meðal leiðtoga á Alþingi hvort forseti Íslands eigi að verða við ósk forsætisráðherra um þingrof, eða hvort honum beri að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forsetinn ræddi við leiðtoga allra flokkanna í dag. Formaður Vinstri grænna lýsti því yfir snemma í kvöld að hún gæti vel séð fyrir sér minnihlutastjórn hennar flokks með Sigurð Inga Jóhannsson formann Framsóknarflokksins í embætti forsætisráðherra fram að kosningum. Innlent 14.10.2024 20:13
Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir sér þykja það leitt að ummæli sem hann lét falla á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna fyrir helgi hafi verið túlkuð á þann veg að hann beri ekki virðingu fyrir störfum kennara. Innlent 14.10.2024 19:52
Sér Sigurð Inga alveg fyrir sér sem forsætisráðherra Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, telur að Bjarni Benediktsson ætti að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, enda hafi hann og Sjálfstæðisflokkurinn gefist upp á verkefninu og yfirgefið ríkisstjórnina. Hún geti vel séð fyrir sér starfsstjórn Framsóknarflokks og Vinstri grænna fram að kosningum undir forsæti Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins. Innlent 14.10.2024 19:25
Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist standa við það sem hún sagði í færslu sem hún eyddi af samfélagsmiðlum um helgina. Hún segir þau hörðu viðbrögð sem færslan fékk einkennast af misskilningi og fréttaflutning af henni misvísandi. Innlent 14.10.2024 18:52
Viðbrögð stjórnarandstöðunnar, rödd almennings og landsleikur Ekki er einhugur um það meðal leiðtoga á Alþingi hvort forseti eigi að verða við ósk forsætisráðherra um þingrof eða hvort honum beri að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forseti Íslands ræddi við leiðtoga allra flokkanna í dag. Innlent 14.10.2024 18:01
Afar spenntur fyrir minnihlutastjórn Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir að ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra hafi komið sér á óvart um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Orri segist skilja orð hans þannig að hann sé að „gefast upp á þessu verkefni.“ Innlent 14.10.2024 17:02
Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku og má sömuleiðis ekki skella sér út á lífið yfir fjögurra mánaða tímabil. Innlent 14.10.2024 17:01
„Ekkert eðlilega leiðinleg, þessi ríkisstjórn“ Fulltrúar minnihlutans á Alþingi reyndu ekki að leyna létti sem hefur gripið um sig í þeirra röðum við þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu og óska eftir þingrofi. „Hún var ekkert eðlilega leiðinleg, þessi ríkisstjórn,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fulltrúi Viðreisnar og bætti um betur en áður hafði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati gefið ríkisstjórninni þessa sömu einkunn. Innlent 14.10.2024 16:45
Allar líkur á samþykki forseta og að stjórnin sitji til kosninga Prófessor í lögfræði segist telja allar líkur á að forseti Íslands fallist á beiðni forsætisráðherra um þingrof. Þá sé ólíklegt að formenn ríkisstjórnarflokkanna geti ekki unnið saman fram að kosningum í nóvember. Innlent 14.10.2024 15:46
Blönduð leið líkleg hjá Viðreisn og barátta um oddvitasætin Viðreisnarfólk mun taka ákvörðun um fyrirkomulag við val á framboðslista á allra næstu dögum. Ekki er ólíklegt að ólíkar leiðir verði farnar við val á lista eftir kjördæmum, prófkjör í sumum og uppstilling í öðrum, að sögn framkvæmdastjóra flokksins. Vænta má að einhver barátta verði um efstu sæti á listum flokksins. Innlent 14.10.2024 15:01
„Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir stjórnarsamstarfinu augljóslega lokið. Það þurfi að klára lykilmál eins og fjárlög en það séu kosningar framunda. Framsóknarflokkurinn sé tilbúinn. Það skipti mestu máli að vextir halda áfram að lækka og koma efnahagsmálunum í lag. Lilja ræddi við fréttamann að loknum þingflokksfundi. Innlent 14.10.2024 14:57
Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins segir þingflokkinn hafa farið yfir stöðuna í stjórnmálum í dag á þingflokksfundi. Staðan sé óljóst eftir atburðarás gærdagsins. Hann ætlar á fundi með forsetanum síðar í dag að ræða það hvort ríkisstjórnin starfi saman fram að kosningum eða hvort skipa þurfi starfsstjórn. Innlent 14.10.2024 14:32
Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri kveðst í hlaðvarpsviðtali dauðvorkenna Einari Þorsteinssyni sitjandi borgarstjóra. Einar tók við keflinu af Degi B. Eggertssyni fyrrverandi borgarstjóra á miðju kjörtímabili en Dagur hefur verið orðaður við framboð í landsmálunum og þá fyrir Samfylkinguna. Innlent 14.10.2024 14:01