
Erlent

Forsætisráðherrann segir af sér
Alexander De Croo, forsætisráðherra Belgíu, tilkynnti tárvotur í kvöld að hann myndi segja af sér frá og með morgundeginum. Hann segir kvöldið hafa verið „einstaklega erfitt.“

Macron rýfur þingið og boðar til kosninga
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur tilkynnt að hann muni rjúfa þingið og boða til kosninga. Ástæðan er kosningasigur hægriflokka í Evrópukosningunum þar í landi.

Benny Gantz hættur í þjóðstjórn Netanjahús
Benny Gantz, ráðherra í stríðsráði Ísrael og fyrrverandi varnarmálaráðherra, hefur tilkynnt afsögn sína úr þjóðstjórn Benjamíns Netanjahús. Hann er leiðtogi Þjóðareiningarbandalagsins og pólitískur andstæðingur Netanjahús.

Utanríkisráðherra Danmerkur krambúleraður eftir bátaslys
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur og Lisa dóttir hans slösuðust bæði í bátaslysi í einu síkja Kaupmannahafnar þar sem þau fóru í skemmtisiglingu.

Minnist ævintýragjarna og dásamlega mannsins síns
Yfirvöld á grísku eyjunni Symi hafa staðfest að lík sem fannst í morgun sé af breska sjónvarpslækninum Michael Mosley. Eiginkona hans minnist hans og segist niðurbrotin.

„Allt sem gerist í Brussel snertir okkur“
Einni stærstu lýðræðislegu aðgerð heims lýkur í dag þar sem kosið er til Evrópuþings í 21 af 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins. Um 370 milljónir manna eru á kjörskrá og keppt er um 720 sæti. Kjósendur í Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni og Póllandi svo nokkur dæmi séu nefnd kjósa í dag, á síðasta degi kosninga sem hófust í Hollandi á fimmtudaginn.

Talið að lík Mosley sé fundið
Lík af manni hefur fundist í helli við grísku eyjuna Symi. Talið er að þar sé um að ræða breska sjónvarpsmanninn Michael Mosley sem hefur verið saknað síðan á miðvikudag.

Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn
Talsmaður herskás arms Hamas-samtakanna segir Ísraelsmenn hafa drepið ríflega 200 Palestínumenn í dag þegar fjórum gíslum var bjargað úr haldi Hamas-liða. Þá hafi aðrir gíslar dáið í átökunum.

Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum
Ísraelski herinn frelsaði í dag fjóra gísla úr haldi Hamas í Nuseirat-borg á miðlægu Gasasvæðinu. Samhliða fótgönguliðsáhlaupinu voru gerðar umfangsmiklar loftárásir sem leiddu til dauða 93 Palestínumanna að sögn yfirvalda á svæðinu.

Árásarmaðurinn segist ekkert hafa á móti Mette
Maðurinn sem sló Mette Frederiksen í Kaupmannahöfn í gærkvöldi segist ekkert hafa á móti henni og segir að hún sé „mjög góður forsætisráðherra.“ Það hafi jafnramt komið honum „skemmtilega á óvart“ að sjá hana á götunni.

Flæmskur aðskilnaðarflokkur sækir í sig veðrið
Í dag ganga Belgar til þingkosninga ásamt því að kjósa til Evrópuþingsins. Skoðanakannanir benda til þess að flokkur sem berst fyrir því að leysa landið upp muni bæta talsverðu við sig.

Færeyskir atvinnurekendur segjast hafðir að spotti
Atvinnurekendur í Færeyjum segjast hafðir að háði og spotti af verkalýðsfélögum þar í landi. Freistað var að binda enda á margra vikna verkfall á fundi með sáttasemjara í gær en án árangurs. Verkalýðsfélögin segjast tilbúin að auka þrýstingin en ástandið versnar með hverjum deginum sem líður.

Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa
Fjórum gíslum hefur verið bjargað lifandi á Gasasvæðinu. Um ræðir þrjá karlmenn og eina konu sem voru tekin í gíslingu á tónlistarhátíðinni Nova þegar Hamasliðar réðust inn í Ísrael sjöunda október á síðasta ári.

Vendingar í leit að sjónvarpslækni
Upptaka öryggismyndavélar virðast sýna hinn 67 ára Michael Mosley, frægan sjónvarpslækni, spóka sig í bænum Pedi á grísku eyjunni Symi en hans hefur verið leitað frá því á miðvikudaginn.

39 ára karlmaður í haldi vegna árásarinnar á Mette Frederiksen
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið 39 ára karlmann sem grunaður er um að hafa ráðist á Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í gær.

Frederiksen slegin í miðborg Kaupmannahafnar
Karlmaður sló Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, í miðborg Kaupmannahafnar í dag. Lögregla handtók manninn en ekki er ljóst hvað honum gekk til. Pólitískir bandamenn og keppinautar Frederiksen fordæma árásina.

Framkvæmdastjórn ESB gefur Úkraínu grænt ljós
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur mælt með því að hefja formlegar aðildarviðræður milli sambandsins og Úkraínu.

Írar kjósa til Evrópuþings
Næststærstu lýðræðislegu kosningar heims á eftir þeim indversku fara nú fram í öllum 27 aðildarríkjum Evrópusambandsnins. Kosið er um fleiri en sjöhundruð sæti í Evrópuþinginu fram á sunnudag. Írar ganga til kosninga til Evrópuþingsins í dag. Kjörstaðir opnuðu klukkan sjö í morgun og loka þeir klukkan tíu. Írar senda fjórtán fulltrúa á þingið en alls sitja þar 720 fulltrúar frá öllum aðildarríkjum sambandsins.

Sunak biðst afsökunar á brotthvarfi frá Normandí
Rishi Sunak segir það hafa verið mistök að yfirgefa minningarathöfn um innrásina í Normandí í gær. Það gerði hann til þess að gefa sjónvarpsviðtal heimafyrir, þar sem hann stendur í harðri kosningabaráttu.

Fyrstu úrslit Evrópukosninga staðfesta uppgang fjarhægrisins
Vinstriflokkarnir í Hollandi virðast hafa haft nauman sigur á fjarhægri flokki í Evrópuþingskosningum þar í dag. Holland er fyrsta landið sem kýs í kosningunum en hægri- og fjarhægri flokkum er almennt spáð góðu gengi í álfunni.

Tengdi stríðið í Úkraínu við baráttuna gegn fasismanum
Joe Biden Bandaríkjaforseti líkti stríðinu í Úkraínu ítrekað við baráttu bandamanna gegn fasískum öflum í síðari heimsstyrjöldinni í ávarpi við minningarathöfn um innrásina í Normandí í dag. Evrópu væri ógnað ef Úkraína tapaði stríðinu.

Frægs sjónvarpslæknis leitað
Frægur sjónvarpslæknir sem skrifaði bók um 5:2 mataræðið , Michael Mosley, er nú leitað á grísku eyjunni Symi. Viðbragðsaðilar á svæðinu leggja nú allt kapp á að finna Mosley en við leitirnar er notast við leitarhunda og dróna.

Vill brottvísa hælisleitendum sem fremja alvarlega glæpi
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, sagði að vísa ætti úr landi hælisleitendum sem gerast sekir um hegningarlagabrot jafnvel þó þeir hafi komið frá Sýrlandi eða Afganistan.

Stefnir í óefni náist samningar ekki í bráð
Á morgun setjast færeysk verkalýðsfélög við samningaborðið og freista þess að binda enda á þrálát verkföll sem staðið hafa yfir síðan ellefta maí síðastliðinn. Ágústa Gísladóttir, aðalræðismaður Íslands í Færeyjum, segir ástandið alvarlegt en að færeyskt samfélag stæði við bak verkafólksins.

Lést á leið til Normandí 80 árum eftir D-dag
Robert Persichitti, fyrrverandi sjóliði bandaríska hersins, lést á leið sinni á viðburð í Normandí í Frakklandi sem fer fram í dag. Viðburðurinn markar 80 ár frá innrás bandamanna á ströndinni í Normandí.

Göngugarpur uppljóstrar að hæsti foss Kína er buna úr röri
Milljónir hafa horft á myndskeið á samfélagsmiðlum í Kína þar sem göngumaður sem sýnir hvernig hæsti foss landsins er í raun og veru rörbuna. Hann klifraði upp fyrir fossinn og blasti rörið þá við honum.

Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann
Rex Heuermann verður ákærður fyrir tvö manndráp til viðbótar í dag fyrir dómstóli í New York en ákærurnar gegn Heuermann verða því sex talsins. Þetta herma heimildir fréttastofu News 12 á Long Island.

Leit Trump að varaforsetaefni að komast á skrið
Kosningateymi Donald Trump hefur óskað eftir gögnum frá nokkrum einstaklingum sem miðlar vestanhafs segja tengjast leit forsetans fyrrverandi að varaforsetaefni.

„Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu
„Í mínum huga væri það ansi hrokafull afstaða að skilyrða fjárhagslegan stuðning okkar við að Úkraínumenn kaupi ekki það sem þá vantar helst heldur það sem okkur sjálfum líður best með,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra í aðsendri grein á Vísi.

Fjórir létust í lestarslysi í Tékklandi
Fjórir eru látnir og 26 eru slasaðir eftir að tvær lestir skullu saman skammt frá bænum Pardubice í Tékklandi. Um 300 farþegar voru innanborðs í annarri lestinni sem var á leið frá Prag til Úkraínu í gærkvöldi.